Vikan - 01.12.1966, Blaðsíða 45
urríkj amönnum að kenna. Þeir
svertu hvíta Suðurríkjamenn í
augum útlendinga og espuðu
negrana upp. Loks varð hann
svo æstur að hann sleppti sér
við mig og mína hvítu dömu.
— Hefurðu umgengizt mikið
negra í USA?
— Nei, en ég kynntist þeim
nokkuð í háskólanum og á
negraknæpum. Eitt sinn rændi
mig negri aleigunni. „Þér var
nær“, sagði lögreglan, „að vera
að skipta þér af negrum.“
Um jólin fórum við einu sinni
nokkrir stúdentar til Mexico þar
á meðal einn amerískur negri,
Joe að nafni. Leið okkar lá um
Texas og vildum við gista þar í
bæ einum nálægt landamærum
Mexico á KFUM hóteli. Segist
Joe þá verða að skilja við okk-
ur og gista annars staðar. En
við sögðum, ef þú kemur ekki
með okkur, förum við með þér.
„Það gengur ekki,“ segir hann,
„við erum í Texas“, en það varð
þó úr að hann kæmi með okk-
ur Joe gekk síðastur en við vor-
um varla komnir inn þegar
dyravörðurinn hvíslaði að mér:
„Er hann með ykkur þessi,“ og
átti við Joe. „Já,“ segi ég.
„Hann fær ekki gistingu hér,“
segir hann þá.
„Hvers vegna ekki,“ spurði
ég?
Honum vafðist tunga um tönn.
„Þér eruð útlendingur?"
Ég játaði því.
„Mér þykir þetta leitt.“ Per-
sónulega hef ég ekkert á móti
þessum blakka Oini yðar en ég
hef mín fyrirmæli, sem ég verð
að framfylgja meðan ég vinn
hér."
„En þetta er þó KFUM hótel,“
sagði ég æstur, „finnst yður
þetta samrýmast Kristindómin-
um?“
„Nei,“ viðurkenndi hann, „en
ég get ekkert gert.“
„Ég heimtaði þá að fá að tala
við yfirmann hótelsins, en mér
var þá sagt að hann væri ekki í
bænum. Þetta var óvinnandi vígi
og við fórum allir burt, yfir
landamærin til Mexico og þar
kunni Joe betur við sig en í
heimalandi sínu USA.
— Kynntist þú nokkuð Indí-
ánum?
— Það var því miður lítið. Þó
verð ég að segja að vandamál
þeirra höfðu dýpri áhrif á mig
en negranna. Þetta eru leifar
gjörsigraðra þjóða eins og þú
veizt, sem einu sinni einkennd-
ust af stolti og sérstæðum hæfi-
leikum, en nú lifa yfirleitt á
fast afmörkuðum landssvæðum
sem hinar aðfluttu herraþjóðir
hafa ekki kært sig um. Harm-
saga þeirra er að mínu áliti enn
meiri blettur á hvíta kynstofn-
inum, en meðferð þeirra á
negrum. Hér er hreinlega um
þjóðamorð að ræða. Það er mik-
ill skaði að því að hinir merki-
legu Indíána-stofnar í Norður
Ameríku skyldu vera þurrkaðir
ZANUSSI'
HafnarfjörAur Jón Mathiesen
AVanes V^rzlunin örin
Keflavik Siguróur Guðmundsson, rafvm. , Vesturgotu S
Búöardalur Einar Stefánsson, rafvm.
Isafjórður Baldur Sæmundsson, rafvm. Fjarðarstreeti 33
Siglufjördur Verzlunin Raflýsing
ólaf sfjorður Magnús Stefánsson. rafvrn.
Raufarhófn Reynir Sveinsson, rafvm.
Akureyri Véla 6 Raftaekjasalan
Húsavik Rafvélaverkstaeði Grims og Arna
Saudárkrókur Verzl. Vökull
Blönduós Valur Snorrason, rafvm.
simi 16242
Hver einasta húsmóðir, sem sér
ZANUSSI kæliskáp hrífst af hinni
rómuðu ítölsku stílfegurð. Þær
sem hafa reynt ZANUSSI kæíi-
skápa þekkja kostina. Komið og
kynnið yður hina sérstaklega
hagkvæmu greiðsluskilmála.
SÖLUUMBOÐ
UTAN REYKJAVÍKUR
út, allflestir, í stað þess að bland-
ast þá frekar hvíta stofninum
smám saman. Það er oft talað með
réttlátri reiði um þjóðamorð
ýmissa ofbeldisþjóða, en þjóða-
morðin í Ameríku eru oftast
túlkuð sem skemmtileg ævin-
týri og hetjudáðir. Ég hef oft
séð drukkna menn erlendis en
einhvernveginn situr myndin af
ölóðum Indíánadreng í Arizona
fastast í huga mér. Hann brauzt
um á hæl og hnakka, en tveir
fílefldir karlmenn héldu hon-
um föstum.
— Gerðir þú mannfræðirann-
sóknir í Ameríku? I
— Ég var aðstoðarmaður
prófessora minna við beina-
rannsóknir Indíána og blóðrann-
sóknir á „hreinum mongólum“,
en sjálfstæðar rannsóknir gerði
ég á Vestur-íslendingum í Kan-
ada og í USA, mældi þá hæð,
höfuð og andlitslag, athugaði
hára- og augnalit og ýmisleg
fleiri einkenni. En þessar rann-
sóknir urðu því miður ekki
eins víðtækar og ég hefði kosið.
Mig skorti fé til ferðalaga. Flest
það fólk sem ég rannsakaði
reyndist vera hávaxið og bar
mest einkenni norræna kyn-
stofnsins.
— Þú dvaldir meðal afkom-
enda íslenzkra Mormóna í Utha?
— Já, þeir eru elskulegasta
fólk á jörðunni, næst Dalamönn-
um. Ég rannsakaði alla sem ég
náði til.
— Reyndu þeir að turna þér?
— Flestir gerðu lítið til þess
en sumir reyndu hvað þeir gátu.
Þeir buðu mér að búa hjá sér
frítt í heilt ár og vildu að ég
færi í háskóla þeirra, sem
kenndur er við Brigham Young,
þennan sem átti 23 konur. Þeir
^ S J j *» ■! fi» g «»J) t' F, -» i f* I,
vissu sem var að það vantaði
trúboða á íslandi og einhverja
prestalykt hafa þeir vafalaust
fundið af mér.
— Hvað var þá í veginum?
— Gulltöflurnar stóðu í mér.
Joseph Smith fann þær undir
steini þar sem Moroni sendiboði
guðs hafði vísað á þær á hæð
nokkurri (í New York ríki). Á
þær var skráð eitthvað sem að-
eins Smith gat þýtt fyrir náð
guðs, á ensku.
— Og þetta stóð í þér?
— Já, því miður var ég orðinn
of háður því sem kallað er vís-
•> ■ C ». H ..
W F 1/^vJ "—i ■
SKARTGRIPIR
um Z3
SIGMAR & PÁLMI
Hverfisgötu 16A, sími 21355
48. tbi. VIKAN 45