Vikan - 27.08.1970, Blaðsíða 16
Sakamálasaga eftir Henry Slesar
JAGÚARBÍLLINN, hvítur og gljáandi eins
og stór köttur, stóð í útstillingarglugganum
og freistaði vegfarenda með öllum sínum
glæsileik. Loú Rice horfði á hann í gegnum
rúðuna. Honum fannst hann verða þurr í
kverkunum og fiðringur fara um magann af
löngun í þennan hvíta bíl. Hann varð sjúk-
ur af því að sjá bílinn, og sömuleðiis varð
hann sjúkur af hatri til gamla bílsins síns,
sem var módel 1959. Bíllinn hans skrölti all-
ur og skjökti og var eiganda sínum hvar-
vetna til skammar. Lou var sjúkur af löng-
un til að setjast upp í mjúkt sæti Jagúarins
við hvítt og nýtízkulegt stýrið, — sjúkur af
löngun í að finna hraðann, sem gefið var
upp að vélin næði, sjúkur af löngun að fá
að stjórna og ríkja yfir þessu lúxusdýri,
meðan hraðinn ykist stöðugt, 100 110 —
120... .
Hann ýtti hattinum aftur á hnakka og
stundi þungan. Hann velti því fyrir sér,
hvort hann ætti að fara inn og hlusta á sölu-
manninn lofa og prísa vagninn, veita sér
þann munað að fá að setjast upp í hann og
taka utan um stýrið. Hvað sakaði, þótt hann
ætti ekki einu sinni peninga fyrir einu hjóli
á bíl? Hann var útlits eins og maður, sem á
töluvert undir sér. Hann var í nýtízkulegum
og snyrtilegum fötum og gat þess vegna hæg-
lega verið forstjóri. Já, því ekki það?
En svo gnísti hann tönnum, stakk höndun-
um djúpt niður í buxnavasana og gekk fram-
hjá glugganum. Ekki í dag, tautaði hann við
sjálfan sig, ekki í dag, en ef til vill einhvern
tíma. . . .
Hann var ekki fyrr kominn fyrir hornið á
götunni en ný fjárhagsáætlun hringsólaði í
höfðinu á honum, rétt eins og fréttirnar á
byggingu stórblaðsins New York Times. Hann
ætlaði að vinna mikið. Hann ætlaði að spara
og spara og sömuleiðis að þéna meira og
meira. Áætlunin átti að hefjast strax í dag.
Hann keypti sér morgunblöðin og gekk í
ömurlega hverfið, þar sem ömurlega hótel-
ið hans var. Hann kinkaði kolli til dyravarð-
arins, Charlie, og tók ískrandi lyftuna upp
á fjórðu hæð. Þegar hann var kominn inn í
herbergið sitt, fór hann úr jakkanum og
fleygði sér upp í óumbúið rúmið með blöð-
in, sígarettur og öskubakka. Fimm mínútum
síðar kom Charlie með kaffi. Vinna Lou Rice
var hafin.
Síðurnar með dánartilkynningunum lof-
uðu góðu. Það voru þrjár langar minningar-
greinar allar með myndum. Hin fyrsta var
um forstjóra fyrir stóru fyrirtæki, aldur 66
ár. Lou renndi augunum yfir greinina. Heim-
ili hins látna var í Cleveland. Engar nánari
upplýsingar.
Næsta fórnardýr var frá New York og
honum leizt betur á það. Sá gamli hafði lifað
nær alla sina nánustu ættingja. Sá eini, sem
lifði ennþá, var frænka í Wuchita.
Árans vandræði, tautaði Lou.
Hann sá strax og hann fór að lesa þriðju
minningargreinina, að hún væri álitlegust:
„Gerald T. Otwell, eigandi vefnaðarvöru-
verksmiðju fórst í bílslysi." Hann las alla
16 VIKAN 35. tbi.