Vikan - 22.03.1967, Qupperneq 6
Enskar
postulínf lísar
á’vallt
V
I
miklu
órvali
LITAVER SF.
Grensásveg 22—24 (horni Miklubrautar) — Símar 30280 & 32262
____________________________I
íva
LAGFREYÐANDI
HÆGRI AKSTUR OG
SKOÐANAKÖNNUN
Kæri Póstur!
f einum af hinum ótalmörgu
umræðuþáttum íslenzka sjón-
varpsins gat vígslubiskup lands-
ins þess, að tómt mál væri að tala
um fjármál í landi, þar sem ekki
væri hægt að halda vegarspotta
til Selfoss akfærum að vetrar-
lagi, en hins vegar væri hægt að
eyða tugum milljóna í að koma
á hægri handar akstri. Mér þótti
þetta vel og hnyttilega að orði
komizt hjá vígslubiskupinum, og
ég er honum hjartanlega sam-
mála. Ég hef ekki ennþá hitt
neinn bílstjóra, sem er því
hlynntur, að hægri akstur verði
tekinn upp hér á landi. Það gef-
ur auga leið, að svo róttæk breyt-
ing á umferðarmálum okkar eyk-
ur slysahættuna stórlega og eyði-
leggur hið fórnfúsa starf, sem
lögreglan, samtökin Varúð á veg-
um og Félag íslenzkra bifreiða-
eigenda hafa unnið undanfarin
ár í umferðarmálum okkar. Mér
datt í hug, að ekki væri úr vegi,
að Vikan efndi til skoðanakönn-
unar meðal lesenda sinna um
þetta mikilsverða mál. Ég er
sannfærður um, að sú skoðana-
könnun mundi leiða í ljós, að
meirihluti þjóðarinnar er ein-
dregið á móti þessari breytingu.
Að mínu áliti hlýtur að verða
erfitt fyrir ríkið að fylgja ákvörð-
un Alþingis um hægri akstur-
inn, þegar sýnt er, hversu illa
hún mælist fyrir hjá almenn-
ingi.
Virðingarfyllst,
Vinstrisinnaður.
Hægri aksturinn virðist vera
eitt af þeim málum, sem almenn-
ingur er á móti, en þeir sem sér-
þekkingu hafa á þessu sviði
mæla hins vegar með. Þegar
þetta er ritað hefur eitt félag
komið á framfæri þeirri áskorun,
að þjóðaratkvæðagreiðsla fari
fram um hægri aksturinn um
leið og kosið verður til Alþingis
í vor. Kannski bætast fleiri fé-
lög í hópinn, og verður fróðlegt
að fylgjast með, hvort orðið verð-
ur við þessari áskorun.
HARBOUR LITES OG FORD
Kæra Vika!
f 6. tölublaði birtir þú mynd af
tríóinu The Harbour Lites sem
skemmtu hér í Glaumbæ. Á þess-
ari mynd hafa þeir skrifað nöfn
sín. Ég get ekki lesið úr skrift-
inni. Getur þú nú, Vika mín, sagt
mér hvað þeir heita? -—- Viltu
gera s vo vel að kynna Ford
Mustang, allar þrjár gerðirnar,
sérstaklega gíraskiptinguna og
hvað er hægt að fá þá með stóra
vél?
S.K.
Það getur oft reynzt býsna erf-
itt að lesa úr skrift manna, sér-
staklega þegar þeir skrifa nafn-
ið sitt, og það þykir fínast, ef
menn skrifa það þannig, að það
er með öllu ólæsilegt. Eftir því
sem við höfum komizt næst heita
þeir félagar Greene, John Ross
og Johnny, en því miður hefur
okkur ekki tekizt að grafa upp
eftirnafn hans. Ford Mustang er
til í þremur gerðum, hardtop,
fastback og convertible (blæju-
bíll). Það er hægt að fá hann
sjálfskiptan, með 3 gíra kassa og
4 gíra kassa. Vélin getur verið
6 strokka og 120 hestöfl eða 8
strokka og 200, 225, 271 eða 320
hestöfl, og um ýmsa aukahluti er
að velja.
MEXICO
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja um
smá upplýsingar, þar sem þú get-
ur úr ýmsu ráðið. Hefur Mexico
sendiráð í Reykjavík? Ef ekki,
hver annast þá slík störf fyrir
Mexico? Það mun ekki þurfa
vegabréfsáritun til Mexico, en
hvaða bólusetningar þarf?
Með fyrirfram þökk.
M.A.D.
Ræðismaður Mexico á fslandi
er Einar Egilsson, verzlunarmað-
ur, Hjarðarhaga 17, sími 18995.
Þeir sem fara til Mexico þurfa
að láta bólusetja sig gegn kúa-
bólu, taugaveiki og taugaveiki-
bróður — og meira að segja
tvisvar gegn hverri veiki.
AÐ BÚA í BLOKK
Kæra Vika!
Ég réðist í það fyrir fáeinum
árum að kaupa mér litla íbúð í
blokk. Þetta var stórt átak í lífi
mínu, og ég hef orðið að beita
öllum hugsanlegum ráðum til
þess að standa í skilum. En eitt
var það, sem mér láðist að taka
með í reikninginn. í þessari
ágætu blokk er húsfélag, og þeir
6 VIKAN
12. tbl.