Vikan


Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 31

Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 31
— Mig er að dreyma, sagði Angelique við sjálfa sig, og fannst að hún þyrfti að núa á sér augun. Rödd hljómaði ofan úr köðlunum; það var Sikileyingurinn. — Hæ, krakkar! Hvalirnir! Börnin, sem höfðu verið að leika sér á þiljunum, þustu út að borð- stokknum til að sjá. Allt í einu var Angelique stödd í miðjum hópi barnanna. Stærri börnin lyftu þeirn minni, svo þau gætu séð. Það, sem hún hafði haldið vera eyjar, voru i rauninni búrhveli. Þessir stóru, glitrandi svörtu 'líkamir skutu upp koilinum, síðan syntu þeir i kafi i hríð og í hálfgagnsæju djúpinu virtust þeir jafnvel enn stærri. Allt í einu kom einn þeirra hærra upp úr öldunum en hinir og þau sáu greinilega svarta skuggamyndina og viðamikið höfuðið og upp úr því gaus strókur af vatni; sporðurinn var stífur eins og stýri á skipi. — Þetta er hvalurinn hans Jónasar, hrópaði einn af litlu drengj- unum. — Þetta er hvalurinn hans Jónasar! Hann var utan við sig af æsingi. — Ó, hvað það væri gaman að vera á svona skipi alltaf, s.agði ein af litlu stúlkunum. — Ég vildi, að við færum aldrei í land, sagði önnur. Angelique, sem hafði gaman af að virða fyrir sér hvalina, kom á óvart að heyra, hve vel litlu stúikurnar skemmtu sér. — Eruð þið hamingjusamar um borð í Gouldsboro? spurði hún. — Ójá! endurtóku börnin í kór. Hún velti þvi fyrir sér hvort eldri börnunum væri eins farið. Séverine, sem venjulega var svo dul, opnaði nú munninn. — Já, fólkið lætur okkur í friði hér. Og það er engin hætta á að maður verði sendur i klaustur. Enginn rekur okkur til að læra allar þessar Biblíusögur, sem frænka mín lét mig hafa, þegar ég var á Ile de Ré. Við megum hugsa fyrir okkur sjálf hér. Hún andvarpaði feginsamlega. Séverine, sem hingað til hafði lifað í sífelldum kvíða var að lokum frjáls. Það áhyggjuok, sem hafði hvílt á henni frá því hún mundi eftir sér, hafði nú loks verið frá henni tekið. — Það á enginn á hættu að vera varpað í íangelsi hér, sagði Martial. Frá því í upphafi ferðarinnar hafði Angelique undrazt hve vel börnin höfðu tekið þessu öllu. Hvorki verið þrasgjörn né vælandi, eins og við hefði mátt búast. Og ef eitthvert þeirra veiktist höfðu þau vit á að láta sér batna í snarheitum. Það voru foreldrar þeirra sem höfðu stunið og barmað sér. Börnin gerðu sér ljóst að þau höfðu sloppið frá því, sem verra var. Þar að auki höfðu þau aldrei á sinni lifsfæddri ævi verið eins frjáls og þau voru á þessum þrönga, afmarkaða þilfarspalli. Enginn skóli. Engar klukkustundir við skrif- púltin, enginn Biblíulestúr. — Það va^ri jafnvel ennþá betra ef foreldrar ok'kar leyfðu okkur að hjálpa til við seglabúnaðinn, sagði Martial. — Einn sjómannanna kenndi mér nokkra hnúta sem ég kunni ekki áður, sagði einn af sonum lögmannsins. E'n eldri börnin voru meira hikandi. Séverine spurði: — Dame Angelique, er það satt að Rescator ætli að gera okkur illt? — Það held ég ekki. Hún lagði höndina á granna öxl barnsins. Séver- ine snéri að henni andlitinu og það Ijómaði af trúnaðartrausti og von. Rétt eins og í La Rochelle þegar Angelique horíði á börnin fann hún til öryggiskenndar af vissunni um sífellda endurnýjun lífsins. Hennar eigið líf hafði verið til nokkurs, ef henni heppnaðist að halda í þeirra. — Mannstu ekki að það var Rescator og menn hans sem björguðu okkur frá drekum konungsins, þegar þeir ofsóttu okkur? — Jú, ég man það. En foreldrar okkar segja að þeir viti ekki hvert hann ætlar með okkur. — Foreldrar ykkar hafa áhyggjur af því að Rescator og áhöfn hans eru allt annað fólk en þeir þekkja. Sjómennirnir tala önnur tungumál og þeir hafa aðra siði. Stundum er mjög erfitt fyrir fólk að koma sér saman, þegar það er svona ólíkt. Þá kom Martial með gáfulega athugasemd: — En landið sem við förum til er lika mjög frábrugðið því sem við höfum þekkt hingað til, og við verðum alla vega að venjast þvi. Þegar Martial hafði sagt þetta kastaði Jerimi litli, sem Angeiique var mjog hrifinn af, því hann minnli hana á Charles-Henri, þykkum, ljósum hármakka frá enninu og hrópaði: — Ilann fer með okkur til fyrirheitna landsins. Angelique varð létt um hjartað, því jaddir barnanna yfirgnæfðu þá hörðu baráttu, sem háð var gegn höfuðskepnunum og gegn mannlegri ástríðu, þegar þau endurtóku eins og englakór: — Við siglum til fyrirheitna landsins! — Já, sagði Angelique ákveðin í bragði. — Já, þetta er rétt hjá vkkur börnunum. Svo gerði hún það sem hún var nú orðin vön að gera oft á dag. Hún snéri sér í áttina að stjórnpallinum, og sá að hann stóð þar. Hún hafði á tilfinningunni að hann horfði í áttina til hennar. 25. KAFLI Þegar hann sá hana standa þarna með hóp af áköfum, skvaldrandi börnum í kringum sig og horfði á hana brosa við þeim, fannst hon- um að þetta væri enn á ný breytt kona, sem hann horfði á og þessi uppgötvun gerði honum leiðara i skapi en áður. Hún sýndist mjög há í þessari brúnu skikkju, sem hékk i fellingum af öxlum hennar. Einhvern veginn var hún glæsileg, þrátt fyrir þessi framandlegu föt, sem hann var nú smám saman að venjast. Þessi dulúð, sem iukti um hana og fyrirmannleikinn í fasinu, undirstrik- aðist af látleysi fatanna. Hún leiddi rauðhærða barnið sér við hönd. Aðeins nokkrum andar- tökum áður hafði hann séð Angelique þrýsta henni að sér. Ef það var satt að barnið hafi verið getið við þessar sorglegu kringumstæður og hlaut þannig að minna hana á hryllilega stund, hvar fékk hún þá orku til að brosa þannig við henni og unna henni svo heitt? Berne hafði sagt að yngsti sonur hennar hefði verið myrtur, að henni ásjáandi. Svo þannig hafði farið fyrir litla Plessis-Belliére barninu ........ — En hversvegna hafði hún sagt Berne þetta, en honum ekkert, eiginmanni sínum? Hversvegna hafði hún ekki, eins og svo margar aðrar hefðu gert i hennar sporum þulið alla sína sorgarsögu og sagt honum allt, sem hún hafði orðið að þola til að afsaka sig i augum hans. Það var stolt fálæti, bæði andlegt og líkamlegt sem lukti munni hennar. Hún myndi aldrei segja honum það og hann harmaði það! Hann harmaði ekki svo mjög þá staðreynd að hún var orðin eins og hún var, heldur fremur að aðrir höfðu gert hana þannig og hann átti engan þátt í því. — Já, hann harmaði jafnvel hreinleikann, þennan einstæða mót- þróa sem hafði gert henni fært að sleppa úr þúsund hættum, að lifa af ömurlegustu reynslu og halda enn því sama hrukkulausa andliti, sem var eins og heillandi fögur strönd, sem öldurnar skola aftur og aftur, án þess að raska í nokkru perluhvítum ljóma hennar. — Var þetta sama konan sem hafði barizt á móti Mulai Ismail, sem hafði þolað þjáningu og staðið af sér hungur og þorsta? Og hvað segja þeir mér nú? Að hún hafi leitt bændurna gegn konung- inum , að hún hafi verið brennimerkt með konungsliljunni! Og þarna er hún og brosir við börnunum og dáist að hvölunum. —- Sannarlega hefur hún þjáðst. Því get ég ekki neitað. Hvernig á ég þá að lýsa henni? Hún hefur ekki verið lítillækkuð, því síður er hún huglaus eða skeytingarlaus, sannleikurinn er að hún er stór- athyglisverð kona. — Fjandakorniö sem hann botnaði nokkuð í henni! Hann hafðl alltaf haft á sér það orð að hann væri galdramaður, en nú hrökk hæfileiki hans til að lesa aðra eins og opna bók, ekki til. Hvernig átti hann að nálgast hana og sigra hana aftur? Það sem Jason hafði sagt rifjaði aftur upp fyrir honum kjarnann úr eigin hugsunum: — Þú ert gagntekinn af þessari konu. -—Gagntekinn! Það stafaði af því að hún var sú tegund kvenna, sem gagntekur mann. Hann varð að viðurkenna að jafnvel þótt þokki Angelique væri ekki eins greinilegur nú, var hann engu mátt- laiusari en hann hafði verið. Hann var ekki eins og ódýrt ilmvatn sem hverfur eftir nokkra stund. Hvort sem þokkinn var djöfullegur, holdlegur eða dularfullur, var hann sannarlega til staðar og Monsieur de Peyrac, öðru nafni Rescator var gersamlega heillaður, þrátt fyrir betri vitund. Hann var flæktur í vef kveljandi efasemda og spurn- inga, sem hún ein gat svarað og haldinn þrá, sem hún ein gat svalað. E'nginn skyldi imynda sér að hann viti allt sem hægt er að vita um einhvern annan, eða neita öðrum um þann rétt sem hann hefur til að hegða sér aö geðþótta. Og sá geðþótti, sem Angelique hafði far- eftir síðastliðin fimm ár, síðan þau hittust síðast hafði sannarlega ekki verið þess eðlis að auðvelt væri að segja fyrir um hann. Hann sá hana fyrir sér, riðandi í broddi fylkingar, fyrir uppreisnar- mönnum sínum og leiða þá í orrustu. Hann sá hana flýja eins pg særðan fugl með menn konungsins á hælunum, þetta var upphaí að dularfullu ævintýri, sem hann fengi sennilega aldrei neitt um að vita og hann varð að viðurkenna, þótt hann væri sárreiður þeirri tilhugsun að sú breyting, sem átt hafði sér stað í henni var í sjálfu sér staðfesting á hinum eilífa kvenleik. Sú gagntakandi afbrýðissemi sem hann hafði fundið, þegar hann sá hve fús hún var að fórna sér fyrir vini sína, þegar hann upp- götvaði að hún átti dóttur, sem hún unnið af heilu hjarta og loks þegar hann sá hana krjúpa frammi fyrir Maitre Berne, skjálfandi af uppnámi og hvíla hendurnar mjúklega á naktri öxl særða manns- ins; þetta hafði sært hann dýpra, heldur en ef hann hefði fundið hana liggjandi blygðunarlausa i örmum elskhuga. Þá hefði hann að minnsta kosti getað fyrirlitið hana og gert sér grein fyrir þvi hvers virði hún var. Þá hefði hann getað dæmt hana að verðleikum. — Hvaða nýi leir var kominn i sköpun hennar? — Hvaða nýja ólga hafði tekið að brjótast hið innra með henni, nú þegar hún var fullþroska á sumri lífsins; hvað hafði gefið henni þessa mjúku og hlýju glóð, sem gerði það að verkum að fólkið þráði að hvíla döpur höfuð sín í faðmi hennar og hlusta á hana mæla fram huggunarorð ? Hann hafði sjaldan fupdið til svona veikleika. Og hversvegna var það þessi kona sem vakti með honum þessa kennd; þessi ofsafengna vera, þessi amazóna, þessi stolta kona með skæðu tunguna, þessi freka og nautnalega kona, sem hafði svikið hann svo blygðunarlaust. Svo, um leið og sólin hvarf í hafið, fann Joffrey de Peyrac einn af iyklunum að gátunni, lykil, sem honum til undrunar útskýrði marga þætti í hegðun Angelique. —• Já, hún á ekki hálfvelgju til, sagði liann við sjálfan sig. Þetta var eins og hilling. Nóttin var að skella á. Börnin sáu ekki lengur hafið eða hvalina, hann heyrði fótatak þeirra, þegar þau trítluðu niður stigana, nið- ur á milliþilfarið. Angelique stóð kyrr og starði út í sortann. Hann var viss um að hún horfði í áttina til hans gegnum myrkrið. — Hún er gjöful, hún er góðhjörtuð. Ég setti gildrur til að komast að þvi hve vond hún gæti verið, hún féll aldrei i þær. Þessvegna ásaikaði hún mig ekki fyrir sina eigin ógæfu. Það er þessvegna sem hún kýs heldur að þola ávítur mínar og rangsleitni, heldur en slengja því framan í mig, sem hún heldur að sé satt. Að ég, faðir- inn, sé sekur um dauða míns eigin sonar — Cantors. 26. KAFLI 1 friðsæld klefans og þögn næturinnar — hafið var óvenjulega kyrrt — renndi hann huganum enn einu sinni yfir þá dramatísku atburði sem átt. höfðu sér staði úti af Cape Passero. Hvílíka undrun hefði það vakið ef fólkið í Frakklandi hefði vitað að orrustan sem endaði með algerum ósigri og stórtapi frönsku flotadeildarinnar, sem olli svo mikilli ólgu við allar hirðir Evrópu, hefði átt sér stað vegfna níu ára drengs, í liði de Vivonne hertoga og flotaforingja! Þegar Rescator fann frönsku flotadeildina fyrir, utan við strend- ur Sikileyjar, var vald hans óumdeilanlegt, því þessi fyrrverandi, bæklaði glæpamaður frá Marseilles, átti nú samherja um allt Mið- jarðarhafið. öll réttindi áskilin, Opern Mundi, París. i5. tbi. VTKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.