Vikan


Vikan - 04.06.1970, Qupperneq 28

Vikan - 04.06.1970, Qupperneq 28
og einmitt þetta atriði telur Jean Stafford hafa orðið dömum Mansons örlagaríkt. Flestar eða allar konur eru, meðvitað eða ómeðvitað, haldnar sterkri þörf fyrir föð- urlega, karlmannlega handleiðslu, milda og drottnandi í senn, og fari þær hennar algerlega á mis getur þessi hneigð fengið öfgafulla útrás þannig, til að mynda, að konan geri sig að viljalausri ambátt ein- hvers karlmanns, sem tekur hana upp af götu sinni, og finni innilega nautn í því að þjóna duttlungum hans, hversu fárán- ríkissælu. Löngu á eftir, þegar stúlkurnar eru einangraðar í fangaklefum, þykjast þær standa í stöðugu hugskeytasambandi við Charlie sinn, þótt hann sé ekki einu sinni í sama fangelsi. Nátengd föðurþörf konunnar er trúar- þörf hennar. Konan hefur í óræðan aldur verið hornsteinn heimilisins, fjölskyld- unnar, og upplausn þessi hlýtur því að snerta hana sérlega óþyrmilega. Hún finn- ur sig yfirgefna, hafandi ekki lengur fast land undir fótum. Sú var tíðin að fólk slit- legir sem þeir kunna að vera. Stúlkurnar í Dauðadal voru meðal margra, sem þjást af þrá eftir drottnandi föðurtýpu, og Manson féll í kramið hjá þeim sem eintak af þeirri gerð. Möguleik- ar slíkra patríarka margfaldast auðvitað ef þeir eru gæddir dáleiðsluhæfileikum, eins og Manson áreiðanlega er. Þegar stúlkurnar hans lýsa dvölinni í sólsviðinni eyðimörkinni, þar sem þær voru án allra frumstæðustu þæginda og að sjálfsögðu þar með allra þeirra mörgu unaðssemda, sem ungt kvenfólk í velferðarþjóðfélagi telur sjálfsagða hluti, er ekki að heyra að þær hafi lifað annað en ómengaða himna- Veitingahúsið Hudson Bay Inn á East Side á Manhattan hefur í þjónustu sinni hóp laun- spekinga, sem reiðubúnir eru til að veita gest- um fyrirgreiðslu. Þrjú þeirra sitja hér við bar- borðið, talið frá vinstri: Charles Taylor, sem les úr tarot-spilum, Donna Kerber, lófalesari og Jonathan Booth, stjörnuspámaður. ið úr fjölskyldutengslum gat virkjað þörf sína fyrir að elska og þjóna í þágu föður- landsins, en vilji eitthvert föðurland, eitt- hvert ríki láta elska sig, verður það að sjá fyrir vissum lágmarksskilyrðum til þess. Og það gera ekki ýkjamörg nútíma- ríki. En þótt jarðnesk föðurlönd bregðist, er þó alltaf hægt að beina ást sinni og til- beiðslu til Guðs, vildi kannski einhver meina. En fyrir þorra nútímamanna er Guð löngu dauður. Allavega hvað yngra fólk snertir. En eftir er tóm, sem reynt er að fylla með ýmsu móti. Susan Atkins og vinkonur hennar fundu sér í staðinn ótút- legan, ruglaðan og skítugan gálgafugl, fullan af hatri til þess samfélags, sem þær töldu einnig hafa brugðizt sér. Hann full- nægði þörf þeirra fyrir elskhuga, föður og guð. Og þær eru langt í frá nokkurt einsdæmi. Tímarnir eru hagstæðir fyrir kuklara af gerð Mansons, og því er hætt við að fleiri álíka frelsurum eigi eftir að skjóta upp áður en varir, kannski með enn alvarlegri afleiðingum. Aldrei hafa menn borið slíkan kvíðboga fyrir framtíð heimsins og einmitt nú, og í samræmi við það er í vaxandi mæli leit- að til sjáenda þeirra, er séð þykjast geta fyrir óorðna heimsviðburði. Sá alfrægasti þeirra nú er Breti að nafni Maurice Wood- ruff, en móðir hans, Vera Woodruff, var sjálf fræg spákona. Hún var að nokkrum hluta af Sígaunaættum, en varla þarf að minn á það orð sem fer af spágáfu þess fólks. Woodruff hefur að sjálfsögðu sent frá sér spá um helztu atburði ársins 1970, sem nú þegar er næstum hálfnað. Hann segir að í haust, líklega í september, muni finnast aðferð eða lyf til lækningar við krabbameini. Þessi uppgötvun verður gerð á tveimur stöðum samtímis, í Ameríku og einhverju Evrópulandi. Einnig verða á þessu ári miklar framfarir í augnskurð- lækningum. Þá fullyrðir Woodruff að Ví- etnamstríðið muni fjara út seint á árinu, en þess í stað muni hefjast á ný stríð í Kóreu. Ennfremur muni tvívegis koma til harðra árekstra milli Kínverja og Rússa, og muni hinir fyrrnefndu eiga upptökin. Af þessum sökum muni Rússum lítið tóm gefast til að skipta sér af öðrum málum. í efnahagsmálum spáði Woodruff meiri- háttar kreppu í vor, og helzt í apríl, en kreppa sú næði varla nema til Bandaríkj- anna. (Einmitt þegar þetta er ritað berast fréttir af miklu verðhruni í kauphöllum í New York). Kvæði svo rammt að þessu að bandaríski dollarinn myndi hrapa í verði niður fyrir þann kanadíska. Þetta lagist þó allt þegar líði á árið. í Bretlandi verða kosningar á þessu ári, ef marka má spádóminn, og muni þær leiða til þess að skipt verði um forsætisráðherra. Pínupilsin hverfa í ár, sagði Woodruff ennfremur. Þau munu aftur síga niður fyrir hnén. En hins vegar má búast við byltingarkenndum fjölbreytileika í fata- tízku karlmanna, bæði hvað snertir snið og lit. Hann segir að Nixon muni eflast svo mjög að vinsældum á árinu að þegar komi að næstu forsetakosningum muni hann fljúga inn næstum mótstöðulaust. Hins vegar telur hann að Spiro Agnew endist illa í embætti varaforseta og muni naum- ast haldast við í því yfirstandandi kjör- tímabil, hvað þá að hann verði endur- kjörinn. Hvað Kennedyfjölskylduna snert- ir muni Jackie Onassis eignast son von bráðar, en engu að síður muni hjónaband hennar ekki endast nema eitt ár eða tvö í viðbót. Muni Onassis útvegsmaður eiga upptökin að skilnaðinum, þar eð eyðsla og tildur frúarinnar keyri svo úr hófi að jafnvel honum þyki nóg um. Ekki telur Woodruff líklegt að mikið kveði að Kennedyum í stjórnmálum framtíðarinn- ar; sonur Johns F. Kennedys verði vís- 28 VIKAN 23-tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.