Vikan


Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 13

Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 13
 „Ég biðst afsökunar,“ sagði hann og gekk eitt skref aftur á bak. „Til hamingju!“ „Með hvað?“ Auðvitað vissi hann við hvað hún átti. „Með dóminn, auðvitað,“ sagði hún. „Þér voruð sýkn- aður. Ég fylgdist með réttarhöldunum allt frá byrjun til enda. Þeir gátu ekki sannað neitt.“ „Nei, kviðdómurinn var þeirrar skoðunar,“ sagði Pendrake og hörfaði enn eilítið aftur á bak. Hún gekk nær honum og hélt áfram: „En þarna skall hurð nærri hælum, hr. Pendrake, var það ekki? Ég á við, að þér hafið aldrei verið eins hætt kominn fyrr.“ Hann starði rannsakandi á hana, en eftir andlitinu að dæma virtist hún ekki búa yfir neinu. Hreinskilnin skein út úr því. „Hvað eruð þér eiginlega að fara?“ spurði hann. „Jú, ég á við, að enginn tók eftir neinu í sambandi við fyrstu þrjár eiginkonurnar. En í sambandi við þá fjórðu fóru ýmsar grunsemdir að vakna. Og nú voruð þér ákærð- ur og leiddur fyrir rétt. Ef til vill eruð þér farinn að verða of lcærulaus í seinni tíð, hr. Pendrake.“ „Ég skil ekki, hvað þér eigið við.“ Hún brosti sakleysislega. „Ef til vill hafið þér aðeins orðið fyrir barðinu á óheppi- legri tilviljun. Eða kannski er yður að fara aftur.“ „Fara aftur?“ Hún hlaut að vera að gera að gamni sínu, hugsaði Pen- drake með sjálfum sér. „Þér óskið mér til hamingju með sýknunina, en samt virðist þér álíta, að ég sé sekur,“ sagði hann. „O, það eru allir sannfærðir um, að þér séuð sekur, hr. Pendrake. En hins vegar var ekki hægt að sanna það, það er allt og sumt. Þér verðið að vera varkárari næst.“ „Þess gerist eklci þörf. Ég hef ekki hugsað mér, að ...“ ,En hvað það var leiðinlegt! Hvílíkur skaði! Þér sem eruð svo aðlaðandi maður, hr. Pendrake.“ Hann ákvað að leilca þennan leik til enda: „En, kæra frú,“ sagði hann. „Ef allir eru sann- færðir um að ég sé morðingi, þá er ég dæmdur til að lifa í einveru og útskúfun. Engin kona mundi þora að hætta á að vera með manni sem hefur svo slæmt orð á sér.“ Nú kom hún honum fullkomlega á óvart, þegar hún sagði: „Þar skjátlast yður hrapallega, hr. Pen- drake. „Það er einmitt þessi orðrómur, sem kon- um finnst mest spennandi í sambandi við yðm-. Til dæmis mér!“ Hann starði á hana. „Og það vill svo vel til, að ég hef þann kost, sem yður finnst svo æsandi í sambandi við konur. Ég er rík.“ Hann hlýtur að hafa sýnt merki þess, að hann tryði henni ekki; háðsbros ef til vill eða glott. Án þess að hafa af hon- um augun veifaði hún einhverjum fyrir aftan hann. Hami leit um öxl og sá stóran, svartan lúxusbíl nálgast. Hann ók hljóðlega til þeirra og líflegur bílstjóri sté út úr honum og opnaði dymar fyrir þeim. „Má ég aka yður spölkorn?“ spurði hún. Heldur ófús og tregur þáði hann boð hennar. Fyrr en varði sat hann í þessum glæsilega lúxusbíl við hlið þessarar aðlaðandi konu. Hikandi nefndi hann ákvörðunarstaðinn. „Castle Club.“ sagði hann. Hún hét Fern Spencer og var svo sannarlega rík. Hann komst að raun um það fljótlega. Auk þess virtist hún vera sólgin í að segja honum einmitt það, sem hann fýsti helzt að vita. Faðir hennar hafði átt mikilli velgengni að fagna. Var hún einnar milljónar virði? Miklu meira en það. Tíu ef til vill, ef allt var talið saman. Pendrake fann til óróleika yfir því að vera nærri svo miklum peningum. „Átti nokkur af konunum þínum svona mikla peninga,“ spurði hún eitt sinn, er þau sátu saman og snæddu liádegis- verð á fínu veitingahúsi. „Ég er hræddur um ekki,“ sagði hann. „En voru þær samt ríkar?“ „Vel stæðar, mundi ég segja.“ „Og þú erfðir þær allar?“ „Já.“ Honum fannst alveg eins gott að segja henni þetta hreinskilnislega. Hann fann á sér, að hún vissi þetta allt saman. „Hve mikils virði voru þær?“ „Síðasta konan mín, Louise, gaf mér um hundr- að þúsund í aðra hönd.“ „Og hinar?“ „Eitthvað minna.“ Framh. á bls. 45 15. tbl. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.