Vikan - 29.02.1968, Blaðsíða 4
í næsta blaði hefst kynning á þátttakendum í keppninni um titilinn Fulltrúi unga fólksins 19GS. Þetta er í annað sinn,
sem slík keppni er haldin hér á landi, en það eru Vikan og Karnabær, tízkuverzlun unga fólksins, sem fvrir keppninni
standa. í fyrra fór keppnin mjög vel fram og var öllum, sem þar áttu hlut að máli, til hins mesta sóma, og verður nú
ekkert til sparað, að ekki fari síður í ár. Þátttakendur verða kynntir í þremur næstu blöðum Vikunnar, tveir og tveir
í einu, en síðan munu stúlkurnar koma fram á skemmtunum í Austurbæjarbíói 8. og 5. apríl og verða úrslit keppn-
innar kynnt síðara kvöldið. Myndirnar á þessari síðu eru frá í fyrra og sýna Fulltrúa unga fólksins 1907, Kristínu
Waage (að ofan), en þar til hliðar er Valgerður Dan, leikkona, að krýna hana að úrslitum kunngerðum. Að neðan er
Kristín á milli Ástu Sigurðardóttur, sem varð önnur, og Kolbrúnar Jónsdóttur, sem varð þriðja.