Vikan - 22.03.1967, Blaðsíða 21
Hér kemur annar hluti fegurðarsan>keppni þeirr-
ar sem Vikan stendur að, svo og Karnabær, tízku-
fataverzlun unga fólksins. Það er að sjálfsögðu
Karnabær, sem sér um það að klæða stúlkurnar
fyrir myndatökurnar og bæði á forsíðumyndinni og
eins á myndunum sem hér fylgja með, eru þær Helga
Ingibjörg og Kristín í tízkufatnaði frá Karnabæ.
Þessi fegurðarsamkeppni ungra stúlkna verður
ekki mikið í líkingu við hina venjulegu fegurðar-
samkeppni, sem fram fer á ári hverju. Ekki er
ætlazt til að lesendur blaðsins hafi neinskonar at-
kvæðagreiðslu; myndirnar eru meira birtar til
kynningar, en dómnefnd inun fjalla um úrslitin.
I Ö1|R U! 111 m
M m 1D fíD n /e@íih m
I 1 Ja Ud ILÍmImU
O verðlaun eru utanferð til Englands og skóla-
vist þar í þrjá mánuði. Þar er um að ræða sumar-
skóla, sem starfar í júií, júlí og ágúst og þar er
lögð stund á enskunám. Þetta er léttur og skemmti-
legur skóli, sem sameinar kynni við ungt fólk víða
að úr heiminum og gagnsemi þess að læra vel
ensku. ÞESSI VERÐLAUN ERU 35 ÞÚSUND KR.
VIRÐI.
0 verðlaun eru plötuspilari af ágætri gerð og
nokkrar plötur munu fylgja með. Einnig fatnaður
frá Karnabæ.
© verðlaun er úr og fatnaður frá Karnabæ.
Allir þátttakendur verða leystir út með fatnaði frá
Karnabæ.
Hún á heima á Ægissíðu 90 og foreldrar hennar eru hjónin Ágústa og
Gunnar Möller hrl. Helga er hávaxin, 168V2 cm, og grönn, með dökkt hár og
blá augu. Hún stundar um þessar mundir nám í verzlunardeild Hagaskólans,
þar sem bætt er verzlunarnámsgreinum svo sem vélritun og bókfærslu við
venjulegt gagnfræðanám. í vor verður Helga gagnfræðingur frá þessum skóla
en hyggst þó leggja verzlunarfræðin á hilluna þareftir og fremur fara í Hand-
íðaskólann til náms í auglýsingateikningu.
Helga hefur mörg járn í eldinum og átti erfitt með að gera það upp við
sig, hvað hún ætti helzt að leggja stund á, því áhugamálin eru margháttuð
og hæfileikarnir á mörgum sviðum. Hún er til dæmis búin að vera 9 vetur
í dansskóla Hermanns Ragnars og þar áður var hún í ballet. Helga hefur
oft tekið þátt í danssýningum, en auk þess kennir hún börnum dans 1 vetur
þar í skólanum og er ákveðin í því að verða líka danskennari. í sumar
kyggst hún halda utan til London og verða við dansnám. Og næsta vetur
ætlar Helga að hefja reglulegt danskennaranám. Þá getur hún orðið útskrif-
aður danskennari 18 ára, en þesskonar próf verður að taka erlendis.
Helga hefur líka áhuga á tízkusýningum og hefur nokkrum sinnum sýnt og
m.a. komið fram í auglýsingamyndum í íslenzka sjónvarpinu. Hún hefur
yndi af hljómlist, er núna að læra á gítar og lærði að spila á píanó 1 Tón-
listarskólanum og í einkatímum.
Teikning er skemmtilegasta námsgreinin í Hagaskólanum, segir hún. Hún
hefur líka gaman af málanámi og leiklistin hefur verið freistandi, en þó
ekki svo að hún vildi einvörðungu leggja hana fyrir sig. Til þessa hefur
hún einu sinni verið statisti í Þjóðleikhúsinu; það var í „Kraftaverkinu“. í
fyrrasumar vann hún hjá Sjúkrasamlaginu, en sumarið þar áður var hún
í skóla í Danmörku til að læra dönskuna vel. Hún segist stundum fara á
böll í Breiðfirðingabúð, en ekki oft og miklu oftar á bíó.
12. tbi. VIKAN 21