Vikan - 26.10.1967, Page 16
EFTIR
EYRflNU
Andrés Indriöason
Ný hæggeng
hljómplata
með Hljómum
Með hinr>i nýju hljómplötu sinni hafa
Hljómar sýnt fram á, að þeir eru í sérflokki
hljómsveita hér á landi. Á þessari plötu eru
12 lög, þar af fimm íslenzk — þrjú eftir
Gunnar Þórðarson, eitt eftir Þóri Baldurs-
son og eitt eftir Rúnar Gunnarsson. Erlendu
Jögin, sem Hljómar hafa valið að flytja, eru
ekki af takari endanum og bera vott um
góðan smekk! Kannski mundu einhverjir
segja, að ekki væri nógu mikið af bít-músik,
en sannleikurinn er sá, að platan gefur alveg
rétta hugmynd um, hvernig músik Hljómar
leika núna. Sú músik er gjörólík þeirri, sem
þeir léku fyrir einu ári. Þá var söngurinn
satt bezt að segja ekki sterkasta hlið hljóm-
sveitarinnar — en nú er annað uppi á ten-
ingnum: músikin er nú í stíl The Beach
Boys og The Hollies, sem þykja eiga á að
skipa beztum söngkröftum. Þessi hljómplata
Hljóma var hljóðrituð í London, og hún er
i stereo.
Það vekur athygli, að í flestum lögum er
leikið á konsertgítara — og virðast rafmagns-
hljóðfærin hafa verið tögð til hliðar í upp-
tökunni! Þá setja flautu- og orgelspil
skemmtilegan svip á mörg laganna. Einnig
má heyra á autohörpu Gunnars Þórðarson-
ar, þessu skemmtilega hljóðfæri af sítarætt-
inni. Þessi fjölbreytni í hljóðfæraskipan gefur
plötunni að sjálfsögðu aukið gildi. Eins og
fyrr segir hefur Gunnar Þórðarson samið
þrjú lög á þessari plötu: „Þú og ég“, ,,Syngdu“
og „Heyrðu mig góða“, en ágæta texta við
þessi lög hefur Ólafur Gaukur samið. Engil-
Framhald á bls. 34
16 VIKAN 43- tbl-