Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 40
Paö er sama «&
bver sidd
kjólsins er...
défilé
30-50Den
SÁwtóÍ- ■ ...........................................&
PÚRHALLUR SIGIIRJÖNSSON
simi 18450 Pingholtsstr. 11.
arinnar. Sambandið var mjög gott
skýrt og greinilegt. Nokkru síðar var
aftur haft samband við hann og
honum gefnar nýjustu veðurfréttir:
Utlitið var mjög gott.
Strax á eftir heyrði flugturinn, að
flugstjórinn hafði samband við flug-
stjóra allra hinna vélanna. Næstu
þrjátíu mínúturnar heyrðist nokkr-
um sinnum til flugvélanna. Flug-
mennirnir sögðu frá því, sem þeir
sáu niðri á jörðinni og létu nokkra
brandara fylgja með. Einnig höfðu
þeir orð á því, að gaman yrði að
lenda aftur og fara í jólafrí. Eng-
inn tók sérstaklega eftir því, að
flugstjóri forustuvélarinnar sagði:
„Hafið er eitthvað öðruvísi en það
á að vera núna." En þetta var það
síðasta sem heyrðist til vélanna
f imm.
Reynt var án árangurs að hafa
samband við vélarnar. Leit var
skipulögð þegar í stað. Enginn trúði
því fyrst í stað, að vélarnar hefðu
allar fimm steypzt í hafið.
LEITARFLUGVÉL HVERFUR
Ein af leitarflugvélunum var flug-
bátur frá flotanum. Eins og allar
áhafnir, sem staðsettar voru í Fort
Lauderdale, var áhöfn flugbátsins
vel kunnugt um, að hafið gat orð-
ið viðsjárvert í vondum veðrum og
fellibyljir gátu skollið á, en þegar
eitthvað slíkt var yfirvofandi, fengu
flugstjórar ævinlega aðvörun (tíma.
Þegar flugbáturinn var kominn á
loft, fékk hann skipun um að kanna
ákveðið svæði hafsins, en bíða síð-
an eftir frekari skipunum. A fimm
mínútna fresti spurði loftskeytamað-
ur flugbátsins, hvort nokkuð nýtt
væri að frétta af leitinni og hvort
nokkrar fyrirskipanir lægju fyrir
til flugstjórans. Þegar ákveðið hafði
verið, á hvaða svæði flugbáturinn
ætti að leita næst, reyndist ekki
unnt að ná sambandi við hann.
Smátt og smátt var öllum Ijóst á
Fort Lauderdale, að sex flugvélar
með tuttugu og sjö mönnum höfðu
horfið í „Þríhyrning dauðans".
Dag eftir dag leituðu skip og
flugvélar f von um að finna eitt-
hvert brak, sem gæti sannað, að
slys hefði átt sér stað, eða björg-
unarbát með einhverjum af áhöfn
vélanna.
Enn í dag veit enginn, hvers
vegna sex flugvélar hurfu á svo
dularfullan hátt, og hvers vegna
enginn af talstöðvunum sex gat
komið boðum um hvað væri að
gerast. En þetta er ekki eina frá-
sögnin um dularfullt fyrirbæri í „Þrí-
hyrning dauðans", sem lesa má f
skjalasafninu f Pentagon í Washing-
ton.
HVARF Á TÍU MÍNÚTUM
17. október 1954 hvarf Marine
Super- Constellation flugvél með 42
mönnum norður af Bermuda. Allt
frá flugtaki hafði verið fylgzt vel
með flugvélinni. Hún var búin tveim-
ur kröftugum senditækjum og veðr-
ið var eins gott og hægt var að
hugsa sér. Nærliggjandi stöðvar
höfðu verið í stöðugu sambandi
við vélina og stefna hennar hafði
verið færð inn á kort á hverjum
stað. Það liðu ekki nema tíu mfn-
útur frá því að sfðast heyrðist til
vélarinnar, þar til reynt var að hafa
samband við hana — án nokkurs
árangurs. Vélin hvarf sporlaust á tíu
mínútum. Enn var leitað bæði á
sjó og lofti dag eftir dag — en ekk-
ert fannst.
FJÖGUR SKIP Á FJÓRUM ÁRUM
Á árunum 1961—65 hafa alls
198 skip, 5000 tonn og þar yfir,
farizt í óveðri, þoku eða eldsvoða
á hafi úti. Fjögur þessara skipa
hurfu sporlaust í „Þrfhyrninginn",
en um hann liggja leiðir margra
skipa.
2. febrúar 1963 sigldi tankskipið
„Sulphur Queen" með 39 manna
áhöfn yfir „Þríhyrninginn". Skipið
hafði lagt úr höfn í Beaumont í Tex-
as og var á leið til Norfolk ( Virg-
inia með fullfermi af fljótandi
brennisteini. Stöðvar við strönd-
ina höfðu heyrt reglulega til skips-
ins og einnig skip sem voru á svip-
uðum slóðum. Sjór var ládauður og
veður var hið ákjósanlegasta, en
einhvers staðar í „Þrfhyrningnum"
hvarf samt „Suphur Queen".
Enginn getur neitað því, að það
er mögulegt, að flugvél falli eins
og steinn frá himni og hverfi í haf-
ið á örfáum mínútum. En það er
ekki hugsanlegt, að skip sökkvi svo
snögglega, að ekki sé hægt að að-
vara áhöfn og farþega, svo að ein-
hverjum takizt að setja á sig björg-
unarbelti eða setja björgunarbát á
flot. En ennþá einu sinni gerðist það
sem enginn fær skilið: Ekkert hefur
fundizt úr skipinu: Ekki brak, ekki
björgunarbelti, ekki björgunarbátur,
ekki lík: Skipið hefur horfið ger-
samlega.
Fimm mánuðum sfðar hvarf fiski-
skipið „Soho Bqý" með fjörutfu
manna áhöfn á leið frá Jamaica. I
tvær vikur kembdu bandarísk leit-
arskip svæðið með aðstoð flugvéla
— en árangur varð enginn. Enginn
hefur enn f dag hugmynd um, hvað
komið hefur fyrir skipið.
Mörg fleiri dæmi mætti nefna,
en þau eru flest nákvæmlega eins
og við skulum láta þetta nægja að
sinni.
ENGIN SKÝRING
Hvort sem um er að ræða skip
eða flugvélar, þá er það eitt, sem
rannsóknarnefndir umræddra slysa,
fýsir ákaft að fá að vita: Hvað er
það, sem gerizt með svo skjótum
hætti, að ekki skuli vera hægt að
senda út neyðarkall eða gera ein-
hverjar ráðstafanir, áður en það
er um seinan.
Sú kenning hefur komið fram, að
einhver óskýranlegur kraftur sé
þarna að verki, kannski f ætt við
rafmagn, sem geri það að verkum,
að senditæki skipa og flugvéla verði
óvirk. Ytarleg rannsókn hefur ekki
40 VIKAN 15-tbl-