Vikan - 27.08.1970, Page 6
r-IGNiS--,
. FRYSTIKISTUR
IGINS-djúpfrystirinn gerir yður kleif hagkvæmari matar-
innkaup og sparar yður snúninga vegna matarkaupa.
Tvöfaldur þéttilisti í loki — hlifðarkantar á hornum —
Ijós i loki — færanlegur á hjólum — Ijósaborð með
rofa fyrir djúpfrystingu. kuldastilli og 3 leiðbeiningar-
Ijósum, „gult djúpfrystíng" — „grænt venjuleg frysting"
— „rautt ol lág frysting". —
145 Itr. kr. 16.138.— kr. 17.555.— | út + 5 mán.
190 Itr. kr. 19.938,— kr. 21.530.— jr út + 5 mán.
285 Itr. kr. 24 900,— kr. 26.934 — j út + 6 mán.
385 Itr kr. 29 427 — kr 31800— { út + 6 mán. ™
RAFTORO
VIÐ AUSTURVÖLL
SI'MI 26660
Fullkomnasta gardínu- uppsetning á markaðnum
meö o< fjölbrey litaúrva 3 án kap tt llpi í >pa M ZETfl i Skúlagötu 61 slmar 25440 míWmmmm 25441
Til að borga tapið
á menningunni
Reykjavík, 7/8 1970.
Háttvirti Póstur!
Tilefni það er rekur mig til að
slá í mína andans truntu, er
gagnrýni, það er að segja bréf-
korn frá „húsmóður“ og „tán-
ingi“. Og með þínu leyfi, Póstur
sæll, langar mig til að gapa dá-
lítið líka.
Þegar sú fregn barst íslenzkri
æsku, að von væri á hljómsveit-
inni Led Zeppelin til vors ást-
kæra lands, voru umræddir
snillingar fremur lítt þekktir af
fjöldanum. En allt í einu brá svo
við að Zeppelin urðu í senn bæði
vinsælasta og bezta erlenda
hljómsveitin. Plötur þeirra seld-
ust upp hvað eftir annað, og
ekki var um annað rætt en hina
stórkostlegu Led Zeppelin með-
al pottorma bæjarins. En hvað
gerðist? Tónlist þessara snillinga
fór fyrir ofan garð og neðan og
neðan hjá flestum, og nokkrir
íslenzkir poplistamenn lýstu því
yfir að þeir hefðu orðið fyrir
miklum vonbrigðum með hljóm-
leikana. Enda kom í ljós, að
Zeppelin voru illa upplagðir og
einnig óánægðir með sína ís-
lenzku aðdáendur sem greini-
lega höfðu fæstir nokkra „feel-
ingu“ fyrir tónlist þeirra.
„Húsmóðir“ sú er ykkur skrif-
aði, segir meðal annars í sínu
stórkostlega bréfi, að „þetta (út
af fyrir sig ber orðið ,,þetta“
vott um miður gott uppeldi)
framleiði ekkert annað en ein-
hvern laglausan hávaða.“ Það er
rétt, hávaðinn er mikill. Enda
er það liðin tið að dansa eftir
einni fiðlu eða harmónikku, eins
og vafalaust hefur tíðkazt í æsku
húsmóðurinnar. Og hvort tón-
list þeirra sé laglaus, ég held ég
láta þá fullyrðingu vera einka-
mál frúarinnar. „Húsmóðirin“
efast einnig um hreinlæti þeirra,
og vafalaust er sú vizka sprott-
in af eigin reynslu.
En svo var það annar sálmur.
Hvernig stóð á því að þeir Zeppe-
lin menn voru fengnir hingað?
Ég leyfi mér að efast um að þar
hafi verið um að ræða skilning
eða áhuga á að koma til móts við
unga fólkið, eins og yfirlýsingar
forráðamanna hátíðarinnar báru
vott um. Þar var það gróðasjón-
armiðið sem réði. Því þeir vísu
menn þóttust vita (eins og
reyndar kom í ljós) að halli
myndi verða á fyrirtækinu. Því
var gripið til þess ráðs að fá
hingað hljómsveit fyrir ungling-
ana, því öruggt mátti telja, að
unglingarnir settu ekki fyrir sig
að greiða helmingi hærra verð
en aðrir hátíðargestir. Og skyldi
svo gróðinn notaður til að
minnka tapið á „menningunni".
Þetta er gamla reglan, ef eitt-
hvað á að bera sig, þá er nauð-
synlegt að laða unglingana að,
því að á þeim má græða þótt
menningarsnobbin hafi enga
peninga.
Ég hef nú hvolft úr minni and-
legu ruslafötu í þetta sinn, og
bið ykkur vel að lifa.
CHAPLIN.
Utanáskrift BBC
Vestmannaeyjum, 17/7 1970.
Kæri Póstur!
Getur þú sagt mér hvert á að
skrifa ef maður ætlar sér að
senda kveðju í þætti hjá BBC,
það er að segja hvaða utaná-
skrift maður notar.
Að lokum þetta vanalega,
hvernig er skriftin?
A.B., Vestmannaeyjum.
Utanáskriftin er: BBC Publica-
tions 35, Marylebone, High
Street, London W. 1., England.
Skriftin er fremur þokkaleg.
Að spá í bolla
Mig hefur lengi langað til að
skrifa þér en aldrei komið því í
verk. Jæja, erindið er að spyrja
hvort þið gætuð ekki komið með
leiðbeiningar til að spá í kaffi-
bolla, spil eða eitthvað svoleiðis.
Og svo að síðustu: Hvernig er
skriftin og hvað sérðu út úr
henni? (Ég er þrettán ára).
Tobba.
Vikan hefur oft birt efni um
ýmiss konar launspeki, og getur
vel komiff til greina aff einhvern
tíma komi í blaffinu eitthvað um
höff. sem hú nefnir. Skriftin er
of óráffin til aff hægt sé aff lesa
nokkuff ákveffiff út úr henni.
Hrútur og Fiskur
Viltu segja mér hvernig Fiska-
merkið og Hrútsmerkið eiga
saman? Og hvernig eiga svo þeir
saman sem eru í Hrútsmerkinu?
Vona að þú getir svarað mér og
helzt enga útúrsnúninga.
G.J.
Fólk í Hrút og Fiskum á fátt
sameiginlegt, og yfirleitt gengur
því illa aff vinna og lifa saman.
Hrútfólk á hins vegar vel sam-
(> VIKAN 35. tbi.