Vikan - 20.08.1970, Page 35
Mia Farrow
Framhald af bls. 27.
verða nunna, en hún svaraði því
til að ég væri ekkert annað en
stelpukjáni.
Stúlkur á hennar aldri voru
farnar að mótast líkamlega og
að fara út með piltum — en
ekki Mia litla Farrow. Þegar hún
leit í spegilinn var hún renni-
flöt og hafði álíka mikinn „sex
appeal“ og baunagras.
Farrow-hjónin fengu nær því
taugaáfall þegar dóttir þeirra,
þá 13 ára gömul, lýsti því yfir
að hún hefði ákveðið að stappa
ryk hinnar kaþólsku kirkju af
fótum sér. Indversk trúarbrögð
voru öllum öðrum ofar, sagði
hún. Foreldrar hennar reyndu
að „koma fyrir hana vitinu“, en
ekkert gekk — enda áttu þau
nóg með að halda í hjónaband
sitt.
Mia, eða ,,músin“ eins og systk-
ini hennar kölluðu hana, var
hændust að bróður sínum, Mic-
hael, sem var fimm árum eldri
en hún sjálf. f skólafríum voru
þau tvö alltaf saman, þar eð
ekkert af hinum systkinunum
hafði áhuga á að umgangast Miu.
Hún var á heimavistarskóla í
London þegar hún fékk sláandi
fréttir, dag einn í október árið
1958. Það var skeyti með þær
fréttir að Michael væri dáinn —
hefði farizt er tvær einkaflug-
'ælar rákust saman yfir San
Fernando-dalnum.
Fimm árum síðar, eða 28.
janúar 1963, lézt faðir Miu af
hjartaslagi á heimili sínu í Be-
verly Hills í Hollywood. Hún
þekkti svo sem sögurnar sem
gengu af honum, hann var kall-
aður „Casanova", og hún vissi
að móður hennar hafði alltaf
tekið þetta sárt.
Stuttu eftir dauða hans sagði
Mia: •— Hann var prédikari og
hórkarl, sterkur og lítilsmegn-
ugur, ákveðinn og undanláts-
samur, þvaðrari og skáld. Hann
var einstaklega margbrotinn
persónuleiki. og ég elskaði hann.
Eftir jarðarförina flaug Mia
til New York ásamt móður sinni,
sem þá lék i Broadway-leikrit-
inu „Never Too Late“. Mia fór
að búa með móður sinni og sótti
leikskóla. Fyrsta hlutverk henn-
ar var aukahlutverk í hinu
eamla og góða leikriti Oscars
Wildes, „Bunbury". Þó hlut-
verkið væri lítið gekk Miu vel
og með blaðadóma og meðmæli
í böndunum heimsótti hún um-
boðsmann nokkurn sem útveg-
áði henni hlutverk í tveimur
siónvarpsleikritum. - Hún lék
ömurlega, sagði móðir hennar
nýlega. En þrátt fyrir það var
það ekki svo ömurlegt að hún
fengi ekki fleiri og stærri hlut-
verk og í kjölfarið fylgdi hag-
stæður og langvarandi samning-
ur við Twentieth Century-Fox.
Fyrsta myndin sem hún lék í
Colgate fluor
gerir tennurnar sterkari
við hverja burstun.
SPYRJIÐ TANNLÆKNI YÐAR . . .
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate
Fluor hefur mikla þýðingu fyrir tennur yðar og
allrar fjölskyldunnar.
BYRJIÐ í DAG - ÞAÐ ER ALDREI OF SEINT . . .
Frá allra fyrstu burstun styrkir Colgate Fluor
tannglerunginn og ver tennurnar skemmdum.
Með því að bursta tennurnar daglega með Col-
gate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn gegn
sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög
er hætt við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt
tennur barnanna.
Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem a'ðeins Colgate Fluor tannkrem hefur.
34. tbi. viKiAN 35