Vikan - 29.02.1968, Side 6
Rowentet
STRAUJÁRN
GUFUJÁRN
SJÁLFVIRK BRAUÐRIST
Djúli^uSupoHul HEIMSÞEKKT VÖRUMERKI. FÆST í NÆSTU RAFTÆKJA- VERZLUN
v vaÍut & Co. 1 ■ Snorrabraut 44 - Slmi 16242
HIMNALJÓS í HEIMAVIST.
Kæra Vika!
Ég skrifa þér í þeirri von
að þú getir gefið mér ein-
hverjar ráðleggingar. Ég er
í heimavistarskóla, og við
erum tvær stelpur saman í
herbergi. Við þekktumst
ekkert, þegar við komum í
skólann fyrst. Frá því
fyrsta hefur þessi stelpa
sýnt mér einhverja óskilj-
anlega andúð og reynir oft
að særa mig. Mér finnst
þetta undarlegt, því að ég
veit ekki til, að ég hafi
gert henni neitt. Stundum
finnst mér hún líta á mig
eins og gólftusku. Hún
hendir fötunum af sér á
rúmið mitt, veskinu sínu,
tímaritum, handavinnunni
sinni og mörgu fleiru. Ef
hún þarf endilega að henda
þessu dóti sínu einhvers
staðar í staðinn fyrir að
setja það snyrtilega inn í
skáp, getur hún þá ekki
hent því í sitt rúm? Manni
getur sárnað að koma inn
í herbergið sitt og sjá rúm-
ið sitt fullt af alls konar
dóti, sem maður á ekkert
í. Svo segir hún, að ég
nenni aldrei að taka til í
herberginu, en það geri ég
þó miklu oftar en hún. Við
aðra hérna í skólanum er
hún ekkert nema engilblíð-
an og því ákaflega vinsæl.
Oft dauðlangar mig að taka
hana ærlega í gegn og
hundskamma hana, því að
ég fæ ekki skilið þessa
framkomu hennar. En ég
lief bara ekki kjark í mér
til þess, því ég veit hún
myndi alveg tryllast og
segja skólafélögum okkar,
að allt sem ég segði væri
tóm lygi. Og hennar orðum
yrði áreiðanlega trúað, því
að hún hefur spilað sig út
sem eitthvað himnaljós og
hún talar ekki illa um mig
svo aðrir heyri.
Segðu mér nú, elsku Vika
mín, hvað ég á að gera, því
mér fellur þetta svo illa.
Vonast eftir svari sem fyrst.
Með fyrirfram þakklæti.
Sigga.
Taktu hana ærlega í
gegn. Þa® er eina ráðið.
Hún veit upp á sig skönun-
ina og lagast vonandi, ef
þú tekur hana nógu ræki-
lega í karphúSsið. Við
myndum ekki spá þvi, að
hún trylltist og færi að
tala um þetta við aðra. Við
spáum því, að hún lyppist
niður og verði bæði bljúg
og blíð við þig lengi á eftir.
SKOLLANS SPURNINGAR.
Kæri Póstur!
Ég hef skoðað og lesið
Vikuna síðan ég man eftir
mér, og ekkert hef ég fund-
ið að hjá ykkur enn þá.
Nú er kominn tími til aÖ
ég fái að skrifa nokkrar
línur í blaðið (það er að
segja ef þið birtið þetta).
Mig langar til að biðja
þig að svara fyrir mig fjór-
um spurningum ef þú get-
ur. Og ég efast ekki um að
þú getir það.
1. Hvort er það kvenmað-
ur eða karlmaður, sem
svarar bréfunum í Vikunni
undir nafninu „Póstur“?
2. Hvert er heimilisfang
blaðsins Heimskringla, sem
gefið er út í Bandaríkjun-
um?
3. Hver eða hverjir verða
í framboði í forsetakosning-
imum, þegar að því kemur?
4. Er ekki þreytandi að
svara öllum þessum bréf-
um, sem þú færð; ég tala
nú ekki um öll bréfin, sem
táningar senda og spyrja
um ást og þvíumlíkt?
Með fyrirfram þökkum.
Ég lofa að vanda skriftina
og stafsetninguna í fram-
tíðinni.
Skolli.
Þetta er svolítið ósam-
stæður og einkennilegur
spurningalisti og tvær
spurninganna ærið per-
sónulegar fyrir Póstinn.
Hann er ekki vanur að
gaspra um sjálfan sig við
ókuimuga, en samt skulum
við glíma við þessar spum-
ingar, af því að þér hefur
alltaf þótt svo vænt um
Vikuna, jafnvel áður en þú
gazt farið að lesa liana.
1. Karlmaður. En hann
hefur sér til fulltingis sér-
fræðinga á hverjum fingri
og sumir þeirra eru konur.
Annars eru karlmenn
miklu betur að sér í
6 VIIÍAN
9. tbl.