Vikan


Vikan - 29.02.1968, Blaðsíða 18

Vikan - 29.02.1968, Blaðsíða 18
•i: EKKt VERPIIR OFE FIMM ÓTRÚLEGAR EN SANNAR STRfÐSFRÁSAGNIR AF MÖNNUM SEM í SANNLEIKA VORU DAUÐANS MATUR - EN ERU ÞÖ BRÁÐLIFANDI ENN TEIKNINGAR: BALTASAR Maðurinn, sem flaug tveim flugvélum samtímis Leonard Fuller yfirflugmaður hall- aði sér aftur ó bak í flugmannssæt- inu, hendur hans héldu öruggu taki um stiórnstöngina. Hann litaðist um þar sem hann sat í stjórnklefanum. Þetta var frábær flugdagur ekki ský- hnoðri sjáanlegur á himninum. Þrjú þús. fetum neðar var yfirborð Nýja Suður-Vels. Þar mátti til vinstri hand- ar greina smáborgina Brocklesby. Fuller leit til félaga síns, lans Sinclairs yfirflugmanns, og glotti við. Þetta var líf í lagi. Eftir eina eða tvær vikur í viðbót yrðu þeir orðin fullgild flugáhöfn og bæru stoltir vængina, sem saumaðir yrðu í einkennisbúninga þeirra ofan við vinstri brjóstvasa. Skammt frá Avro Anson-vél Full- ers, til hægri og lítið eitt lægra, var önnur Anson, sem virtist hanga hreyfingarlaus í loftinu. Henni stjórnaði J. Hewson yfirflugmaður, og var H. G. Fraser aðstoðarflug- maður hans. Þetta var að morgni dags tutt- ugasta og níunda september 1940, og það voru aðeins fáar mínútur síðan flugvélarnar tvær höfðu lyft sér öskrandi frá velli Konunglega ástralska flughersins við Wagga. Þetta var ekki annað en venjulegt æfingaflug. Flugmönnunum hafði verið fyrirskipað að æfa flug í þéttri fylkingu. Aðeins tvær vikur eða svo í við- bót, hugsaði Fuller, og þá verður þessum langa og þreytandi æfinga- tima lokið. í Englandi var Konunglegi flug- herinn brezki upptekinn í baráttu upp á líf og dauða við þýzka Luftwaffe. Fuller brann í skinninu eftir að komast ( hóp landa sinna, sem þegar voru í bardaganum. Hann litaðist um ó ný. Til hægri var ekkert að sjá. Hann leit hvat- lega til vinstrl. Ekki heldur þieim megin sást tangur eða tetur af Anson Hew- sons. Þá heyrðist allt í einu hræðilegt, ærandi brak og flugvél Fullers nötr- aði enda á milli. Sætisbeltin komu í veg fyrir að flugmennirnir hrykkju úr stólunum. Óhugnanlegt, urgandi 18 VIKAN 9-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.