Vikan


Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 4

Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 4
Verkfallsverðimir við Geitháls. Að ofan. Verkfallsverðir við Smálönd. Ómar Sig- tryggsson fyrir miðju. I miðjunni: Verkfallsverð- ir á skrifstofunni. Það er nóg að snúast. í verkfalii rifjast upp sögur af eldri verkföllum, sögur, sem ann- ars liggja í láginni upp nema af stöku skriffinni, sem vantar eitt- hvað skemmtilegt á blað. í sam- bandi við vísitöluverkfallið í byrjun marz rifjaðist upp fyrir manni verkfallið langa 1955 og verkfallsvarðastríðið þá. Það atvikaðist þannig, að ég var staddur uppi hjá Smálanda- afleggjara, þegar Ottó Laugdal kom til Reykjavíkur. Hann stund- ar flutninga milli Akureyrar og Reykjavíkur með bílum, sér til dæmis um flutninginn á Sana- öli þessa leið. Fyrir verkfallið fyllti hann bíl sinn af vallasi og túleöli, en dólaði ekki með það suður á bóginn fyrir en leið á næstu viku, stöðvaðist auk þess 1 Norðurárdalnum vegna flóðanna þar. Þegar hann komst svo suð- ur yfir á föstudeginum, affermdi hann bílinn í Botnsskála, en á því svæði var þá ekki verkfall. Hann hundsaði því verkfallið ekki með þessu atferli sínu. Guðmundur Ásgeirsson var rit- ari verkfallsvarjðanna. Það var hann, sem sagði okkur frá mann- inum, sem þáði túleölið í mútur. Hins vegar vissu verkfallsmenn hér fyrir sumaan að hann var væntanlegur, og að hann var með fullan bíl af ölj. Það var því víg- búnaður mikill við Smálandaaf leggjarann. Þetta var í rökkur- byrjun, þungt í lofti og regnslit- ur. Fjöldi verkfailsvarða með hendur í vösum og æðrulausan ábyrgðarsvip drefði sér um veg- inn, og til frekara öryggis var ofvöxnum Wiliy‘s station rennt þvert í veg fyrir bíl Ottós. Síðan upphófst senna. Verkfallsmenn vildu fá að sjá á pallinn, sögðu þeir, Ottó sagði þeim óheimilt að krefjast þess og heimtaði skilríki fyrir réttmæti kröfunnar. Einn rétti honum hvítan pappírsmiða, sem á var stimplað: Verkfalls- vakt. Ekki þótti sá miði nægileg skilríki. Samt oprnaði Ottó pall- inn og sýndi þeim sem var, að hann væri tómur. Þá heimtuðu þeir. að hann kæmi með þeim niður á skrifstofu, en hann kvað þá ekki þurfa að segja sér hvert hann ætti að fara. Svo sagði hann: — Þið vitið ekkert, hvað þið eruð að gera, strákar mínir. Þið eruð a gera svo mikla lögleysu, að hegningarlögin ná ekki einu sinni yfir það. Nú, hann fór að sjálfsogðu' frjáls ferða sinna. Það var eng-- 4 VIKAN 15-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.