Vikan - 29.07.1971, Side 48
Síðan §íða§t
TÍZKUTEIKNARINN ER BLINDUR
ÞEIR TEFLDU SKÁK
Á HAFSBOTNI
Kannski endar offjölgunar-
vandamálið með því, að stór
hluti jarðarbúa verður að búa
neðansjávar. Eins og kunnugt
er hylur vatn mestan hluta jarð-
arinnar. Þangað verður því að
leita að nýju rými, fyrir utan
geiminn. Oft hefur verið rætt
um að reyna að þurrka upp
heilu höfin, eins og til dæmis
Miðjarðarhafið. En úr því hefur
ekkert orðið enn, hvað sem síð-
ar verður.
Hver veit nema við eigum eft-
ir að lifa froskmannslífi á hafs-
botni? Eða búa kannski í fljót-
andi húsum? Ástralskt fyrirtæki,
sem framleiðir froskmannsbún-
inga, hefur sett sér það mark-
mið að sanna, að unnt sé að
gera allt hið sama neðansjávar
sem ofanjarðar. Einn liður í þess-
ari viðleitni er, að tveir af starfs-
mönnum fyrirtækisins brugðu
sér niður í sjóinn nýlega til að
tefla þar skák í ró og næði.
Þeir tefldu í hvorki meira né
minna en þrjátíu klukkustundir.
LÉT EFTIR SIG
90 MILLJÖNIR
Fyrir tíu árum varð Carin Dandenell blind á báð-
um augum. Samtímis missti hún starf sitt, en hún
hafði verið tízkuritstjóri við stórt kvennablað í Sví-
þjóð. Það leiddi af sjálfu sér, að hún gat ekki gegnt
starfi sínu, eftir að hún hafði misst sjónina.
En hún missti ekki kjarkinn. Og nú hefur hún
stofnað sitt eigið tízkufyrirtæki með öllu, sem slíkri
stofnun fylgir: saumastúlkum, tízkuteiknurum og
sýningarstúlkum. Það sem er óvenjulegt við þetta
fyrirtæki er, að nær allt starfsfólkið og allir við-
skiptavinirnir eru blindir. Þetta er tízkuverzlun ein-
göngu ætluð blindum og öll starfsemin miðuð
við það. Sýningarstúlkurnar fara ekki upp á pall
til að sýna nýju kjólana, heldur ganga um á meðal
viðskiptavinanna, svo að þeir geti „séð" kjólana
með þvi að þreifa á þeim.
Þegar hinn ástsæli franski
kvikmyndaleikari, Fernandel,
lézt fyrir nokkrum mánuðum,
var hann ákaft tregaður af þjóð
sinni. En þegar hann lézt, kom
svolítið í Ijós, sem enginn hafði
vitað um: Fernandel var i hópi
ríkustu manna í Frakklandi.
Hann lét eftir sig 90 milljónir
í fasteignum og reiðufé! Þetta
kom sérstaklega á óvart, þar
sem Fernandel barmaði sér oft
peningalega, og flestir héldu,
að hann berðist fremur í bökk-
um en hitt. Ættingjar hans, eig-
inkona og tvö uppkomin börn,
eru einu erfingjar hans og því
sannarlega ekki á flæðiskeri
stödd í framtíðinni.
Menn hafa nú rífjað upp, að
Fernandel annaðist sjálfur öll
innkaup fyrir heimili sitt. Og
karlarnir á mörkuðunum, en þar
var leikarinn tíður og kærkom-
inn gestur, segja, að enginn hafi
verið eins snjall að prútta um
verð og Fernandel.
48 VIKAN 30. TBL.