Vikan


Vikan - 29.02.1968, Side 20

Vikan - 29.02.1968, Side 20
EKKIVEPDUR ÓFEIGUIM Í HEL KOMID SMS Þjóðverji númer þrettán Innýfli Michaels Gladychs herpt- ust saman af beiskum ótta er kúlurnar rifu sig í gegnum vængina og eldsneytisgeyminn ó gömlu Mor- ane-orrustuflugvélinni hans. í spegl- inum fyrir framan sig sá hann rauS skotleiftrin kringum gula trjónu ó- vinarins, sem var af gerðinni Mess- erschmitt 109, er hann nálgaðist til að gera út af við bráðina. Morane- vélin skalf er kanónukúla sprakk í stélinu og hætti að láta að stjórn. Flugvélin var nú varnarlaus og á valdi Þjóðverjans. Gladych lok- aði augunum og beið dauðans . . . Hann var Pólverji. í september 1939 hafði hann um þriggja vikna skeið barizt frækilegri en vonlausri baráttu í háloftunum yfir Póllandi, þegar hinn aumkunarlega smái, pólski flugher reyndi að stemma stigu fyrir ofurefli þýzka Luftwaffe. Þegar vörn pólska hersins brast, komst hann undan til Rúmeníu og þaðan til Frakklands, og þar hélt hann baráttunni áfram í franska flughernum. í þeim flugher var hann ennþá þennan dag, þriðja júní 1940, er hann húkti í flug- mannssæti Morane-orrustuflugvélar sem Messesschmitt var að skjóta í mask. Skyndilega dró úr hinni banvænu skothríð. Gladych opnaði augun og leit upp. Óvinurinn hafði dregið hann uppi og flaug nú samsíðan honum, svo að aðeins fáein fet voru á milli vængbroddanna. Gladych sá hvert smáatriði: and- lit flugmannsins sem glotti til hans undan flughjálminum, rákirnar á flugvélarskrokknum í blágráum felulit, svarta og hvíta krossana og fleira en það. Talan 13 var máluð stórum stöfum á eldsneytisgeyminn rétt neðan við flugmannsklefann. Þá skeði það ótrúlega: þýzki flugmaðurinn veifaði. Hann veifaði og ruggaði flugvél sinni í kveðju- skyni, beygði síðan frá og upp í sumarmóðuna. Gladych var furðulostinn, er hann baxaði til flugvallar síns á stór- laskaðri Morane-vélinni. Hann hafði fulla ástæðu til að hata Þjóðverja; þýzk sprengja hafði banað fjöl- skyldu hans í Varsjá. En nú hafði þýzkur flugmaður haft hann ger- samlega á valdi sínu — og gefið honum grið! Þesskonar háttalag hafði Pólverjinn talið óhugsandi úr þeirri átt. Kannski var gátan ekki svo erfið sem hún virtist í fljótu bragði. Ef til vill hafði Þjóðverjinn verið orð- inn skotfæralaus .... Á næstu vikum óðu Þjóðverjar yfir Frakkland og Gladych gerðist fljótlega flóttamaður einu sinni enn. í þetta sinn lá leiðin til Englands. Atvik þetta seig smám saman niður í undirmeðvitund hans og var hálfgleymt er það rifjaðist upp að nýju í marz 1942. Gladych, sem þá var orðinn flugliðsforingi og staðsettur í Manston i Suður-Eng- landi, kom inn á barinn í matsal liðsforingjanna og heyrði hóp flug- manna ræðast við um loftorrustu, sem háð hafði verið yfir suður- ströndinni nokkrum dögum fyrn. Spitfire-flugvélarnar frá Manston höfðu náð saman við þýzkar orr- ustu- og sprengjuflugvélar, sem komnar voru til skyndiárásar á Southend. Einn flugmannanna tæmdi kollu sína í botn og skellti henni á borð- ið. ,,Ég hélt að þetta yrði mitt síð- asta," lýsi hann yfir. ,,Ég var ný- búinn að sprauta eina 109 þegar mér varð litið í spegilinn — og er þá ekki annar andskotans þýzkari kominn aftan að mér. Það kvikn- aði í hjá mér og ég ætlaði að koma mér út, en gat þá ekki lyft hlífinni. Þá átti ég ekki annars kost en sitja og bíða eftir endalokunum. En . . . hvað haldið þið að hafi komið fyrir? Þjóðverjinn kom á hlið við mig Framhald á bls. 33. Gæti hann ekk Hægt og með harmkvælum kom Alexei Maresjef lautinant aftur til meðvitundar. Þegar hann opnaði augun, varð fyrir þeim smáblettur af fölum himni, sem grillti í furu- toppana hátt uppi. Maresjef vék höfðinu til með erfiðismunum, en sá ekkert um- hverfis nema snjó og furutré. I fyrstu var honum hulið hversvegna hann lá þarna á hryggnum í snæ- þöktum skógi. Svo vitjaði minnið hans á ný. — Þetta var í apríl 1942. Hann hafði á Jak-orrustuflugvél sinni farið í leiðangur með sveit 11 júsjín- sprengjuflugvéla til árásar á flug- völl Þjóðverja við Staraja Rússa í Vestur-Rússlandi. Hann minntist þess að hafa skotið niður tvær stór- ar flutningaflugvélar af gerðinni Junkers 52, sem reynt höfðu að taka sig upp af flugvellinum. Þá kom allt í einu heil skriða af þýzkum orrustuflugvélum af gerð- inni Messerschmitt 109 eins og þruma úr heiðskíru lofti og skaut rússnesku flugsveitina í mask. Kúlur rufu sig í gegnum orrustu- flugvél Maresjefs. Vélin hóstaði og drap á sér og flugvélin hrapaði í 20 VIKAN 9-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.