Vikan


Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 32

Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 32
Ronson HARÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN JÖLAGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Líkur eru á ósættum sem snerta þig. Forðastu eftir megni að rökræða eða deila. Ökutæki 1 þinni umsjá verður þér til trafala. Þú kippir í lag máli er þú hefur lengi trassað. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú afkastar mjög miklu og nýtur dyggilegrar að- stoðar maka þíns. Þú eygir möguleika sem hleypa í þig nýjum krafti. Haltu kyrru fyrir í frístundun- um; dveldu helzt heima. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú hefur í huga að breyta til og muntu 1 sambandi við það gera góða samninga. Það er tvennt sem togast á um þig, bíddu átekta og sjáðu hverju fram vindur. ð Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Fjölskylda þín veitir þér mikilvæga aðstoð, en þú verður líka að horfast í augu við óhjákvæmilegar tafir. Þú getur búizt við mislyndi samverkamanna þinna, byggðu ekkert á þeim. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Mál sem þú áleizt að fullu afgreitt veldur þér þönk- um. Þér gefst drjúgur tími fyrir þig sjálfan; honum er bezt varið í að rifja upp og bæta við nám sem þú lagðir eitt sinn stund á. k* Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú verður ekki sérlega vel upplagður og vinnu- félagarnir fara í taugarnar á þér. Alvarlegt mál skýzt fram í dagsljósið; haltu fast við þitt, hvað sem á dynur. Þú sérð ógleymanlega kvikmynd. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Þér verður meira úr fjármununum en þú hugðir í fyrstu. Þú Ieitar sannleika þar sem hann er alls ekki að finna. Skemmtiferð með kunningja greiðir úr vanda fyrir þér. 4? Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú leggur mikið að þér við að ljúka ákveðnu verk- efni í tíma. Hætt er við að þú gangir ekki nógu tryggilega frá viðskiptum. Innan fjölskyldunnar ger- ast gleðitíðindi. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Vinur þinn á mjög bágt, vegna heilsuleysis. Þú eyðir miklum tíma í að sinna honum. Láttu ekki aðra skipa þér fyrir, þú ert fullfær um að standa á eigin fótum og hafa þínar skoðanir. $ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þér finnst flest á móti þér, en það er þér að kenna. Ögrun úr óvæntri átt kemur þér til að taka skjótar ákvarðanir. Þú skemmtir þér vel vegna atburða er gerast í nágrenni við þig. AJ* Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þeir tímar fara í hönd sem eru vel fallnir til and- 3 legra iðkana. Reyndu að hafa samband við fólk sem hefur þroskandi áhrif á þig. Sýndu þínum nán- „ ustu umburðarlyndi. ww Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú hefur starf er þú hefur undirbúið vandlega. Þú færð fréttir sem koma þér að miklum notum. Farðu vel að settum reglum. Þú átt langa ferð fyrir hönd- um. . — , 32 VIKAN 46- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.