Vikan - 22.03.1967, Side 22
ÞÝZKA LÝÐRÆÐI
HÆTTULEGRI EN
NÝN ASISTARNIR?
Þegar orðið Þjóðverji er nefnt, hættir
mörgum til að setja sér fyrir sjónir fyrir-
ferðarmikinn mann, þungbyggðan og hold-
ugan, hávaðasama hjarðveru með tarfs-
svíra og bjórþrútið andlit og gersamlega
óþolandi fyrir alla nema þá, sem eru svo
til nákvæmlega eins og hann sjálfur: sækj-
ast sér um líkir, saman níðingar skríða.
Þannig er sá dæmigerði Þjóðverji í augum
allmargra, grófur, Ijótur og frekur tuddi,
nokkurskonar nashyrningur í mannheimi.
Guði sé lof fyrir að það er óralangt frá
því að allir Þjóðverjar séu þannig, er engin
hugmynd er með öllu ástæðulaus, og þá ekki
heldur þessi fremur handahófskennda mann-
lýsing. Á það hafa heimsbúar verið ónota-
lega minntir nýlega, er einstaklingur, sem
hún svarar til að verulegu leyti, var gerð-
ur að fjármálaráðherra sambandslýðveldis-
ins Vestur-Þýzkalands og er nú, að yfirsýn
margra viturra manna, voldugasti maður
þess ríkis.
Maðurinn er Franz Josef Strauss, leiðtogi
bæjersku deildarinnar í Kristilega lýðræðis-
flokknum. Sumir hafa prðið hissa á frama
þessa manns, því flestum þykir hann með ein-
dæmum óviðkunnanleg persóna, þar á með-
al Þjóðverjum sjálfum — að Bæjurum und-
anskildum. Þótt þessi bolalegi, skögultennti
stutthöfði sé heldur vinafár víðast hvar í
föðurlandi sínu, þá standa Bæjararnir hans
þeim mun fastar saman um hann. Enda segir
Kudolf Augstein, ritstjóri þessa gagnmerka
vikublaðs Der Spiegel og svarinn andstæð-
ingur Strauss: Nú er það Bæjaraland, sem
stjórnar í Bonn.
Sjálfir eru hinir bjórglöðu garpar fjár-
málaráðherrans alveg ófeimnir við þetta
stórfenglega hlutverk, sem þeim hefur allt
í einu borist upp í hendurnar. — Aðeins
tveir aðilar geta bjargað Vestur-Þýzkalandi
— Guð og Bæjarar, gat nýlega að lesa í
Neue Bildpost, rammkaþólsku áróðursblaði,
sem útbýtt er ókeypis í flestum kirkjum
Suður-Þýzkalands.
En ekki eru alveg allir jafnhrifnir, og þykj-
ast hafa sínar ástæður. Þetta er nefnilega ekki
í fyrsta sinn á öldinni okkar, að Bæjarar
hafa ætlað að bjarga Þýzkalandi, og einn-
22 VIKAN
12. tbl.