Vikan


Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 30

Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 30
Öruggarí en nokkur Önnur gag/ivart forvitnum börnum og unglingum. Hurina er ekki hægt að opna fyrr en beytivindan er STÖÐV- TrÐ og dælan búln að tæma RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður fuil- komnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi,' þ.e. það sem við á fyrir þau efni er ér ætlið að þvo. Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu þeytivindu- og dælukerfi. leysir hún allar þvottakröfur yðar. Þvottakerfin eru: 1. Ullarþvottur 30°. 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90°. 2. Viðkvæmur þvottur 40°. .8 Heitþvottur 90°. 3. Nylon, Non-Iron 90°. 9. Litaður hör 60°. 4. Non-Iron 90°. 10. Stífþvottur 40 5. Suðuþvottur 100°. 11. Bleiuþvottur 100°. 6. Heitþvottur 60°. 12. Gerviefnaþvottui **o Og að auki sérstakt kerfl fyrir þeytivindu og tæmingu. Fjöldagrafir og þræla- hald... Framhald af bls. 11. við keisarahirðina, enda sjálf- sagt betur menntir og meiri heimsmenn en rússneskir stétt- arbræður þeirra. Til að klekkja á aðalsmönnunum stigu Rússar um skeið í vænginn við eistneska og lettneska þjóðernissinna, líkt og í Finnlandi við þá aðila er and- æfðu sænskri tungu og menn- ingaráhrifum. En þessu fylgdi vitaskuld þesskonar umburðar- leysi sem allsstaðar fylgir þjóð- ernisstefnu hjá þjóðum sem ein- hvers mega sín. Ekki leið á löngu áður en Rússar hófust af fullum krafti handa við að útrýma ekki aðeins þýzku þjóðerni í Eystra- saltslöndum, heldur og eistnesku og lettnesku. Var sá draumur rússneskra panslavista að gera allar þjóðir keisaradæmisins að Rússum, hvort sem þær vildu eða ekki. Rússnesku var troðið upp á Eystrasaltslendinga ekki einungis sem opinberu máli, heldur og skólamáli, og var brátt svo komið að ekkert mátti kenna landsmönnum á móðurmálinu annað en biblíusögur. Á síðari hluta nítjándu aldar urðu annars miklar framfarir í Lettlandi á flestum sviðum. Alexander annar aflétti þá bændaánauðinni í Rússlandi, og þetta hafði þau áhrif að lettnesk- ir bændur urðu einnig sjálfráð- ari og efnahagslega sjálfstæðari. Iðnaður og verzlun voru í hraðri framför. Riga varð þriðja stærsta borg Rússaveldis, á eftir Péturs- borg og Moskvu, og mesta út- flutningshöfn þess. Svipur borg- arinnar var alþjóðlegur; tæplega helmingur borgarbúa var lett- neskur, hinir einkum Þjóðverj- ar, Rússar, Gyðingar, Pólverjar, Litháar o.s.frv. Yfirstéttin, sem hafði alla stjórn borgarmála í sínum höndum, var mestanpart þýzk og rússnesk. Segja má að menningarleg viðreisn Letta hafði hafizt um svipað leyti og íslendinga, og þó ívið seinna, og áhrifin sem kynntu undir þeim katli hjá báð- um þjóðum voru einkum þýzk. Hinn lettneski Jón Sigurðsson varð Krisjanis Valdemars, fædd- ur 1825. 1856 stundaði hann nám við háskólann í Dorpat, sem enn var helzta menntamið- stöð Letta jafnt og Eista, og fór þá að ympra á því við lettneska samstúdenta að ástæðulaust væri fyrir þá að skammast sín fyrir að skrifa á móðurmálinu. Þessu fylgdi smám saman víðtæk og öflug þjóðleg endurreisn. Efna- hagslegar og félagslegar fram- farir gerðu að verkum að miklu fleiri Lettar höfðu efni á að mennta sig en til þessa, er skóla- ganga í landinu hafði að mestu verið sérréttindi þýzku yfirstétt- arinnar. Kennarar við alþýðu- skóla landsbyggðarinnar urðu framúrsveit endurreisnarinnar, en síðan tóku háskólaborgarar frá Dorpat við. Helztu samherj- ar Valdemars voru þeir Juris Alunans og Krisjanis Barons. Sá fyrrnefndi þýddi fyrstur manna útlenda klassík á lettnesku og sýndi með því og sannaði að bændamál þetta var nægilega auðugt fyrir hvers konar bók- menntaiðkanir. Barons stóð fyrir útgáfu lettnesks blaðs í Péturs- borg, nefnist það Peterburgas Avizes. Hann safnaði einnig lettneskum þjóðvísum, en af þeim eru Lettar flestum þjóðum ríkari. f safni Barons er um þrjátíu og fimm þúsund og átta hundruð söngvar. Hreyfing þeirra þremenninganna og stuðn- ingsmanna þeirra var kölluð Unglettar. Hversu mikill og einlægur menntaáhugi gagntók lettnesku þjóðina á þessum tíma verður betur ljóst þegar litið er á mann- talsskýrslur frá árinu 1897, en þá voru yfir sjötíu af hundraði Letta læsir og skrifandi; í Rúss- landi sjálfu hinsvegar aðeins fimmti hver maður. Af íbúum Lettlands þá voru Lettar sjálfir bezt menntir næst Þjóðverjum, en rúmlega áttatíu prósent þeirra voru þá læsir. Af Rússum bú- settum í Lettlandi var hins veg- ar aðeins þriðji hver maður læs. Þrátt fyrir gegndarlausa áþján í aldaraðir í þrælahúsi rússnesku keisaranna hafði Lettum tekizt að ná sérkennum sínum sem vestrænnar menningarþjóðar. Alþýða Lettlands var mönnuð og upplýst á vestrænan mæli- kvarða, á sama tíma sem rúss- neskir almúgamenn voru ennþá frumstæðir armingjar. Þar eð Lettland varð á þessum tíma eitt mesta iðnaðar og at- hafnasvæði Rússaveldis, fluttist þangað mikill fjöldi erlendra manna. 1897 voru þannig aðeins tæp sjötíu af hundraði lands- manna Lettar, hinir flestir Rúss- ar, Gyðingar og Þjóðverjar. Fjöldi Letta flutti einnig til Rússlands, einkum Síberíu eftir að farið var að leggja járnbraut- ina til Vladivostok. Sá félagslegi byltingarhugur, sem á þessum tíma gerjaði æ sterkar með rússneskum mennta- mönnum og verkalýð og leiddi að lokum til byltingar bolsévíka, reis hærra í Lettlandi en víðast annarsstaðar, sem eðlilegt má kalla, þar eð landið var fram- þróaðra en flestir aðrir hlutar keisaradæmisins. Lettneskur sósíaldemókrataflokkur var 30 VIKAN 46. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.