Vikan - 02.01.1970, Blaðsíða 5
3. Hvað þarf háa einkunn inn
í Kvennaskólann?
Með fyrirfram þökk.
Villa og Nanna.
P.S. Hvernig er skriftin?
1. Berið laxerolíu á hárin áð-
ur en þið farið að sofa á kvöld-
in; það er gamalt og gott húsráð.
2. Taka B-vítamín.
3. Það er undir þvi komið hve
aðsóknin er mikil hverju sinni;
þær með hæstu einkunnirnar
sleppa inn.
Skriftin mundi flokkast í með-
allagi.
Greiðsla fyrir útlán
Kæri Póstur!
Meðan rithöfundaþingið stóð
yfir var mikið rætt um kjör rit-
höfunda og reyndar víst nær
eingöngu. í þætti ykkar „í fullri
alvöru“ var tekið undir þá til-
lögu rithöfundanna, að ríkið
verði látið kaupa 500 eintök af
hverri bók félagsmanna í rithöf-
undafélaginu. Eg er þessari skoð-
un blaðsins með öllu ósammála.
Það er svo undarlegt hér á landi,
að langflestar þær bækur, sem
mest seljast og flestir lesa, eru
samdar af mönnum, sem ekki
vilja eða kæra sig um að vera
kallaðir rithöfundar og eru þar
af leiðandi ekki í samtökum rit-
höfunda. Hvaða réttlæti er í því,
að ríkið kaupi svo mörg eintök
af bókum, sem allur almenning-
ur kaupir ekki og vill ekki lesa?
í sjónvarpsviðtali um daginn
heyrði ég hins vegar tillögu frá
bókaútgefendum, sem ég get vel
fallizt á. Hún er á þá leið, að
þeir menn, sem kaupi bækur
verði ekki einir látnir bera
kostnaðinn af útgáfu hennar,
heldur einnig hinn hópurinn,
sem hvað vera margfalt stærri,
sem les bækurnar á bókasöfnun-
um. Þetta finnst mér ekki nema
sanngjarnt. Og ég vil taka undir
það sem sagt var í þessum sjón-
varpsþætti, að greiðslurnar frá
bókasöfnunum eiga að renna
beint til höfundanna sjálfra, svo
að rithöfundasambandið geti
ekki ráðskazt með peninga Guð-
rúnar frá Lundi og annarra
ágætishöfunda. sem njóta vin-
sælda með þjóðinni.
Með þökk fyrir birtinguna.
B. A.
Sala og vinsældir bóka eru
smldan í réttu hlutfalli við gæði
þeirra og gildi. Þannig hefur
þetta verið og verður líklega
ekki breytt, þótt alltaf sé hægt
að nefna lieiðarlcgar undantekn-
ingar. Hins vegar finnst okkur
hiigmyndin um grciðslu frá
bókasöfnunum beint til höfunda
hin athyglisverðasta og ætti að
verða til þess, að þeir höfundar,
sem flestir lesa, beri mest úr
býtum, eins og vera ber.
Meira dóp
Kæri Póstur!
Ég var að lesa viðtalið við sál-
fræðinginn í blaðinu, og fannst
það býsna fróðlegt, en eitthvað
fannst mér vanta í það. Hvað það
var, veit ég bara ekki, og kann-
ske hefur mig bara langað að
vita meira um þennan mann og
skoðanir hans.
En það var nú ekki þetta sem
ég ætlaði að tala um, heldur
þetta dóp sem hann var svo hrif-
inn af. Ég er eindregið á móti
öllum svona lyfjum, hvort sem
þau heita „kannabis" . eða bara
hreinlega eitur, eins og ég vil
kalla þetta. Og þá er komið að
aðalatriði þessa bréfs:
Þó ég sé á móti öllu sem heit-
ir neyzla örvandi lyfja og þess
háttar, þá finnst mér skolli harka-
lega farið að strákagreyjunum
þarna í hljómsveitinni, jafnvel
þó þeir hafi verið að fá í mari-
juana-pípu. Og þegar maður fer
að hugsa málið, þá hafa þeir
sjálfir aldrei haft tækifæri til
þess að segja orð um þetta sjálf-
ir. Auðvitað er þetta fordæmi
þeirra óafsakanlegt, en það er
óþarfi að stimpla þá sem ótínda
glæpamenn fyrir bragðið — svo
ekki sé talað um þegar þetta er
alls ekki ólöglegt.
Blessaður,
Dópi.
Okkur hafa borizt mörg bréf um
þetta mál, en höfum áffur gert
grein fyrir afstöðu okkar í blað-
inu, svo við látum vera að segja
eitt eða neitt um þetta bréf og
þessi bréf yfirleitt. En innan
skamms birtist viðtal við einn
úr þessari alræmdu hljómsveit
þar sem sjónarmið þeirra félaga
koma glöggt fram.
Svar til Svenna svarta
Hættu við hana, eftir öllu að
dæma er hún þér ótrú. En að
sjálfsögðu verður þú að gera
þetta upp við sjálfan þig.
— Hann segist hafa skilið reyk-
merkin þín þannig að hann sé boð-
inn til kvöldverðar!
Strákurinn, sem ég er með,
gaf mér minnsta kveikjara sem
é ghef séS — svo lítinn aS ég fæ
varla nógu litia steina í hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti í siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eða strákinn.
Ég er alltaf aS kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
meS ýmsum hætti.
En eld þarf ég aS hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
TILVALINN TIL TÆKIFÆRISGJAFAR
Mig langar svo í einhvern af þessum
Milady gas kveikjari
Comet gas kveikjari
Empress gas kveikjari
Adonis gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: Áfyllingin tekur
5 sekúndur, og endist svo mánuðum skiptir. Og |j||
kveikjarinn. — Hann getur enzt aS eilífu. " B 1
Einkaumboö:
I. Gaönunilsson l Co. kf.
i. tbi. yiKAN 5