Vikan - 04.06.1970, Síða 36
Konica
IConica
Konica
IConica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
Konica
AUTOREFLEX T - Úrval 18 skiptilinsa - Frábær TTL
Ijósmælir — Ný húðun á HEXANON linsunum, sem
gefur skarpari og litréttari myndir. — Focal Plane
lokari sem þolir allt að -f 28 stig.
KAUPIÐ KONICA ®mw&>
AUSTURSTRÆTI
LÆKJARTORGI
Skiptir ekki máli...
Framhald af bls. 15.
EINKUNNUM ÚTHLUTAÐ
EFTIR EFNAHAG
Þá er komið að þriðja aðalkafla
kversins, sem er helgaður nemend-
unum sjálfum. Þar er byrjað með að
benda nemendunum á að hver
þeirra hafi rétt á að mótast eins og
honum er eiginlegast, að hann hafi
rétt til að verða annað í lífinu en
foreldrar og kennarar ætla honum.
Eins og annarsstaðar í kverinu er í
þessum kafla lögð áherzla á að
nemandinn hafi sjálfur sem mest
áhrif á forlög sín, en láti ekki aðra
um að ákveða þau. „Það er gott að
vita að hægt er að gefa umhverfinu
til kynna vilja sinn með tvennu móti.
Með því að segja eitthvað — eða
gera eitthvað."
Einn undirkaflinn í þessum hluta
kversins fjallar um greind — intellig-
ens. Forðum á tíð, stendur þar, var
því slegið föstu að þau börn, sem
ekki stóðu sig vel ( skólanum, væru
heimsk. Þá var því líka trúað að
fólk fengi mismikla greind í vöggu-
gjöf, og þvi gæti ekkert breytt. Hvor-
ugt er rétt, en margir trúa þessu
ennþá.
Það hefur sýnt sig að greind sú
er mæld er með greindarprófum
getur breytst. Ef tvíburar, sem eru
nákvæmlega eins að öllu leyti frá
fæðingu, alast ekki upp saman,
verða þeir oftast ólíkir að greind.
Sá þeirra sem elst upp hjá fólki með
mörg áhugamál, fólki sem kann að
nota höfuðið, hann verður greindari
en bróðir hans, sem elst upp á leið-
inlegu heimili, þar sem ekki ríkir
áhugi fyrir einu eða neinu.
Þegar kennari talar um hver sé
greindur og hver heimskur, þá tek-
ur hann venjulega mið af því einu,
hvernig nemendurnir standa sig í
skólanum. En velgengni þeirra þar
er langt frá því eingöngu komin
undir greind, heldur í mörgum til-
fellum engu síður undir því hve
auðveldlega þeim gengur að sam-
lagast skólalífinu og kröfum kenn-
aranna. Þá er því einnig haldið fram
í kverinu að við próf sé einkunnum
úthlutað af mikilli hlutdrægni,
þannig að börn efnafólks og há-
menntamanna hafi stórum meiri
möguleika á að komast áfram í há-
skóla en önnur. Þetta er Ijótt að
heyra og vonandi að við Islendingar
eigum þann ósóma ekki sameigin-
legan með frændum okkar norsur-
unum.
Næst eru frístundirnar teknar fyr-
ir og nemendur varaðir við tóm-
stundasýsli því, sem fullorðnir skipu-
leggja fyrir þá, þar eð það geri þeir
fullorðnu fyrst og fremst með það
fyrir augum að aga ungmennin eftir
sínu höfði og halda völdum sínum
yfir þeim. Þannig, segir kverið,
klæðir skátahreyfingin ykkur í úní-
form, aðskilur kynin og segist ætla
að gera ykkur að „góðum borgur-
um." íþróttafélögin kenna fólki að
allt sé undir því komið að verða
— Gullsmiðurinn var búinn að loka,
svo við verðum að láta okkur nægja
gardínuhringi!
fyrstur eða sterkastur, að sigra aðra,
og að sá sem bíður ósigur eigi að
taka því þegjandi. Og allsstaðar hafa
fullorðnir forustuna undir því yfir-
skini að þeir vilji tryggja „kyrrð og
reglu". Það sem þeir í rauninni eiga
við með því slagorði er að þeir fái
að hafa yfirráðin.
Til mótvægis þessari spillingu
ráðleggur kverið ungmennum að
stofna eigin klúbba, án allra af-
skipta hinna fullorðnu, þar sem þau
kynni sér og rökræði stjórnmál, fé-
lagsmál, kvikmyndir, bókmenntir og
yfirleitt allt göfgandi og þroskandi
milli himins og jarðar. Síðan eru
gefnar ýmsar praktískar upplýsing-
ar því viðvíkjandi.
„. . . HVIS DE ER GAMLE NOK . .
Næst eru það svo kynferðismál-
in. Tekið er fram í upphafi þess
kafla að í honum sé ekki fjallað um
ást eða tilfinningar, heldur saman-
standi hann einungis af upplýsing-
um, sem lesandanum geti kannski
komið vel. Síðan eru til fróðleiks
tínd til nokkur algengustu heiti
norskrar tungu á kynfærum svovel
karla sem kvenna. Þá er vikið að
sjálfsfróun. „Nár gutten gnir peni-
sen sin, kjennes det godt ut, og det
vil komme sæd ut hvis de er gamle
nok," segir kverið af miklum lær-
dómi. Stúlkunum er einnig góðfús-
lega bent á að þær geti á sama hátt
fróað sér með mátulegum núningi
efst í „sprekken". Það er ekkert
frumskilyrði að-stunda sjálfsfróun,
þótt flestir geri það að vísu, segir
kverið. Sumir gera. það oft á dag,
aðrir nokkrum sinnum í viku, enn
aðrir sjaldnar. Þeir fullorðnu gera
það líka. Tekið er fram að hvort-
tveggja sé jafn eðlilegt að fróa sér
sjálfur (ónanera) og gera það ekki.
Og hættulaust sé það með öllu,
hversu oft sem það sé gert.
„Nör gutten stikker den stive
penisen sin inn i jentas skjede, kall-
er en det „samleie", eller at „de
ligger med hverandre", sjöl om de
slett ikke ligger," stendur síðan
skrifað. Þá bendir kverið lesendum
sínum á að ekki sé endilega nauð-
sy.nlegt að hafa samfarir til að ná
kynferðislegri fullnægingu; markinu
megi líka ná með því að „smákose"
saman. Eru síðan gefnar nokkrar
tæknilegar upplýsingar í því sam-
bandi.
„Sumum drengjum og stúlkum
líkar bezt að liggja með einhverium
einum aðeins. Önnur vilja heldur
skipta oft um. Það skiptir engu máli
siðferðislega séð," hermir rauða
kverið. Helzta vandamálið því við-
víkiandi sé að þeir fullorðnu gangi
með það í höfðinu að rangt sé að
sofa hjá fleirum en einum, og dreng-
irnir smitist stundum af þeim for-
dómum og taki þá kannski upp á
því að líta niður á þær frjálslyndari
í hópi stúlknanna.
Þessu fylgja svo margskonar hag-
nýtar upplýsingar um getnaðarvarn-
ir og er fullyrt, að séu þær notaðar
af fyrirhyggju og skynsemd, sé svo
til útilokað að óvelkomin þungun
eigi sér stað. Einnig eru gefnar ná-
kvæmar upplýsingar um fóstureyð-
ingar og bent á þau Evrópulönd,
þar sem hægt er að fá fóstri eytt
vafningalaust. Þau eru einkum Bret-
land og Júgóslavía.
Næst eru örvunar- fíkni- og eitur-
lyf tekin til umræðu, allt frá tiltölu-
lega meinlausum nautnalyfjum eins
og kaffi og te upp í morfín og
kókaín. Varað er við tóbaki og eink-
um sígarettum, þar eð þær orsaki
lungnakrabba, tóbakseitrun og
margt fleira slæmt og hafi auk þess
engin örvandi áhrif svo teljandi sé.
Fæstir reyki líka sér til þæginda,
heldur af því að það sé talið fínt.
Þá er rætt um alkóhól og þess áhrif
og ætti varla að þurfa að segja ís-
lendingum neitt um það. Um hasj er
sagt að margt bendi til að það sé
ekki líkamlega vanabindandi, en
geti aftur á móti orðið það andlega.
Ennfremur sé það bannað með lög-
um, og því ekki hægt að fá það
nema ólöglega. Af því leiðir aftur
að engin leið er fyrir kaupandann
að tryggja að hasjið sem hann fær
sé hreint, en ekki blandað sterkari
og hættulegri efnum. Um LSD og
meskalín er sagt að um þau efni
sé of lítið vitað enn og því bezt að
láta þau alveg ósnert. Við öllu sterk-
ara er auðvitað eindregið varað.
PRÓFIN VOPN TIL AÐ
HRÆÐA NEMENDUR
Þá er komið að fiórða og síðasta
aðalkafla þessa rauða hvers: um
kerfið. Þar er skólanum lýsf sem
vinnustað, þar sem nemendur hafi
álíka lítið að seqia oq starfsmenn
einkafyrirtækia. Nemendur eru þó
hvattir til að gefast ekki uon fvr:r
þessu ástandi og mynda samtök til
að fá vilja sínum framgengt. Þótt
þeir neyðist til að tala eins og kenn-
ararnir vilja heyra, þá geti þeir enou
að síður unnið gegn þeim undirniðn
Sjálfsagt sé að líma mótmælaskilti
upp á veggi, því að engin leið sé
til að uppgötva hver hafi gert það.
Um prófin stendur skrifað að þau
séu fyrst og fremst vopn í höndum
skólayfirvaldanna til að hræða nem-
endur til að vinna eftir höfði þess-
ara yfirvalda, en aðeins sjaldan gefi
þau til kynna kunn_áttu nemendanna
eða til hvers þeir geti bezt brúkað
hana. En þrátt fyrir alla téða nei-
kvæða eiginleika skólasamfélagsins
er sem sagt hægt að breyta því t:l
hins betra, ef nemandinn er árvakur
oq þrautseigur oq hefur lag á að
stofna til samstarfs við félaga sína.
Þetta sé auðvitað glæosamlegt frá
siónarmiði Kerfisins, iafnvel þótt
ekki sé um bein lögbrot að ræða.
Það eitt að hugsa og gera öðruv'si
en Kerfið vill er glæpsamlegt að
dómi þess.
HVÍTA KVERIÐ - BYGGT Á
„SIÐFERÐILEGUM GRUNDVELLI''
Svo er að hevra að útkoma rauða
kversins hafi vakið nokkurt ofboð
meðal þeirra, sem ekki voru sam-
mála viðhorfum þess, og ruku þeir
hinir sömu til að gefa út annað kver,
hvíta kverið fyrir skólanema, eins oq
það var kallað. Höfundar þess nefn-
36 VIKAN 23-tbl-