Vikan - 29.02.1968, Blaðsíða 3
r
A
K
VIKU BROS
UESSARI VlkU
UNGA KYNSLÓÐIN 1968 .............. Bls.
PÓSTURINN ........................ Bls.
HVERS VEGNA HLAUPÁR? ............. Bls.
BÓNORÐ Á HLAUPÁRSDAG.............. BIs.
DUGNAÐARSTÚLKA ................... Bls.
HIN VOTA GRÖF .................. Bls.
EFTIR EYRANU...................... BIs.
EKKI VERÐUR ÓFEIGUM I HEL KOMBE).. Bls.
ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN ........ BIs.
TÓPAZ ............................ Bls.
VIKAN OG HEIMILIÐ ................ Bls.
4
6
8
10
12
14
16
18
20
25
38
VtSUR VIKUNNAR:
Rífast menn um rýran kost
rökin naumast þrýtur
meðan úti fjúk og frost
fölar kinnar bítur.
Ýmsir skjálfa, aðrir fá
yl frá heitum konum
öðruvísi áður brá
íslands frægu sonum.
Lagzt er enn á gætt og glugg
gagnstætt manna lögum
kuldinn víða kveikir ugg
kemur að skuldadögum.
ÞAÐ STÓÐ í BLAÐINU
Framsóknarmenn lýsa yfir ánægju sinni með núverandi ástand
í fjármálunum í leiðara Tímans 15. febrúar sl., en þar segir
feitletrað: „Við skulum þess vegna, Framsóknarmenn, hafa
það hugfast, að „hollur er heimafenginn baggi“.“
A
INffSTU
FORSÍÐAN:
Halldór Pétursson teiknar forsíðuna í þetta sinn í tilefni af
hlaupársdeginum, en nokkurt efni þessa blaðs er helgað þeim
merkisdegi. Á mynd Halldórs er hlaupársdagurinn í líki bald-
ins tánings, sem ryður sér á milli 28. febrúar og 1. marz.
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson.
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Þorvalds-
dóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, aígreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 40,00. Áskriftarverð er 400 kr.
ársfjórðungslega, eða 750 kr. missirislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst.
f næstu viku hefst fegurðar-
samkeppni Vikunnar og
Karnabæjar, Unga kynslóðin
1968 og verða þá birtar mynd-
ir og viðtöl við fyrstu tvo
þátttakendur. Þessi fegurðar-
samkeppni var haldin í fyrsta
skipti í fyrra og þótti takast
mjög vel. Alls verða sex kepp-
endur kynntir í Vikunni, en
að lokum verður haldin
skemmtun í Austurbæjarbíói,
þar sem stúlkumar koma
fram og valinn verður fulltrúi
ungu kynslóðarinnar 1968.
f sumar verður kosinn nýr
forseti íslands. Menn eru þeg-
ar fyrir nokkru famir að
bollaleggja hverjir komi til
greina sem líkleg forsetaefni
og hafa margir verið nefndir.
Vikan gerði nýlega skoðana-
könnun meðal almennings um
forsetakosningarnar. Við
hringdum í 250 símanúmer
valin af handahófi og lögðum
fyrir fólk svohljóðandi spurn-
ingu: Hver óskið þér að verði
næsti forseti íslands? Niður-
stöður könnunarinnar birtum
við í næsta blaði.
Síðari hluta janúar fór hóp-
ur blaðamanna og forstjóra
ferðaskrifstofa í boðsferð alla
leið til Egyptalands. Með-
rilstjóri Vikunnar, Gylfi
Gröndal, var meðal þátttak-
enda og í næsta blaði skrifar
hann fyrstu grein sína um
ferðina. Hún nefnist: Veröld-
in óttast tímann, en tíminn
óttast pýramídana.
Tvær smásögur verða í
þessu blaði, önnur sakamála-
saga úr safni Alfreds Hitch-
cocks. Hún nefnist Tóbaks-
bindindi og fjallar um eigin-
konu, sem vill láta mann sinn
hætta að reykja. Hún er sann-
færð um, að reykingarnar
verði hans bani, og spá henn-
ar rætist — með afar óvenju-
legum hætti.
9. tw. VIKAN 3