Vikan - 29.02.1968, Page 36
Á siöunda degi brotnaði hækjan
og Maresjef féll endilangur í snjó-
inn. Hann reyndi að standa upp,
en gat ekki. Ekki lét hann sér samt
til hugar koma að gefast upp.. Gæti
hann ekki gengið, þó var að
minnsta kosti hægt að skríða. —
Stundum, þegar hann varð of
þreyttur í handleggjunum til að
draga sig ófram á þeim, lagðist
hann endilangur og velti sér.
Á áttunda degi kom hann að
líki af þýzkum hermanni. t að var
klætt upplituðum druslum af SS-
einkennisbúningi, og hjá þvi lá rýt-
ingur. Með rýtingi þessum tókst
Maresjef að drepa broddgölt, sem
hann síðan át eins og hann lagði
sig, líka bjór og bein.
Dagur leið í viðbót. Og annar
dagur. Á morgni nítjánda dags
píslarferðarinnar var máttur Mare-
sjefs nær algerlega þrotinn. Ekkert
virtist auðveldara en að leggjast í
snjóinn og sofna. Ekkert virtist auð-
veldara....
En skotþrumurnar kölluðu hann
enn.
Rússneskir skæruliðar fundu hann
fáeinum klukkustundum síðar. Þeir
tóku tærðan líkama hans varlega
upp á milli sín og báru hann til
felustaðar síns í helli einum. Þrem-
ur dögum síðar var Maresjef kom-
inn á hersjúkrahús í Moskvu. Þar
varð að taka af honum báða fæt-
ur fyrir neðan hné, og óskaði Mare-
sjef þá að hafa dáið í skóginum.
En þá las hann um rússneskan
flugmann í fyrri heimsstyrjöld, sem
flaug þótt hann hefði gervifót. Von-
ir hans vöknuðu á ný. Og innan
skamms var hann á ný kominn á
loft, búinn út með „tin"fótum.
Þegar stríðinu lauk, hafði hann
skotið niður fimmtán óvinaflugvél-
ar og var fyrir það sæmdur gull-
stjörnu sem Hetja Sovétríkjanna. —
Er sú viðurkenning hin æðsta er
Rússar veita mönnum fyrir frækn-
leik.
☆
Til jarðar í logandi...
Framhald af bls. 21.
ina mína. Þið haldið í strengina. Ef
ég dett, ættuð þið að geta dregið
mig inn aftur."
Hinir kinkuðu kolli og Jackson
kippti í þanstrenginn. Samstundis
voru þeir komnir á kaf í silki- og
strengjabendu. Jackson ýtti þessu
til hliðar, tók traustataki f brúnina
á opinu, vó sig upp og tróð höfði
og herðum út. Honum fannst sem
hann væri sleginn með ísköldum
hamri, er loftstraumurinn — hraði
tvö hundruð mílur á klukkustund —
skall á honum og mæddi um hann.
Með erfiðismunum vék hann til
höfðinu til að sjá vænginn, sem var
fyrir neðan opið og lítið eitt fyrir
aftan það. Eldurinn logaði skær í
dimmunni.
Jackson tróð sér með erfiðismun-
um út um opið, og Toft og Higgins
héldu traustataki í falllhffarstreng-
ina. Þungi loftflóðsins klemmdi
36 VIKAN 9-tbl-
Jackson flatan að svörtum flugvél-
arskrokknum er hann mjakaði sér
aftur með að vængnum. Toft og
Higgins gáfu strengina hægt út og
fylgdust spenntir með félaga sín-
um, sem varði sér öllum til að ná
handfestu. Þá var þa? að Toft kom
í hug að þetta var þrítugasti og
fyrsti árásarleiðangur Jacksons. —
Hann hafði huft rétt til aS hætta
eftir þrjátíu leiðangra, en hafSi
boSizt til aS fara þessa ferS „til aS
reyna heppni sína".
Annað var það líka. Rétt áður en
þeir lögðu af stað, hafði Jackson
frétt að kona hans hefði fætt hon-
um son — fyrsta barnið þeirra.
Ef nokkur maður hafði allt að
lifa fyrir, þá var það Norman Jack-
son. Og nú hékk hann þarna í
svartnættinu og eini tengiliður hans
við lífið voru grannir fallhlífar-
strengirnir. . . .
Skyndilega sáu þeir Toft og Higg-
ins sér til skelfingar að Jackson
missti tökin og rann niSur frá flug-
vélarskrokknum. Undir honum hálf
míla af biksvörtum geim. Hann
teygSi æSislega út kreppta fing-
urna eftir handfestu — og náSi
henni í loftgatinu framan á vængn-
um. ÞaS var heppni sem gekk
kraftaverki næst.
Vindurinn rykkti í hann og blés
sviðandi logum frá vélinni að Ifk-
ama hans. Hann fálmaði ' eftir
slökkvitækinu — en ekki hafði hann
tyrr náð því en veðurofsinn sleit
það úr höndum hans og hvirflaði
því niður í sortann.
Skyndilega tók Lancasterinn
krappa beygju. Jackson hélt dauða-
haldi í loftopið og heyrði vélbyssur
gelta úti í myrkrinu. Nætur-orrustu-
flugvélin var komin aftur. Málmflís
nísti bak Jacksons og önnur stakkst
inn í hægri fót hans. Eldurinn við
vélina magnaðist nú um allan helm-
ing. Logarnir umluktu Jackson og
honum var heitt eins og í ofni.
Kraftar hans voru á þrotum. Það
var farið að réttast úr fingrunum,
sem héldu í loftopið. Hægt og hægt
dró rokið hann aftur fyrir vænginn.
Þá greip vængsogið hann af full-
um krafti og þeytti honum út f
geiminn. Hann sá flugvélarstélið
þjóta framhjá — aðeins fáa þum-
lunga ofanvið andlit hans — og á
samri stund varð líkami hans gagn-
tekinn slftandi sársauka. Flugvélin
dró hann á eftir sér á tvö hundruð
mflna hraða á klukkustund, og eld-
urinn var kominn í fallhlífarstreng-
ina.
En á næsta andartaki var hann
laus. Toft og Higgins höfðu gert
fyrir hann það eina, sem hægt var
úr því sem komið var — troðið fall-
hlífinni út um neyðarlúguna.
Svo féll Jackson eins og steinn
niður í gegnum geiminn. Fallhlífin
hans var í Ijósum loga og aðeins
opin til hálfs. Föt hans loguðu einn-
ig. Hann leit út eins og kyndill, þar
sem hann hrapaði áleiðis til jarðar.
Hann togaði í brennandi streng-
ina og tókst að opna fallhlífina til
fulls, sér til mikils léttis. Skömmu
síðar skall hann á jörðina með
miklum dynk og brotnaði þá um
annan öklann. Hendur hans voru
svo skaðbrenndar að þær voru
gagnslausar með öllu. Hann lá þar
sem hann var kominn unz dagur
rann,- þá skreið hann til næsta
þorps. Þar tóku Þjóðverjarnir hann
til fanga. Eftir að hafa hlotið frem-
ur hrottalega meðferð hjá Gestapo
og þorpsbúum, sem köstuðu grjóti
í þennan „Englischer Terrorflieger"
var hann sendur á sjúkrahús fyrir
herfanga.
Þar heyrði hann sögulokin. Lan-
casterinn hafði hrapað og fjórir af
áhöfninni, þar á meðal Toft og
Higgins, höfðu stokkið út í fallhlff-
um og bjargast. Hitt var sorglegt
að tveir höfðu látið lífið, Fred Mif-
flin og Hugh Johnson, skytta.
Það sem eftir var stríðsins dvaldi
Jackson í þýzkum fangabúðum, og
var þar enn þegar landar hans
hækkuðu hann í tign fyrir hugrekk-
ið sem hann hafði sýnt, þegar
kviknaði í flugvél hans.
Ári eftir þann atburð var Jack-
son heima á ný. Þá sá hann son
sinn í fyrsta sinn og var sæmdur
Viktoríukrossi. Munu fáir hafa unn-
ið betur fyrir þvf heiðursmerki.
Fyrir stríðið hafði hann verið
pípulagningamaður, en sökum
brunasáranna á höndunum var hon-
um ómögulegt að taka þá iðn upp
á ný. Nú er hann þvf umferðasali.
☆
NefniS þiS verSiS...
Hárgreiðslustofa Dísu
AUGLÝSIR Fermingargreiðslur
teknar á sunnudögum
yfir fermingartímann.
*
Munið að við höfum
opið á fimmtudögum
til kl. 10.
*
Brúðargreiðslur
eftir pöntunum.
*
Kaffiveitingar.
*
Sér kunnátta í meðferð
á háralitun og
hártoppum.
PANTIÐ í TÍMA.
Hárgreiðslustofan
GRENSÁSVEGI 3 - STMI 8 33 66
Framhald af bls. 24.
árunum varð gerðin Lockheed
Constellation, sem braut blað í
flugsögunni.
En ekki voru allar hugmyndir
Hughesar jafn snilldarlegar. — í
stríðinu bauðst hann til að
byggja risaflugbát til herflutn-
inga — hann átti að vera úr tré
og geta borið sjö hundruð her-
menn. Einn slíkur flugbátur var
í sannleika byggður, og Hughes
sannaði eitt sinn flughæfni hans
með því að fljúga honum í eigin
persónu smáspotta. En þegar til
kom, þótti hann ekki heppilegur
til notkunar í stórum stíl eða
f j öldaf ramleiðslu.
En verksmiðjan, þar sem flug-
báturinn var byggður, Hughes
Aircraft, hefur síðan komið að
betri notum. Hughes fékk áhuga
á geimferðum og nú er þetta
fyrirtæki í röð þeirra tíu í Banda-
ríkjunum, sem mest hafa lagt af
mörkum af tæknilegum hlutum
til geimferðaáætlunarinnar.
Það var þó áfram flug innan
gufuhvolfsins, sem Hughes hafði
mestan áhuga á. Hann lagði slík-
ar fúlgur í að láta framleiða og
kaupa nýjar flugvélar að hann
varð að leita til bankanna um
lánsfé. Og til að standa í skilum
við þá, varð hann um síðar að
selja öll sín hlutabréf í TWA —
fyrir gott verð að vísu — eða
næstum þrjátíu milljarða, talið
í íslenzkum krónum. Þetta var