Vikan - 29.02.1968, Síða 19
KKIMIHEL KOMID
hl]óð í rifnandi málmi fyllti stjórn-
klefann.
Það var ekki aðeins að Fuller
hefði misst s]ónar á Hewson, held-
ur hafði sá fyrrnefndi einnig horfið
úr augsýn hins. í sama bili varð
Hewson litið upp og sá þá stóran
dökkan skugga yfir stjórnklefanum
hjá sér. Þetta var grár belgurinn
á flugvél Ansons, og hann var ó-
þægilega nærri.
Áður en Hewson fengi nokkuð
að gert, var allt um seinan. Hinn
Ansoninn rakst á glerköpul stjórn-
klefans, sem molnaði mélinu
smærra.
Sem í leiðslu horfði Hewson á
hvirflandi hreyflana á flugvél Full-
ers, sem plægðu flögur úr vélarhlíf
ihans.
Það var ekki nóg með að flug-
vélarnar hefðu rekizt á, heldur-
höfðu þær einnig festst saman.
Þannig tóku þær nú að hrapa (
hægum gormsnúningi. Hewson og
Fraser ruku til handa og fóta, settu
á sig fallhKfarnar og skutluðu sér
svo út í loftið. Fallhlífarnar breidd-
ust út eins og blóm móti sólu og
þeir náðu heilu og höldnu til jarð-
ar.
Þegar þeir Fuller og Sinclair í
efri flugvélinni náðu sér Ktilsháttar
eftir ofboðið, sem árekstrinum
fylgdi, sáu þeir hreyfla sinnar flug-
vélar plægja flögur úr málmhúð
hinnar, og brak og drasl úr henni
var á flugi allt í kring. Svo stöðvuð-
lust báðar vélarnar og hreyflarnir,
:sem orðnir voru bognir og brengl-
<aðir líka.
Það var enginn tími aflögu. Þeir
voru komnir ískyggilega nærri jörðu.
,,Út með þig!" hrein Fuller og
afspennti sætisbeltin. En svo flaug
honum nokkuð nýtt í hug. Enda þótt
báðar vélarnar í hans flugvél hefðu
stöðvast, heyrði hann stöðugt há-
værar drunur undir fótum sér. Á
því gat ekki verið nema ein skýr-
ing — vélarnar ( neðri Ansoninum
voru enn í gangil
Fuller lét fallast niður ( sætið á
ný og fór að glíma við stjórntækin.
.Þau voru ekki úr hófi liðleg, en
Framhald á bls. 29.
„Kafbátur þrír fimm núll, fimm
mílur! Stór!" Kall radarmannsins
endurómaði í heyrnartækjum flug-
stjórans, John Cruikshanks, er
hann stýrði stóra Catalina-flugbátn-
um niður í gegnum grátt mistrið,
sem huldi sjóinn.
Dagurinn var seytjándi júlí 1944.
Þeir höfðu ( nokkrar langar og
leiðinlegar klukkustundir verið á
hringsóli norðurundir heimskauts-
baug, norðaustur af íslandi. Þetta
var einsemdarlegur leiðangur í óra-
fjarlægð frá hlýjunni og þægind-
unum í bækistöð tvöhundruðustu og
fyrstu skvadrónu við Sullon Voe á
Hjaltlandseyjum. Cruikshank hafði
flogið marga slíka leiðangra hing-
að í árangurslausri leit að þýzkum
kafbátum, sem alltaf voru lagnir
að smeygia sér undan.
Nú höfðu þeir félagar loksins
fengið sitt tækifæri. Cruikshank vissi
að engin skip bandamanna voru
á þessu svæði og flekkurinn á rad-
arskerminum gat þv( ekki verið
annað en þýzkur kafbátur.
„Hver maður á sinn stað!"
Á fáum sekúndum hafði öll á-
höfnin komið sér fyrir ( bardaga-
sætum sínum. Cruikshank hélt stór-
um flugbátnum stöðugum er þeir
dýfðu sér. [ átta hundruð feta hæð
komu þeir niður ( mistrinu og sáu
gráan, þungan sjó fyrir neðan sig
— og þarna, beint framundan, var
kafbáturinn.
Hann var af einni nýjustu gerð-
inni og þrælvopnaður þrjátíu og
sjö og tuttugu millimetra loftvarna-
byssum og þungum vélbyssum.
Cruikshank vissi að þýzki skip-
stjórinn myndi verða kyrr á yfir-
borðinu og berjast.
í hundraS feta hæð rétti Cruik-
shank flugbátinn af og þandi hann
með öskrandi hreyflum áleiðis að
markinu. Hávaðinn varð ærandi er
Harbison flugliðþjálfi hóf skothríð
með trjónubyssunum. Kúlurnar
skullu þvers og kruss á stálverju
kafbátsins.
Cruikshank barðist við að halda
Catalínunni stöðugri er hún hnykkt-
ist til við loftþrýstinginn frá sprengi-
kúlum óvinarins, sem sprungu allt
um kring. Að baki hans hélt sigl-
ingafræðingurinn, J. C. Dickson flug-
liðsforingi, um djúpsprengjugikkinn.
Hávaðinn af skothríðinni magn-
aðist um allan helming er miðskytt-
urnar Appleton og Fidler, fengu
færi á kafbátnum.
Nú! Dickson þrýsti á gikkinn —
en ekkert gerðist.
„Flugstjóri!" hrópaði hann.
„Sprengjurnar féllu ekkil"
„Til hægri!" æpti Cruikshank, ',við
verðum þá að steypa okkur afturl"
Vængbroddurinn skar öldufaldana
er hann sneri Catalínunni á krappri
hægri beygju. Flugbáturinn sneri nú
belgnum að óvininum og var þá
auðvelt skotmark. Kúlnahrina risti
sundur aftari eldsneytisgeyminn.
Cruikshank flaug upp á við að
nýju og beygði svo til nýrrar árás-
ar.
Þá hæfði sprengikúla belg flug-
vélarinnar, reif sig innúr, sprakk og
þeytti líflausum líkama Dicksons
aftur ( eldsneytisgeyminn. í sömu
svifum varð aftari hluti flugvélar-
skrokksins allur ( báli.
fskalt loft fyllti flugvélina er
sprengikúlan sprakk fyrir framan
nefið, splundraði vindhlffinni og
þeytti John Garnett, aðstoðarflug-
manninum, úr sætinu. Frammi í nef-
inu öskraði Harbison af kvölum er
rauðglóandi kúlufKsar nístu fótleggi
hans. Appleton reikaði um blindað-
Framhald á bls. 33.
9. tbi. VIICAN 19