Vikan


Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 8

Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 8
Gksileg íermiggaraiiit . Llh Pierponl ár í fjölbreyttu úrvali vatnsþétt, höggvarin, óslítandi fjöður, árs ábyrgð. * Sendi gegn póstkröfu. HELGIGUBMUNDSSON Úrsmiður - Laugaveg 96 (við hlið Stjörnubíós) Sími 22750 V_______________________________________________) Caion myndavélar / (C < .\n.>n ' • > V y Hvers vegna eru Canonet QL myndavélarnar vinsælastar í heiminum í dag? SVARIÐ ER: Hún er sjálfvirk - Fyrirbyggir mistök Má stilla eins og venjulega myndavél Tekur myndir við ófullkomin birtuskilyrði Örugg viðgerðarþjónusta - Ársábyrgð Sóllell h.f. Skúlagötu 63 - Sími 17966 v____________________________________) inn rosti eða ofríki í verkfalls- vörðunum, nema stöku strák, sem gat ekki á sér setið að gala glós- ur eða koma með munnlegt skít- kast. Það er eiginlega athyglis- vert, hve margir fá einhvers kon- ar sálarflækju af því að vera „bara“ verkamenn, og fyllast ein- hvers konar heift í garð þeirra, sem vinna önnur störf. Sem bet- ur fer líta þó aðrir raunsærri augum á starf sitt og taka því eins og það er: sem sjálfsögðum og eðlilegum hlut. En þetta litla atvik rifjaði upp fyrir mér hörkuna í verkfalls- vörzlunni 1955, þegar verkfalls- verðir og hinir ógurlegu „kapítal- istar“ svo að segja — og stundum alveg — slógust hjá vegatálmun- unum, stundum af ómerkilegu eða engu tilefni. Þá og í fleiri verkföllum, sem ég man eftir, lögðu verkfallsverðir iðulega hald á eða eyðilögðu eigur manna, svo sem mjólk, bensín og fleira. Það er skiljanlegt, að verkfallsmönn- um sé ami að því, að menn verði sér úti um þær nauðsynjar, sem eiga að vera þeim bannaðar í verkfalli til þess að kröfur verk- fallsaðila nái fram að ganga. En lagalega séð er ólíklegt, að þeir geti á nokkurn hátt hindrað slika flutninga eða meðferð þesskonar varnings í bílunum, nema aug- ljóslega eða sannanlega sé um að ræða dreifingu varanna í blóra við aðild verkfallsins. Einkaeign manna til eigin nota er verkfalls- vörðum jafn ósnertanleg og þegar ekki er verkfall. Bensíni í einka- bílum geta þeir því aðeins skipt sér af með rétti, að það sé í ólög- legum umbúðum, og þá aðeins sem hver annar löghlýðinn borg- ari, með því að gera lögreglunni viðvart og gæta sjálfir að með- ferð þess, þar til lögreglan kem- ur á staðinn. Sama er að segja um geymslustaði bensíns. Til þess að fræðast um hugs- anagang og aðferðir verkfalls- varða, heimsóttum við aðalstöðv- ar þeirra í Höfðatúni strax dag- in neftir að Sana-bíllinn kom að norðan. Þar hittum Vdð fyriir Kristvin Kristinsson, þéttvaxinn mann rólegan í fasi, þó auðséð ekki skaplausan. Kriptviin tók okkur svo vel, að mánudags- kvöldið eftir fór hann með okk- ur í eigin bíl — við höfðum engu bensíni hamstrað — á vakt- staðina norðan og austan við Reykjavík, og spjallaði við okk- ur á leiðinni. Þegar verkföll skella á eru öll fyrirtæki sett undir verulegt eft- irlit strax. Þó vil ég tiltaka fyrst og fremst fiskvinnslustöðvar, heildsölufyrirtæki öll, sem hafa verkamenn í sinni þjónustu. Fiskumbúðaverksmiðjur. Verk- stæði ýmiskonar, olíufélög o. s. frv. Ef ástæða þykir til eru svo settar fastar vaktir á þessi fyrir- tæki. — Hvaða vörur eru það, sem þið eruð helzt að leita að og koma í veg fyrir flutninga á? — Það eru helzt þær vörur, sem undir venjulegum kringum- stæðum eru keyrðar hér beint út af lagerum. — Þið helltuð niður bensíni sunnan við Hafnarfjörð í fyrra- kvöld, var það ekki? — Við hellum aldrei niður bensíni. Og Hafnarfjörður er ekki á svæði Dagsbrúnar. Eftir því sem ég hef heyrt, var það lög- reglan, sem hellti niður bensín- inu þar. Innskot: Lögreglan í Hafnar- firði bar það síðar til baka í út- varpinu. Hins vegar var sagt, að Hlífarmenn hefðu verið komnir á vettvang á undan lögreglunni. Líka var sagt, að eigandi bensíns- ins hefði sjálfur hellt því niður. Ég sagði Kristvini, að ég hefði verið viðstaddur, þegar Ottó kom í bæinn. —- Já, svaraði Kristvin, — hann hefur verið dálítið erfið- ur. Hann var ekki fyrr kominn í bæinn en hann tók á bílinn aftur og við losuðum það uppi í Verzlunarsambandi í morgun. — Ég heyrði einn verkfalls- varðanna hóta honum því, að það yrði sett á hann verkbann, svo hann yrði ekki hlaðinnj, eft'ir verkfallið. — Já, það er eðlilega gripið til slíkra hótana, þegar menn ger. ast brotlegir við verkfallið. — Nú hafði hann ekki gerzt brotlegur í gær, þegar hann kom. — Jú, hann gerðist brotlegur að því leyti, að hann fékk mann héðan að sunnan, sem er í verk- falli, upp í Hvalfjörð til að keyra annan bílinn í bæinn. — Það er þá sá, sem bílnum ók, sem er brotlegur. — Svikari, greip.............. fram í, þar sem hann sat við símann. — Júdas — og svo þigg- ur hann mútur að auki! Túleöl- Neyðarlegt atvik, ekki til að hampa, innanhúsdeilur. — Nei, sagði Kristvin, —- hann tók þetta öl fyrir norðan fyrir verkfall. Og hefði ekki Sanaum- boðið hér gerzt brotlegt, hefði aldrei orðið neinn hávaði út af þessu. Við hefðum jafnvel leyft að afferma annan bílinn, svo hann gæti farið beint úr bænum aftur, haft bara ölið í okkar vörzlu. En umboðsmaður Sana hér í Reykjavík hefur komið dálítið leiðinlega fram, og þar af leið- andi hljóp stífni í málið. — Ottó sagði verkfallsvörðun- um í gær, að þeir hefðu ekki heimild til að stöðva bíla úti á vegum og leita í þeim. •— Við þekkjum þá klásúlu úr öllum verkföllum, að við höfum ekki heimild til að stöðva bíla úti á vegum. Við gerðum þetta 1955. Við meira að segja harð- lokuðum vegunum þá. Það var ekki fenginn úrskurður á okkur, að láta okkur fjarlægja vegar- hindranir. — Var nokkurn tíma farið í hart með það? 8 VIKAN 15-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.