Vikan - 22.03.1967, Page 3
Sexið og
Sviarnir
Það hefur vakið alheimsathygli hversu Svíar sýna
kynferðismálum mikinn áhuga. Utlendingar sem dvelj-
ast í Svíþjóð verða strax varir við þetta, bæði á næt-
urklúbbum og í sumum blöðunum. Má í því sambandi
Í NKSTU VIKU
nefna vikublaðið SE, en efni þess er að miklu leyti
byggt á kynferðismálum og hnefaleikum. I næstu
Viku birtist grein sem nefnist SEXIÐ OG SVÍARNIR. Þar
er fjallað um þetta fyrirbrigði, bæði galla þess og
kosti. Greininni fylgja myndir frá næturklúbbum í
Stokkhólmi.
Þegar rætt er um skemmtanalíf fyrstu ára þessar-
ar aldar, fer vart hjá því að nafn Söru Bernhardt
beri á góma, enda má segja að hún sé fyrsta leikkon-
an sem hlýtur heimsfrægð. f næstu Viku kemur grein
sem nefnist HIN GUÐDÓMLEGA SARAH BERNHARDT.
Eru þar birtir kaflar úr ævisögu þessarar dáðu leik-
konu. — Fegurðarsamkeppni unga fólksins heldur
áfram og í næsta blaði kynnum við þátttakendur nr.
5 og 6.
Annað efni: Annar hluti hinnar nýju framhalds-
sögu HVIKULT MARK eftir Ross MacDonald, sjötti hlut-
inn af ANGELIQUE í BYLTINGUNNI, og síðast en ekki
sízt framhaldið af bók Manchesters um dauða Kennedys
forseta.
HÚMOR í VIKUBYRJUN
Það er alltaf sama sagan með þessi
skemmtiferðalög, menn eru alltaf of
margir.
Og munið svo eftir því að taka ein-
göngu það nauðsynlegasta með í leið-
angurinn.
ÍÞESSARIVIKU
ANGELIQUE í BYLTINGUNNI. 5. hluti hinnar
spennandi framhaldssögu eftir Sergeanne
Golon .................................. Bls. 4
FIMM DAGAR í MADRID. Sögulok............ Bls. 8
MEÐ MYNDAVÉL í ELDLÍNUNNI. Viðtal við
frönsku blaðakonuna Michele Ray, sem var
fangi Viet Cong .................... Bls. 10
KVENNAGULLIÐ. Smásaga ................ Bls. 12
GEFÐU GAUM AÐ GREIND ÞINNI. Gáfnapróf
fyrir konur ............................ Bls. 14
SÁ STERKASTI í BONN. Grein um hinn um-
deilda, þýzka stjórnmálamann, Franz Jósef
Strauss ................................. Ðls. 16
UNGA KYNSLÓÐIN 1967. Tveir þátttakendur
kynntir -í fegurðarsamkeppni VIKUNNAR og
KARNABÆJAR .............................. Bls. 18
HVIKULT MARK. Ný framhaldssaga eftir Ross
MacDonald. Sagan hefur verið kvikmynduð
og verður myndin sýnd í Austurbæjarbíói ( vor Bls. 22
VIKAN OG HEIMILIÐ. Páskamatur ........... Bls. 24
DAUÐI FORSETA. 5. hluti bókar Manchesters Bls. 27
ÚTGEFANDI: HILMIR H.F.
Ritstjóri: Sigurður Hrviðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal.
Blaðamaður: í?"ur Þorlcifsson. Útlitsteikning: Snorri
Friðriksson. Auglýsmgar: Ásta Bjarnadóttir. Dreifing:
Óskar Karlsson.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholt
33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu
kr. 35. Áskriftarverð er 470 kr. ársþriðjungslega, greiðist
fyrirfram. Prentun og myndamót Hilmir h.f.
FORSlÐAN
Fegurðarsamkeppni Vikunnar og Karnabæjar held-
ur áfram, og að þessu sinni birtum við á forsíðu
mynd af þátttakendum nr. 3 og 4. Þær heita
Kristín Waage og Helga Ingibjörg Möller. Myndina-
tók Óli Páll Kristjánsson á Reykjavikurflugvelli.
Manninum mínum fannst að ég ætti
að hætta að vinna, eftir að við giftum
okkur.
Við höfum tvo bíla, tvö sjónvarpstæki,
tvö baðherbergi, hversvegna getum við
þá ekki haft tvennskonar sjónarmið.
Hættu að væla, ég er ekki að fara, ég
ætla bara að fá mér frískt loft.