Vikan


Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 2

Vikan - 21.11.1968, Blaðsíða 2
er tnerkið í snjóhjótboróum Útsölustaðir: Kaupfélögin víöa um land. I Reykjavík: Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns Gíslasonar Laugavegi 171 og CHEVROLET bIlABÚÐ ÁRMÚLA3 SÍMI 38900 Völundarhúsið og almenningur Almenningur er ekki vanur því, að stjórnmálamenn sýni honum mikinn áhuga eða taki tillit til hans, nema þann stutta tíma sem allt þjóðfé- lagið fer úr skorðum og kcsningafarganið verður alls- ráðandi. Þá bregður svo við, að allt í einu er það „fólkið í landinu“, ssm öllu ræður. Öt- ulir frambjóðendur keppast við að lýsa því yfir, að þeir séu aðeins auðmjúkir umboðs- menn „fólksins" og muni láta hagsmuni og velferð þess sitja í fyrirrúmi. Þegar hama- gangurinn er um garð geng- inn, fer lítið fyrir „valdi fólksins“. Þá uppgötvar al- menningur, að auðvitað hefur hann engin minnstu áhrif á gang mála. Það verður ekki leitað til hans, fyrr en kem- ur að næstu kosningum. Nú í seinni tíð hefur mátt sjá þess merki á ýmsum svið- um, að á næstu grösum séu ef til vill þáttaskil í stjórnmála- sögu okkar. Gagnrýni á starfshætti gömlu flokkanna, sem reknir hafa verið eins og leyniklúbbar um langt skeið, virðist ætla að bera einhvern árangur. Flokkarnir keppast nú við að auglýsa eftir nýjum hugmyndum og heita því að opna allar hurðir völundar- hússins upp á gátt. Og nýverið hefur borgar- stjórinn í Reykjavík haldið hverfafundi, enda þótt enn sé langt til næstu kosninga. Á þessum fundum hefur hinn al- menni borgari getað borið fram fyrirspurnir og látið í ljós álit sitt á framkvæmd og skipulagi borgarmála, jafnt stórum atriðum sem smáum. Fundirnir voru vel sóttir og þóttu takast með prýði. Á þeim kom enn einu sinni fram víðtæk þekking borgar- stjóra á málefnum borgar- innar og heilbrigð viðhorf hans til þeirra. Náin tengsl milli kjósenda og umboðsmanna þeirra eru nauðsynleg, allt kjörtímabilið. Með því móti einu getur al- menningru- „tekið þátt“ í þjóð- málabaráttunni. G.Gr. £ VIKAN 46’tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.