Vikan


Vikan - 29.02.1968, Page 41

Vikan - 29.02.1968, Page 41
dag. Of seint? Ef svo hafði ver- ið var þetta áreiðanlega eitthvað sem hann gat ekki ský'rt frá. Og hann myndi ekki vita hver hefði tekið það, hver hefði leikið á Lucille og komið henni til að ljóstra því upp að hún hefði þetta. En Lucille varð að deyja, því hún vissi hver hafði leikið á hana. Annaðhvort var þetta vandlega skipulagt frá upphafi, eða það var morð af skyndilegri hvöt og afgangurinn síðan leik- inn eftir eyranu. Hann sagði við sjálfan sig að þetta væri allt of veikburða, en samt fannst honum það á ein- hvern hátt rétt. Það gaf honum einhvern fiðring í hnakkann. Og, hugsaði hann, þetta er athyglis- vert rannsóknartæki, hnakkinn á manni. Hann sá fyrir sér konuna sem gekk ofan yfir sandinn og óð út í vatnið, en allt í einu varð þessi mynd allt of raunveruleg og hann sá Barböru í staðinn fyrir Lucille, hann rifjaði upp fyrir sér smáatriði, hvernig hár henn- ar bylgjaðist við hálsinn fyrir neðan eyrað, að þokkafullu og tígulegu göngulaginu. Hann settist snöggt upp og hristi þetta af sér. Þetta var ekki rétti tíminn fyrir svona hugsanir. Horne stúlkan sýndist yngri en árin sögðu til um, en þó um leið sérkennilega hlédræg og óviss um sig. Hún var ekki hamingjusöm og hafði ekki verið það áður en þetta gerðist. Hann fann á sér að hún átti of auðvelt með að verða tilfinningum sín- um að bráð. Hún mundi ekki leika neina lady. Hann leit á úrið. í stað þess að byggja barnalegar skýjaborg- ir um ungfrú Barböru, væri hon- um sæmra að eyða frítímanum í að skipuleggja heimsókn sína til Skip Kimbertons. Að beiðni Skip Kimbertons fór Guz Hernandez fram í eldhúsið í piparsveinsíbúð Skips, efst í Kimberlandbyggingunni og blandaði í tvö glös. Hann bar þau aftur inn í setustofuna og rétti Skip annað. Þetta var rúm- góð stofa, klædd ljósum viði. Skip sat í djúpum leðurstól og hvíldi fæturna á stórum skemli. Það var barr á buxunum hans og þornaður aur á veiðistígvél- unum. Andlit hans var tekið og hrukkótt af þreytu. Um leið og Guz dreypti á glas- inu sínu sagði hann: — Það sem mestu máh skiptir nú Skip er að útvega peningana og við verð- um að íhuga möguleika ... — Það sem mestu máli skiptir er að slappa af, Gussi. Hafðu ekki áhyggjur. Við gröfum upp aurana. — En ég vil eindregið ráð- leggja þér að.... — Báðleggðu mér á morgun. Guz andvarpaði: — Hvar hef- urðu verið í allan dag? Skip reis hægt upp úr stóln- um og teygði úr sér. — Ég skrapp til Burgentown, þangað sem ég átti heima, þegar ég var strákur. Ég hef ekki komið þang- að síðan ég lagði af stað út í heiminn, fyrir tuttugu árum. Það stendur ennþá reykháfurinn og spýtnabrak, þar sem hlaðan fauk um. Allur staðurinn er á kafi í þyrrkingsvíði og elri og berja- runnum. Ég skildi bílinn eftir og gekk um sveitina allan dag- inn, Guz. Hann gekk hægt inn í stóra svefnherbergið og Guz á eftir honum. Hann lagði frá sér glas- ið á náttborðið og tók að hneppa frá sér ullarskyrtunni. — Fimm krakkar og ég var í miðjunni og nú er ég sá eini sem eftir er. — Skip, þegar við tölum sam- an á morgun vil ég að þú gerir þér ljóst að skattayfirvöldin eru eins og tré, fullt af haukum, sem stara á einn kjúkhng. Við höfum ekki efni á að reyna neitt.... — Á sumrin gat maður tek- ið stangasápustöng og farið nið- ur að tjörninni, sem var svört eins og blek, undir stórinn viði. Vatnið var ískalt allt sumarið. Það var handdæla í eldhúsinu og á veturna varð að hita vatnið í fötum, á eldstónni, og heha því í járnbala. Það var of um- svifamikið að gera þetta oft, svo þegar kom fram á vorið var daunninn í þessu litla húsi af olíu, svínafitu og fólki, svo þykk- ur að það hefði verið hægt að skera hann í sneiðar og steikja hann. Á veturnar, í skólanum varð ég að hafa vit á að standa hlémegin við stúlku, ef ég hafði augastað á henni. Hann tíndi hægt af sér fötin og kastaði þeim í svínsleðurskörfu, í afkima inn- ar af svefnherberginu. — Einu sinni að vetri til fékk ég tann- pínu og þegar ég beið í biðstofu tannlæknisins rakst ég á eitt af þessum húsbyggingatímaritum og þar var tveggja síðu litmynd af stærsta og fallegasta bað- herbergi, sem ég hef nokkru sinni séð. Þá sagði ég við sjálfan mig að einhverntíma skyldi ég eignast jafnvel betra baðherbergi en þetta, með stöflum af mjúk- um, hvítum handklæðum og stórum mjúkum burstum, með löngum handföngum og stórar stengur af vellyktandi sápu og þá ætlaði ég að leggja mig í bleyti í sápu og bursta mlg, þangað til ekkert væri eftir nema rauð, aum paran, á hverju ein- asta kvöldi, allan veturinn. Hann tæmdi glasið og lagði það frá sér. Hann yggldi sig á Guz: —■ Það er einkennilegt að hugsa sér að allt sem ég hef gert á æv- inni hefur sennilega verið að- eins til þess að ég gæti átt bezta baðherbergið í þremur sýslum. Blandaðu aftur í glösin Gussi. Framhald í næsta blaði. DANISH GOLF Nýr stór! góáur smávindill Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram- leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór! Smávindill,sem ánægj a er ad kynnast.D ANISH GOLF er framleiddur af stærstu tóbaksverksmidju Skandina- viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski smávindill. Kauþid í dag DANISH GOLF í þœgilega 3stk.þakkanum. SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY DENMARK 9. tw. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.