Vikan - 27.08.1970, Qupperneq 5
Betty baby
Því hefur verið haldið fram að
fáar þjóðir hafi jafn mikið um-
burðarlyndi til að bera og Hol-
lendingar, og þar má vafalaust
finna á ástæðuna fyrir því, að
þær raddir hollenzkar sem krefj-
ast afnáms konungsdæmis, eru
bæði fáar og hjáróma. Þessi
mynd af Beatrix prinsessu var
tdkin nýlega er hún opnaði
blómasýningu í Utrecht, og voru
henni afhent blóm í því tilefni.
En ekki fáum við nú betur sé en
að þau séu bæði mögur og visin.
Þarna er hann ...
Þessi mynd þarfnast í rauninni
ekki skýringar við, en hún er
tekinn í Regent’s Park í Lundún-
um, og sýnir unga stúlku horfa
á eftir storkinum. Úr svip hennar
má lesa: — Ja, sá var ekki lengi!
eða: — Þarna ertu, bölvaður!
Sjáðu hvað þú hefur gert!
Bobby hlær
Brezkir lögregluþjónar hafa
löngum verið þekktir fyrir að
sýna stillingu og álvöru á við-
eigandi augnablikum. Fyrir utan
Downingstræti númer 10 í Lon-
don er venjulega lögregluvörður,
því þar býr forsætisráðherra
Elísabetu drottningar. Auðvitað
ber viðkomandi ,,bobby“ að vera
með iarðarfararsvip, en um dag-
inn brást einum bogalistin. Ung-
ur maður gekk hiá með venju-
legan poka í hendinni, en þegar
hann sá alvörusvipinn á lögreglu-
þjóninum fiktaði hann eitthvað
í pokanum sem rak upp hiátur
svo mikinn og ægilegan að póli-
tíið skellti upp úr.
Pokinn ku annars vera það
nýjasta í Evrópu, nokkurskonar
segulbandstæki, sem hefur þann
hæfileika að hlæja svona smit-
andi.
• vísur vikunnar
Sízt í fyrstu eg frúna leit
með frygðargreinum,
eg varð gripinn af grimmdarmeinum.
Leizt mér þessi laukaþöll
sú listug kvinna,
þar fyrir gekk mín gervöll sinna.
Hárið rétt á hringþöll er
sem hrannarglóðin
eðr sem logandi linnaslóðin.
Brúnalandið glóar því líkt
sem geislar renna,
sjálf náttúran setti þenna.
Indriði kópi.
Tígrisbúrin gleymdust
Þess er skemmst að minnast að
hálfur heimurinn fór á annan
endann þegar fréttist um „tígris-
búrin“ svonefndu í Con Son
fangelsinu á Djöflaeyju í S-Viet
Nam. Nú hefur bandaríski þing-
maðurinn frá Michigan, John
Conyers, látið upp, að hann hafi
gefið skýrslu um þessar ömur-
legu búðir fyrir ári síðan, eða í
júní 1969, og því hefði heilt ár
farið í vaskinn — einfaldlega
vegna þess að forsetinn gat ekki
fundið sér hentugan tíma til að
hitta Vonyers. Þvi fór sem fór,
að málinu var stungið undir stól
unz aðrir þingmenn brugðu sér
til Con Son og kynntu sér hluta
þessarar djöfullegu refskákar.
Gengisfellingu í
S-Vietnam
Um langt skeið hefur stjórn
Bandaríkjanna lagt hart að lepp-
stjórn sinni í Saigon að lækka
gengið þar í landi, en krónan ku
heita „piaster" í alríki Thieus.
Þó fékkst hann ekki til að lækka
gengið jafn mikið ig Nixon fór
fi’am á en nú er hægt að selja
dollarann á 235 píastra. Áður
kostaði dollarinn um það bil 360
á svörtum markaði, sem er nær
allsráðandi, en opinbert verð var
118 píastrar.
Á hverju ári senda Bandaríkin
hershöfðingjunum í Suður Viet
Nam 500 milljónir dollara, en það
eru 44 billjónir íslenzkra króna.
☆
35. tbi. VIKAN 5