Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 45
settir klerkar. Messan hefst með
því að hápresturinn les upp ritn-
ingargreinar úr guðspjöllum Sat-
ans og tónar bænir á enokísku,
svo og hin ýmsu nöfn kölska:
Abaddon, Apolljón, Asmódeus,
Demógorgón, Mólok, Týfón. —
Prestar og söfnuður taka undir
með hyllingarópi: „Shemhamfor-
ash! Hail Satan!“
Einn þáttur guðsþjónustunnar
er að safnaðarmeðlimirnir fá
tækifæri til að ganga fram og
biðja til Satans í heyranda hljóði.
Margir nota þessa bænastund til
að hella úr sér formælingum og
bölbænum yfir þá, sem þeir eiga
eða telja sig eiga sökótt við.
Blaðamaður einn sem var við-
staddur svarta messu heyrði eitt
sóknarbarnið þylja frammi fyrir
altarinu, einhverjum óvini sín-
um til óheilla: „Það daunilla svín,
sá rotni kúkur, það slímuga
skriðkvikindi.. . . Megi slepjug-
ar ófreskjur hefjast úr ýldufenj-
um og æla úr sér drullunni inn
í þennan sljóa heila hans. . . . “
Prestarnir fylgja bæninni eftir
með tóni, organ er þanið og að
lokum tekur söfnuðurinn undir
með sínu hósíanna: „Heill þér,
Satan!“
Messunni lýkur með því að
allir heilsa með hornkveðjunni,
sem er á þann veg að menn lyfta
handlegg í boga fyrir andlit sér,
líkt og til að verjast höggi.
LaVey æðstiprestur lætur oft
í ljósi áhyggjur vegna þess hve
trúarbrögð hans séu misskilin,
og vonast til að Biblía kölska,
sem kom út fyrir síðustu jól,
muni gera sitt til að eyða þeim
misskilningi. „Ég er alltaf að fá
bréf frá fólki,“ segir hann, „sem
vonast til að ég klappi því á bak-
ið og hæli því fyrir syndir þess.
Þar á meðal er fjöldinn allur af
afbrotalýð og tugthúslimum.
Þeir virðast halda að kirkja Sat-
ans sé eitthvert allsherjar hæli
fyrir öfugugga, kynæðinga og
losers, fólk sem samfélagið hef-
ur hafnað. Það er alrangt. Því
að hinn sanni Satanisti er meist-
arinn, foringinn, sá sem stjórnar
samfélögum, er fyrirmynd. Allir
winners, þeir sem hafa komizt
áfram í lífinu, hafa í raun og
sannleika tileinkað sér satanísk
viðhorf. Eða eins og stendur í
Biblíu Satans: Útkoma jákvæðr-
ar hugsunar og jákvæðrar fram-
kvæmdar er árangur.“
Þetta er þá kjarni málsins.
Með losers eiga Bandaríkjamenn
við alla þá, sem dregizt hafa aft-
ur úr eða gefizt upp í lífskjara-
kapphlaupinu, og samkvæmt þar-
lendum móral eru þeir allra
kvikinda fyrirlitlegastir, alveg
án tillits til þess hvort þeir eru
ærlegir menn eða hafa hneigzt
til afbrota. Það sem LaVey á við
er að allt það fólk, sem bezt sam-
hæfist samkeppnis- og athafna-
þjóðfélögum nútímans, sé í öllu
sínu eðli og athæfi djöfulsins
börn, hvort sem það viðurkenn-
ir það sjálft eða ekki. Þessu fólki
sé því jafngott að ganga Satan á
hönd opinberlega þegar í lifanda
lífi, í stað þess að bíða þess að
hann hremmi það á leiðinni upp
að Gullna hliðinu, eins og flestir
hafa látið duga til þessa. — Sem
sjá má af skilgreiningu svarta
páfans er kirkja Satans þannig
bein andstæða hippahreyfingar-
innar, sem afneitar athafnaþjóð-
félaginu.
Komi menn svo og segi að öll
trúarbrögð séu úrelt fyrir nú-
tímamanninn!
dþ.
Fjóluangan
Framhald af bls. 17.
að tala illa um liúsmóður
þína eða koma upp um
leynda galla hennar, ef hún
þá hefur nokkra. Villu að-
eins svara hreinskilningsléga
fjórum eða fimm spuming-
um, sem ég ætla að leggja
fyrir þig? Þú þekkir frú de
Jadelle eins vel og sjálfa þig,
þar sem þú klæðir hana og
afklæðir á hverjum degi.
Jæja . . . er hún eins lioldug
og hún lítur út fyrir að vera?
Stúlkan svaraði ekki, og
ég hélt áfram:
- Segðu mér það hara,
barnið gott. Þér er vel kunn-
ugt um, að sumt kvenfólk
hefur kodda, þar sem . . . á
þeim hluta líkamans, þar
sem unghöm drekka . . . og
á þeim hluta líkamans, sem
menn sitja.... Hefur hún
kodda.... ?
Césarine horfði niður fyr-
ir sig og sagði feimin:
— Komið þér xneð allar
yðar spurningar, herra, og
ég skal svara þeim öllum í
einu.
— Jæja, stúlka mín. Sumt
kvenfólk er svo kiðfætt, að
það relcur saman linén við
hvert skref, en á öðrum kon-
um er bilið á milli hnjánna
svo mikið, að það minnir
lielzt á brúðarhoga. Menn
geta liorft á landslag í gegn-
um það. Hvort tveggja er
mjög hrifandi. Segðu mér,
hvernig fætur húsmóður
þinnar eru.
Stúlkan svaraði ekki, og
ég liélt áfram:
— Sumt kvenfólk hefur
digra hándleggi, en mjóan
bol. Sumar eru vel vaxnar að
framan, en illa vaxnar að
aflan. Enn aðrar eru illa
vaxnar að framan, en vel
vaxnar að aftan. Öll þessi
vaxtarlög eru auðvitað mjög
falleg — mjög töfrandi —
en mig langar til að vita,
hvernig húsmóðir þín er
vaxin. Ef þú segir mér það
afdráttarlaust, mun ég gefa
þér meiri peninga.
Césarine horfði rannsakandi
á mig, hló lijartanlega og
sagði:
— Að undanteknu þvi. að
liún er dökkhærð, er hún
sköpuð alveg eins og ég.
Siðan liljóp hún í burtu.
Og ég stóð eftir eins og
bjáni. En ég hét því, að ég
skyldi að minnsta kosti ná
mér niðri á þessari þrjózku
vinnukonu.
Stundu síðar fór ég inn í
herbergið, þar sem hún
hlustaði eftir hrotum mín-
um, og slökkti ljósið.
Hún kom um miðnættið
til að halda vörð, og þegar
liún varð mín vör, ætlaði
hún að reka upp hljóð, en ég
lokaði munni hennar með
lófunum og gekk úr slcugga
um, að ef liún hefði ekki
logið að mér, væri frú de
Jadelle sannarlega vel slcöp-
uð.
Ég verð að játa, að ég hafði
ánægju af þessari rannsókn,
og það leil út fyrir, að Césa-
rine skemmti sér ekki síður.
Hún var af liinu dásamlega
normanska kyni, sem er
hvort tveggja i senn, bæði
holdugt og grannvaxið.
VIÐ URÐUM BRÁTT góðir
vinir. Hún var eðlileg í fram-
komu og skynsöm, og hún
virtist sköpuð til ásta. Henni
var ókunnugt um nokkrar
lireinlætisvenjur, en ég
kenndi lienni þær fljótlega
og gaf henni strax sama
kvöldið glas af kölnarvatni.
Ánægjan, sem hún veitti
mér, gerði mér mögulegt að
bíða með þolinmæði eftir
ákvörðun frú de Jadelle. og
framkoma mín varð róleg
og óaðfinnanleg. Frú de Ja-
delle var sýnilega ánægð með
mig, og ég varð þess var, að
ég mundi brátt fá fulla við-
urkenningu.
Ég var sannarlega lukk-
unnar pamfíll, þar sem ég
beið eftir löglegum kossi
Verfllistinn
Hlemmtorgi
(húsi Egils Vilhjálmssonar)
Sími 83755
Táningakápur
GLÆSILEGT
ÚRVAL,
ALLAR
SÍDDIR
Verðlistinn
23. tw. vikaN 45