Vikan


Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 39

Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 39
RONSON CAN-DO MEÐ RAFMAGNSDÖSAUPP- TAKARA OG HNÍFABRÝNI. 1. Hnífabrýni. 2. Dósaupptakari. 3. Fyrir kartöflumús. 4. Bretti fyrir vélina og fylgihluta. 5. Fyrir drykki. 6. Þeytari fyrir rjóma og fleira. ★ HANDHÆGG HRÆRIVÉL, LÉTT, AUÐVELD í NOTKUN. DRAGIÐ EKKI LENGUR AÐ KYNNA YÐUR KOSTI CAN-DO. EINKAUMBOÐ: I.GuQmunilssonSCo.lif. Hverfisgata 89 - Reykjavík STJORNUSPA - • Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Láttu ekki hefnigirni raska ró þinni. Sökktu þér niður í störf þín og reyndu að gleyma angri þínu. Þú færð óvænta hjálp sem fleytir þér fyrir nokkra örðugleika. Ferðastu um helgina. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Komdu málum þínum á framfæri og ráðfærðu þig við reyndar persónur. Líkur eru á að þú gerir ein- hver mistök, en það ætti að vera hægt að forðast þau. Þú skemmtir þér vel á föstudagskvöld. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Láttu ekkert raska ró þinni. Óróleiki umhverfis þíns hefur ekki góð áhrif á starfsgetu þina, en þú verður að leggja þig fram. Dómgreind þín er ekki nógu skörp, vegna fyriríram ákveðinna skoðana. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Samstarfsvilji og hjálpsemi félaga þinna er þér ómetanleg lijálp. Hlustaðu ekki á slúðursögur um vini þína. Þér er hætt við að safna smáskuldum, reyndu að venja þig af því. fl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Gerðu ckki samninga fyrri hluta vikunnar og taktu eklci afgerandi ákvarðanir um nein mikilvæg mál. Þú munt uppskera rikulega fyrir erfiði þitt undan- farið. Líkur eru á bústaðaskiptum. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Lagni og þolinmæði þurfa að lialdast í hendur, ef þér á að takast að leysa vandamál í sambandi við fjölskyidu og heimili. Þú hefur mörg járn í eldin- um, kannske fylgistu ekki nógu vel með. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú hefur efni á því að vera gjafmildur og gleðja þá sem þér þykir vænst um. Gefðu meiri gaum að heimili þínu og reyndu að dvelja meira heima. Sýndu fyllstu varúð á ferðalögum. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Gættu vel leyndarmála þinna, gerðu ekki fleiri þátt- takendur en brýna nauðsyn ber til. Þú reiðist vinnu- félaga þínum vegna sviksemi hans í starfi. Þú færð skemtmilegar fréttir. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Það getur reynst erfitt fyrir þig að starfa sam- kvæmt áætlun. Ekki er ólíklegt að eitthvað gerist að tjaldabaki, sem gæti haft mikia þýðingu fyrir þig næstu vikurnar. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Leggðu mikla rækt við öll störf er varða lieimili þitt beint. Það verður erfitt fyrir þig að fá aðra til að sýna áhugamálum þínum skilning, en þú mátt ekki leggja árar í bát. '9mSfr Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Störf þín verða metin að verðleikum og þú hlýtur lof fyrir. Þú getur gert þér vonir um að hækka í stöðu; láttu ekkert fara fram hjá þér, og umfram allt vertu ekki of lítillátur. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú verður fyrir móðgun, sem þú átt erfitt með að þola, en þér er nauðsynlegt að þegja, vegna þess að þú hitur á heitum kolum. Reyndu að hafa ekki mikið fyrir stafni i frístundunum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.