Vikan


Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 19

Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 19
If lUlMVEIIT: TRIX Þetta er hljómsveitin Trix, sem þegar er orðin þekkt og vinsæl hjá ungu fólki í Reykjavík og víðar. Trix var ein af fjölmörgum unglingahljómsveit- um, sem komu fram í Húsafellsskógi um siðustu verzlunarmannahelgi. Hlutu þeir félagarnir þar annað sæti í keppni um titilinn „Táningahljómsveitin 1968“. Þeir heita, frá vinstri talið: Árni Vilhjálmsson (trymbill), Guðjón Sigurðsson (bassaleikari), Þorsteinn Þorsteinsson (söngvari) og Stefán Antlr- ésson og Ragnar Gislason, gítarleikarar. Hljómsveitin Trix liefur einkum leikið í Búðinni, og hefur ekki borið á öðru að sögn en að þar hafi ríkt ánægja með þessa ungu músikanta, sem nú eru að hasla sér völl. vilji ekki vinna heiðarleg störf. En ég hef sýslað við sitt af hverju um dagana: Ég hef verið aðstoð- armaður rafvirkja, sölumaður fyrir neonljós, sjóari, barþjónn, vörubílstjóri, kranabílstjóri, og símamaður o.fl. o.fl. Don Partridge var þekkt fígúra i London og víðs vegar í Bret- landi löngu áður en fyrsta hljóm- plata hans með laginu Rosy komst á vinsældalistann. Hann var vanur að vera á kreiki í námunda við biðraðir í vestur- hluta borgarinnar. Þar söng hann lögin sín og hafði á bak- inu stóra og umfangsmikla trumbu, munnhörpu i umgerð um hálsinn líkt og Bob Dylan og gítarinn í ól um axlirnar. Fyrir framan hann var samskotabauk- ur. Annað veifið köstuðu vegfar- endur skildingi í baukinn, og þannig græddi Don nokkur pund að degi hverjum. — Dag nokkurn varð ég þreyttur á öllu þessu. Ég tók saman pjönkur mínar og fór með lest til Richmond (járnbrautar- stöð neðanjarðar í útjaðri Lond on). Á fjörutíu mínútum gerðist eftirfarandi: Brautarvörður skammaði mig; kerling ein glápti á mig lengri tíma og sagði svo, að þetta unga fólk ætti að fá sér heiðarlega vinnu; ég græddi um hundrað krónur og fékk aukið álit á starfi götusöngvara. — Ég reiknaði út, að um hundrað krónur á fjörutíu mín- útum væri sama og eitt pund á klukkustund. Og það var meira en ég hafði unnið mér inn á nokkrum þeirra 13 starfa sem ég hafði haft síðustu tvö árin. Þess vegna ákvað ég að gerast götu- söngvari. í 5 ár söng Don Partridge lög- in sín. Hann ferðaðist um Eng- land þvert og endilangt, fór stöku sinnum í heimsókn til meginlandsins m. a. til Svíþjóðar. — Ég græddi 25 kr. sænskar 200 kr. ísl.) á tíu mínútum, þeg- ar ég söng á Sergelstorgi í Stokk- hólmi, segir Don. En svo kom lögreglan. Hefði ég fengið að vera óáreittur á torginu, hefði ég að öllum líkindum slegið öll met. Lögreglan kom til skjalanna í Stokkhólmi, og lögreglan hefur tekið Don Partridge í nær öllum höfuðborgum Evrópulandanna. — Ég hef séð flestar lögreglu- stöðvar að innan, og ég hef sof- ið margar fagrar nætur í fanga- klefum. En hvaða máli skiptir það. Það er betra að gista hjá löggunni en í skítugu, gömlu hóteli. Auk þess býður löggan upp á morgunverð. En Don á fleiri minningar tengdar við Svíþjóð en lögreglu- þjóna og Sergelstorg. Eitt sinn, er hann var á ferð í Stokkhólmi, hitti hann stúlku, sem nú býr með honura í Englandi. Saman eiga þau eitt barn, en Don vill sem minnst tala um Mónu, en svo heitir stúlkan. — Ég vil halda henni fyrir ut- an allt þetta. Hún er hluti af einkalífi mínu. Það var fyrir einu og hálfu ári, að tilveran tók á sig aðra mynd hjá götusöngvara nr. 16 í Samtökum farand- og götusöngv- ara. Don Partridge fékk tæki- færi til að syngja og leika inn á Framhald á bls. 43 Nú er citt ár liðið frá því Don Partridge söng á göt- unum við bið'raðirnar í West-End. V_________________________________> 46. tw. VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.