Vikan - 27.08.1970, Síða 44
inn. Hershöfðinginn bauð mér
líka að gerast aðstoðarforingi
keisarans með tveimur skilyrð-
um: að ég skipti um nafn og
sleppti öllu sambandi við for-
eldra mína.
Því tilboði neitaði Paul Nie-
hans og hlaut við það aukna
virðingu keisarafjölskyldunnar.
Hann fékk aðgang að hirðinni
og dansaði á öllum stórböllum
aldamótaáranna við hirðirnar í
Berlín og Vín, en til síðarnefndu
borgarinnar fór hann með sér-
stök meðmæli frá móðurbróður
sínum til Frans Jósefs Austur-
ríkiskeisara.
—• Það voru dásamlegir tímar,
segir Paul Niehans. — Ég kenni
í brjósti um alla, sem ekki upp-
lifðu þá.
En þeir tóku enda. Þegar Paul
kom aftur heim til foreldra sinna
í Sviss, heimtaði móðir hans að
hann yrði prestur, og hún var
ekkert lamb að leika við. Tutt-
ugu og eins árs að aldri var hálf-
bróðir Þýzkalandskeisara farinn
að syngja messur í dómkirkjunni
í Bern. En hempan tolldi ekki
lengi á herðum hans.
Hann fór að læra læknisfræði
í Ziirich og lifði jafnframt eins
ljúfu lífi og hann mögulega gat.
Á því tímabili kom Vilhjálmur
keisari í opinbera heimsókn til
Sviss, og að beiðni hans varð
Paul einn fjögurra aðstoðarfor-
ingja hans meðan á heimsókn-
inni stóð. Að skilnaði gaf móð-
urbróðir hans honum hest góð-
an.
— Mér var ekki nokkur leið,
segir Niehans, — að útskýra fyr-
ir hinum þremur hvers vegna
einmitt ég fékk svo góða gjöf.
Fyrstu skurðaðgerð sína gerði
þessi frægi læknir í sumarleyfis-
ferð. Þá tók hann með borðhníf
botnlangann úr barni einu á af-
skekktum bóndabæ.
STÆKKAÐI DVERGA
í Balkanstríðinu fyrra fór Nie-
hans til Serbíu sem fyrirliði leið-
angurs, sem svissneski Rauði
krossinn sendi þangað. í heims-
styrjöldinni fyrri fór hann til
Lyon til að starfa þar sem skurð-
læknir. Einhvern veginn hafði
frönsku leyniþjónustunni tekizt
að þefa uppi hvert ætterni hans
var og grunaði hann um njósn-
ir. Sams konar grunur féll á
hann síðar í Vín, af því að hann
hafði verið í Frakklandi. Nie-
hans læknir vann sextán mán-
uði í víglínunni, meðhöndlaði
fimmtán þúsund særða og sjúka
og særðist sjálfur tvívegis.
Þegar friður var saminn sett-
ist Paul Niehans að í Clarence
ofan við Vevey við Genfarvatn.
Hann hóf rannsóknir á grund-
velli uppgötvana sem líffræð-
ingurinn Alexis Carrel hafði
gert. Hann hafði komizt að því
að hægt var að gefa kjúklingum
nýjan kraft í hjörtun með því
að setja í þá frumur úr skyldum
tegundum. Annar vísindamaður
sannaði að frumur í mannslík-
amanum dragast að frumum af
sömu gerð og þær sjálfar eru.
Óþörfum frumum er hrundið á
brott.
Paul Niehans gekk að eiga
enska konu, Coralie Marsh, og
tveimur árum síðar framkvæmdi
hann sinn fyrsta frumuflutning.
Færði hann þá frumur úr kálfi
í ungan dverg, sem við þetta
lengdist um þrjátíu og tvo senti-
metra.
— f næsta sinn sem við kom-
um til Bandaríkjanna var hótel-
ið þar sem við bjuggum um-
kringt af dvergum, sem vonuðu
að ég gæti hjálpað þeim. Hótel-
stjórinn neyddi okkur til að
flytja, segir prófessorinn frá.
Fyrstu frumuinnspýtinguna
framkvæmdi Niehans ekki fyrr
en hann var kominn um fimm-
tugt. Sá viðburður varð víð-
frægur. Þar var um að ræða
konu, sem skjaldkirtillinn hafði
skaðast í vegna mistaka við upp-
skurð. Niehans, sem kallaður var
á vettvang til frumuflutnings,
malaði í duft kirtil úr nauti,
er nota átti við aðgerðina, og
sprautaði upplausninni inn í
sjúklinginn.
— Þessi hugdetta kom yfir
mig eins og innblástur, segir
Niehans, en nærstaddir starfs-
bræður hans voru skelfingu
lostnir.
Sjúklingurinn lifði í þrjátíu ár
til viðbótar.
SINNTI CHURCHILL —
HIKANDI
Frá þeirri stundu var þessi
leynikvistur af ættartrénu Ho-
henzollern meðal heimsins fræg-
ustu manna.
Hann var kallaður til Eng-
lands að lappa upp á heilsu Ge-
orgs konungs sjötta, en aðferðir
hans þóttu þar of byltingar-
kenndar svo að aldrei kom til
þess að hann framkvæmdi neina
aðgerð á konungi. Hann fór til
Indlands og stundaði maharaja
nokkurn, sem hélt honum föngn-
um í höll sinni unz ljóst var að
aðgerðin hafði heppnazt. í Sviss
var hann umsetinn af film-
stjörnum, stjórnmálamönnum og
milljónerum, en margir starfs-
bræður hans fullyrtu að kenn-
ingar hans væru röfl eitt. Hann
var almennt kallaður „yngingar-
læknirinn".
Ef dæma má af honum sjálf-
um — því að Niehans hefur oft
notað sjálfan sig í staðinn fyrir
tilraunakanínu — virðast að-
ferðir hans ekki áhrifalausar.
Kona hans, ein af fáum konum
sem viðurkenna að hafa notið
yngingarmeðferðar, lítur lika
áberandi unglega út.
Heimili þeirra er fullt af dýr-
mætum gjöfum frá þakklátum
sjúklingum með fræg nöfn.
Charlie Chaplin, de Gaulle og
Churchill hafa allir verið meðal
sjúklinga Niehans. Hvað Chur-
chill snertir er að vísu fullyrt að
prófessorinn hafi aldrei gefið
sjúklingnum inn nema þurrkað-
ar frumur. Niehans er nefnilega
nógu ættrækinn til að bera
þungan hug til Churchills vegna
þess þáttar sem hann átti í að
búta Þýzkaland niður. Aðrir
vísa öllum slíkum orðrómi á bug
og segja að aðgerðin á hinum
enska járnkarli hafi mistekizt
einfaldlega vegna þess, að hann
hafi ekki látið sér detta í hug
að hlýða ráði læknisins að snerta
ekki konjak og vindla í þrjá
mánuði, sem hefði verið frum-
skilyrði þess að allt gengi vel.
Paul Niehans var líka kallað-
ur á fund Páls páfa tólfta, þeg-
ar sá höfðingi lá fyrir dauðan-
um af magasári.
HEIMILI HANS ER SAFN
Nú er frumufræðinni beitt við
lækningar um allan heim, en
prófessorinn hefur fengið öðrum
í hendur stjórn sjúkrahælis síns
og einbeitir sér sjálfur að krabba-
rannsóknum.
Hann er ennþá jafn herskár
og fyrrum. Honum er brennandi
áhugamál að sannfæra fólk um
að kenningar hans séu réttar.
— Ég vil hjálpa fólki, segir
hann. — Þegar allt kemur tii
alls var Semmelweis, sem vann
bug á barnsfarasóttinni, sagður
geggjaður, og sjálfur Pasteur var
talinn allt að því glæpamaður.
í samanburði við þá hef ég ver-
ið heppinn. Ferskar frumur eru
nú notaðar við lækningar í flest-
um löndum. Ég hef að minnsta
kosti vísað veginn.
Heimili Niehans er nánast
safn og stígurinn heim að því
liggur á meðal hárra kýpurvið-
artrjáa. Þar er meðal annars að
finna það sverð Friðriks þriðja
keisara, afa læknisins, sem hann
bar við hersýningar. Þar er líka
mynd af keisarafjölskyldunni,
vínglas sem Friðrik mikli átti,
testell í gulli og silfri frá ev-
rópckum þjóðhöfðingjaættum,
málverk eftir van Dyke og hús-
gögn eftir Búhl. Þar er ennfrem-
ur einstakt safn muna úr eigu
þeirra heiðurshjónanna Napóle-
ons og Jósefínu.
Slík heimili eiga ekki margir
borsaralegir læknar, en í vinnu-
herberginu eru hrúgur af bréf-
um, læknatímaritum og rann-
sóknaskýrslum. Þar vinnur Paul
Niehans morgun hvern, og hann
rís árla.
Augu gamla læknisins sindra
er hann talar um ættingja sína
af ættinni Hohenzollern, sem
hann sýnir fulla virðingu og
hollustu. Á hverju ári fara þau
hjónin í veizlu, sem haldin er í
hinum forna kastala ættarinnar,
og mæta þar þá allir þeir með-
limir hennar sem heimangengt
eiga. Niehans segir að stundirn-
ar þar séu þær „hamingjuríkustu
á árinu“r
Þá ber Coralie Niehans skart-
gripina sem tengdamóðir henn-
ar fékk að gjöf í brúðkaupi sínu
— keisaralegt skraut sem tekur
fram flestu því, er aðrar konur
af ættinni geta prjálað með nú
orðið.
☆
ÞREVTTIR FJETUR
Hver þekkir ekki viðstöðulausa þreytu í fótum við erfið
störf? — Bi-sjúkrasokkamir eru í mörgum tilvikum
ráðið. Þeir eru fallegir og sterkir, en umfram allt: þeir
hvíla fæturna. — Við getum boðið yður þessa úrvals-
sokka í 3 litum.
□ Jasmin, kr. 483,00.
□ Melon, kr. 483,00.
□ Saba, kr. 483,00.
□ Saba, þykkri gerð, kr. 603,00.
Vinsamlega merkið við þá tegund, sem þér óskið eftir.
Sendið nafn og heimilisfang. — Við póstsendum.
Doraus Medice, sími 18519, Reykjavík.
44 \RKAN 35- tw.