Vikan - 02.01.1970, Blaðsíða 9
*
Eftir stjórnarrof í febrúar 1921
jukust áhrif föður míns mjög.
Konungurinn ungi, Akmed Sja,
þekkti föður minn vel. Akmed
var heilsutæpur og var langtím-
um erlendis til lækninga. í fjar-
veru hans voru stjórnartaumarn-
ir einkum í höndum föður míns.
Þrívegis krafðist íranska þingið
þess af konunginum að hann
sneri heim; hann játaði hverju
sinni en kom ekki. Þess vegna
var ekki nema eðlilegt að þing-
ið setti af Kadjar-ættina, sem
ríkt hafði yfir landinu í hundr-
að og þrjátíu ár. Það var gert
sumarið 1925.
Sögu hinnar gömlu Persíu var
lokið — hið nýtízka íran fætt.
PABBI VERÐUR KEISARI
Faðir minn kvæntist tvívegis
í viðbót, en hafði móður mína
áfram sem uppáhaldskonu. Þetta
hljómar kannski undarlega í
evrópskum eyrum, en lög fslams
leyfa fjórar eiginkonur samtím-
is. Siður þessi er nú smátt og
smátt að leggjast niður, en enn-
þá á fiölkvæni sér þó stað í af-
skekktari hlutum lands okkar.
Móðir mín, Tadj-ol-Molúk,
fæddi fjögur börn. Tveimur ár-
um eftir fæðingu Alis Resa tók
pabbi sér aðra konu og eignað-
ist einn son í því hjónabandi,
Kólam Resa. Ári síðar kvæntist
hann ungri, persneskri prinsessu,
sem fæddi honum fjóra syni og
dóttur.
Kannski spyr nú einhver hvers
vegna ég hafi ekki valið krúnu-
erfingja meðal bræðra minna,
þegar Soraja drottning fæddi
mér ekki börn. En Ali Resa bróð-
ir minn dó þrjátíu og þriggja
ára að aldri, og samkvæmt lög-
unum áttu hálfbræður mínir
ekki tilkall til krúnunnar.
Ég var mjög veikburða í
bernsku. Ég var pervisinn eftir
aldri og kvefaðist stöðugt á vet-
urna.
Dag einn var okkur sagt að
pabbi væri orðinn keisari. Nú
var hann ekki lengur Resa Kan,
hershöfðingi, heldur Resa Sja.
Mamma varð keisaradrottning
og ég krónprins. Við tókum okk-
ur fjölskyldunafnið Pahlavi.
Hvað þýddi þetta fyrir strák á
mínum aldri? Engin ósköp. Jú,
eina leiðinlega breytingu — við
fluttum úr gömlu dásamlegu vill-
unni okkar í stórt hús, og trjá-
garðurinn kringum það var full-
ur af hermönnum. Við urðum
íranskeisari og núverandi drottning
hans, Fara Díba. ásamt krónprinsin-
um, öll í viðhafnarskrúða.
alltaf að vera ákaflega prúð og
stillt, og gömlu leikfélagarnir
komu ekki framar í heimsókn.
Það var um þetta leyti, þegar
ég var átta—níu ára, að mér
birtust áðurnefndar sýnir. Þær
báru fyrir mig með hálfs árs
millibili.
Eina þeirra bar fyrir mig um
vetrartíma, þegar ég hafði verið
alvarlega veikur Ég hafði fengið
Framhald á bls. 29
Múhameð Resa (í fremri röð miðri)
ásamt félögum sínum í íshockeyliði
skóla þess, er hann gekk á í Sviss.