Vikan - 22.07.1971, Blaðsíða 2
GUÐBERGUR AUÐUNSSON
Gæði og aftur gæði.
Sjónvarps- og stereotæki verða til á býsna marg-
víslegan hátt: I fyrsta lagi eru verksmiðjur, sem
leggja allt upp úr mjög lágum verðum. Ekki eru
gæði eða tæknilegir eiginleikar tækja frá þessum
verksmiðjum upp á marga fiska, enda er ekki að
þvi stefnt. — 1 öðru lagi eru verksmiðjur, sem
byggja að mestu á lágum verðum, en hafa þó
jafnframt ( tækjunum einhver sláandi tæknileg
einkenni, sem almenningur kann skil á (t. d. svo
og svo marga transistora). Enn gildir þó hið sama.
Gæðin eru af mjög skornum skammti, og er -oft
reynt að hilma yfir það með þokkalegu útliti. — 1
þriðja lagi eru verksmiðjur, sem grundvalla söl-
una að jöfnu á vel samkeppnisfærum verðum og
gæðum og tæknilegum einkennum. Þar sem fyrir-
fram ákveðin verð binda þó gæðin og tæknilega
fullkomnun fara verksmiðjur þessar troðnar slóðir
í byggingu tækja sinna og |eggja takmarkað af
mörkum til að endurbætá eða fullkomna fram-
leiðsluna. Þessar verksmiðjur eru algengastar, og
er meiri hluti þeirra tækja, sem hér eru á boð-
stólum frá verksmiðjum af þessu tagi. — i fjórða
og síðasta lagi eru verksmiðjur, sem leggja allt
upp úr gæðum og aftur gæðum, endurbótum og
aftur endurbótum, fullkomnun og aftur fullkomn-
un. Þessar verksmiðjur reikna út verðið EFTIR Á.
Auðvitað eru tæki þessara verksmiðja nokkru
dýrari, en þó borgar sig alltaf að kaupa þau.
Gæðamunurinn er nefnilega alltaf meiri en verð-
munurinn. Þetta eru verksmiðjurnar, sem ryðja
brautina og knýja fram endurbætur og framfarir.
Þetta eru verksmiðjurnar, sem hafa gæði og
tæknilega yfirburði að aðalsmerki. — í hópi þess-
ara síðastnefndu eru IMPERIAL verksmiðjurnar í
Vestur-Þýzkalandi.
KAUPIÐ ÞVl KUBA-IMPERIAL, ÞAÐ BORGAR 3IG!
ImperirL
Sjónvarps & stereotæki
NESCOHF
Laugavegi 10, Reykjavík. Símar 19150-19192