Vikan


Vikan - 02.01.1970, Qupperneq 41

Vikan - 02.01.1970, Qupperneq 41
um miðnætti. Þá skalf liún öll af kulda. Það skánaði ögn þegar hún hóf að fylla stofuna af blóm- um. Eða ef til vill voru það árin, sem gerðu það að verk- um, að ró færðist yfir hana. Nú liðu rúmhelgu dagarn- ir einhveni veginn, en á sunnudögum varð hún gagn- tekin þessum undarlega ótta. Alla hina daga vikunnar gat hún ímyndað sér, að hún hefði eitthvað fyrir stafni. Með lokuð augu lá hún i rúminu á morgnana og ímyndaði sér að hún væri unga konan í íbúðinni við hliðina. Þar var sannarlega í mörgu að snúast. Eigin- maðurinn barmaði sér, með- an liann var að raka sig, og hún reyndi að róa hann með því að segja honum, að kaff- ið yrði tilbúið í tæka tíð. Á meðan þurfti hún að útbúa nestispakkana bæði fyrir liann og börnin. Drengurinn, sem var í framhaldsskóla, gekk niður tröppurnar ásamt föður sínum. Hún heyrði að þeir töluðu um hjóldeklc á leiðinni. Dóttirin fór örlítið seinna í skólann. Og hvern- ig allt var útlits, þegar þau voru farin! Það þurfti að búa um rúmin og hengja föt á sinn stað. Það þurfti að þvo upp eftir morgunmatinn og laga til i eldhúsinu. Loks þegar öllu þessu var lokið, var tími til að fá sér kaffisopa og líta í morgun- blaðið. Stundum sofnaði hún aftur, þegar dóttirin var far- in. Hún vaknaði venjulega hálftíma seinna og þá blasti við henni þessi skelfilega sjón: hennar eigin stofa, snurfusuð og strokin hátt og lágt. Eftir morgunmatinn og til hádegis fór mesti timinn í að lmga að blómunum. Hún var dálítið stolt vfir því, að nú orðið þurfti hún að nota stóra blómakönnu, eins og notaðar eru i görðum. En sunnudagana óttaðist hún stöðugt. Þessir enda- lausu sunnudagar, sem byrj- uðu með grafkyrrum morgn- um. Sunnudagsklætt fólk, sem gekk rólega um kyrr stræti, fólk, sem hafði nóg- an tíma, fólk, sem hafði ekk- ert fyrir stafni — eins og hún sjálf. Hún lokaði sig alltaf inni á sunnudögum og skrif- aði löng bréf til systur sinn- ar, sem var búsett erlendis. Skyndilega reis hún upp í rúminu og var vöknuð til fulls. Andartak sat hún eins og hún væri að tala, svipti síðan sænginni af sér, gekk fram í forstofu eftir blaðinu og leit um leið á dagatalið. Það er i dag! Upp úr blaðinu leit hún á Ijósmyndina, sem hékk í ávölum ramma yfir bóka- skápnum. Ungir foreldrar með lítið barn sitt. Hún var tekin á ársafmæli Sveins -— fyrir tuttugu og fjórum ár- um síðan. Henrik var svo stoltur á þessari mynd. Hann sat sjálfur undir drengnum í bílnum á leiðinni til ljós- myndarans. Hann sat fremst í sætinu og hélt höndunum um hann í varnaðarskyni. — Ef bílstjórinn skyldi hemla snöggt, sagði hann til þess að afsaka varfærni sína, og þegar áður en hann steig inn í bílinn, liafði hann beð- ið bilstjórann að aka hægt og gætilega. Hún lagði blaðið frá sér, þegar liún uppgötvaði, að liún liorfði hvorki á það né myndina. Skyndilega klæddi hún sig og snyrti. Hún bjó um rúmið. meðan hún hitaði vatn til að hella upp á könn- una. Hún naut þess að eiga annríkt og sönglaði, meðan hún hálfhljóp yfir gólfið. Henrik rak sjálfstætt fyrir- tæki, svo að það var óvist, hvort hann kæmi fyrir há- degi eða i eftirmiðdaginn. En það gilti einu fyrir hana. Hún var ekki bundin á neinn hátt. Já, vel á minnzt: gjöfin til Sveins. Hún tók pakka neð- an úr skúffu og lagði hann á hillu i ganginum. Fyrir framan spegilinn skoðaði hún sjálfa sig, hljóp siðan inn i stofuna til þess að gæta að hvort allt væri nú i röð og reglu . . . gekk síðan aftur að speglinum. Hún var enn ungleg í vexti. Það var sennilega hin- um löngu gönguferðum að þakka. Dragtin fór vel, þótt hún væri ekki ný lengur. Andlitið. Hún gekk nokk- ur skref áfram, hallaði sér áfram og lét ljósið frá lamp- anum falla beint á andlitið. Hún horfði beint í augun á sjálfri sér, eins og hún vildi þrengja sér til þess, sem lægi að baki þeim. Skyndilega sneri hún sér við og stundi mæðulega. Hvers vegna stóð liún hér fyrir framan spegilinn eins og unglingur, sem er að fara á fyrsta stefnumót sitt? Hún, sem í dag mundi verða sótt af manninum, sem yfirgaf hana fyrir tiu árum síðan. Þessum manni hafði hún al- ið son, sem í dag varð tutt- ugu og fimm ára gamall. Hvers vegna var hún spennt, og hvers vegna var hún að laga til? — Þú hefur orðið nægju- söm með árunum, sagði hún við sjálfa sig. 0 Hann hafði andstætt venju sinni læst að sér. Hann hafði livað eftir annað reynt að sökkva sér niður í skjöl, en ósjálfrátt hvörfluðu augu lians að litilli athugasemd, sem skrifuð var með blýanti á dagatalið: Afmælisdagur Sveins. Hann hafði merkt liann fyrir viku siðan, þegar hann var að blaða í dagatal- inu. Síðan hafði hann mun- að hann. Honum hafði orð- ið dálítið ónotalega við, þeg- ar hann reif af dagatalinu um morguninn. Og liann hafði sent skrifstofustúlkuna í bæinn til þess að kaupa S.íöf. Pakkinn lá á borðinu við hliðina á dagataiinu. Hann var gramur yfir því að geta ekki einbeitt sér að vinnunni, ýtti stólnum aftur á bak, stóð upp og gekk fram og aftur um teppalagt góKið. Smell- urinn, sem heyrðist í hvert skipti sem hann gekk af teppinu og yfir á bert gólfið við hurðina, var eins og takt- ur í eirðarleysi hans. Hann reyndi að hafa hléin milli smellanna jafnlöng. Drengurinn var tuttugu og fimm ára. Það voru sem sagt tíu ár, siðan þau skildu. Hún liafði verið ágæt. Hún hafði ekki verið hrædd við að leggja á sig erfiðið, þegar hann gat ekki einu sinni greitt námsgjöldin sín. En þá voru þau ung og þótti vænt livoru um annað. Og síðan . . . ja, það var þessi algenga saga um liana, sem var of gömul og hann, sem neitaði að verða það. Hann mundi vel eftir henni, þegar þau sátu og skipulögðu framtíðina. Fyrst urðu þau að greiða allar námsskuldirnar og hún ætl- aði heldur betur að hjálpa til við það. Þcgar því var lokið, ætlaði liún að eignast barn. Febrúar, marz, apríl þannig hafði hann talið á fingrunum. Allt fór eins og ákveðið var. Barnið fæddist í apríl. — Hann stanzaði fyr- ir framan gluggann og staklc liöndunum í rassvasana. í rauninni var ekki ástæða til þess að hafa áhyggjur af þessu. Hann hafði fengið hundruð skilnaðarmála til meðferðar og hann hafði alltaf talið sér ávinning af því að geta sagt viðskiptavin- um, að hann hefði sjálfur skilið. Þeir fengu aukið traust á honum fyrir það. Og Ragnhildur þurfti ekki að liafa neinar áhyggjur. Margir af þeim, sem höfðu komið á skrifstofuna til lians, voru verr staddir. Siminn hringdi. — Já, það er ég, góðan daginn. Já, ég er á kafi i nýju máli. Nei, ekki i dag. i. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.