Vikan - 29.02.1968, Blaðsíða 48
NÆSTKOMANDI mánudag verður
flutt fyrsta íslenzka leikritið, sem
samið er fyrir sjónvarp, Romm
handa Rósalind eftir Jökul Jakobs-
son.
Hlutur leiklistarinnar er enn lítill
að vöxtum í íslenzka sjónvarpinu,
enda ærið kostnaðarsamt að þjóna
þeirri ógætu gyðju í þessu undra-
verða tæki. Æfa þarf sjónvarpsleik-
rit jafn oft og vel og leiksviðsverk.
Hins vegar munu allir landsmenn
geta horft í einu á frumsýningu sjón-
varpsleikja áður en langt um líður.
Sjónvarpið hefur þrisvar áður
sýnt leikþætti með íslenzkum leik-
endum, en þau verk höfðu öll verið
sýnd á sviði. Fyrst var fluttur ein-
þáttungur Matthíasar Johannessens,
Jón gamli, sem Þjóðleikhúsið sýndi
í Lindarbæ; þá kom einþáttungur
fró Leikfélagi Reykjavíkur, Nakinn
maður og annar í kjólfötum eftir
Dario Fo, og loks gamanleikurinn
Frúin sefur, sem Leikfélagið sýndi
á skemmtun ( Austurbæjarbíói.
VIKAN spjallaði örstutta stund
við Jökul Jakobsson um fyrsta ís-
lenzka sjónvarpsleikritið. Hann var
staddur niðri í Iðnó, þar sem verið
var að æfa nýjasta leiksviðsverk
hans, Reykjavík 37. Jökull fylgist
ævinlega með hverri einustu æfingu
á verkum sinum. Hann hafði því
lítinn tíma aflögu þetta kvöld, en
ræddi við okkur stundarkorn milli
þátta.
— Það er orðið nokkuð langt síð-
an ég byrjaði að velta fyrir mér
efni þessa leikrits, sagði hann. Það
eru til margar gerðir af því. En
lokagerðina skrifaði ég með ís-
lenzka sjónvarpið ( huga og tók til-
lit til allra aðstæðna á þeim bæ.
Leikritið gerist á einu sviði og per-
sónur eru fáar.
— Hvað eru þær margar?
— Þær eru fjórar, tvær aðalper-
sónur og tvær aukapersónur. Aðal-
hlutverkin eru skósmiður og bækluð
stúlka. Þetta er gamall skósmiður.
Það er farið að halla undan fæti
hjá honum; fólk er hætt að koma
með skóna sína til hans. Hann lum-
ar á rommflösku, sem hann felur
og hefur sér til hugarléttis, — til að
ylja sér ofurlítið. Leikritið gerist á
þeim tíma, sem það er flutt á, 45
mtnútum, og fjallar um þennan skó-
smið og bækluðu stúlkuna,- hverful
kynni þeirra eina dagstund; minn-
ingar hans og dagdraumar hennar
fléttast saman. Auk þess koma lítil-
lega við sögu eiginkona skósmiðs-
ins og einn viðskiptavinur.
— Hverjir eru leikendurnir?
— Þorsteinn Ö. Stephensen leikur
skósmiðinn, enda samdi ég hlut-
verkið með hann í huga. Hlutverk
stúlkunnar leikur ungur leiknemi,
sem aldrei hefur komið opinberlega
fram fyrr. Hún heitir Anna Kristín
Arngrímsdóttir og er í Leikskóla
Leikfélags Reykjavíkur á kvöldin,
en vinnur ( Pennanum á daginn.
Konu skósmiðsins leikur Nína
48 VIKAN
9. tbl.