Vikan


Vikan - 09.03.1972, Blaðsíða 51

Vikan - 09.03.1972, Blaðsíða 51
DATSUN 1200 er bíllinn sem vekur mesta atbygli og aðdáun í sínum stœrðarflokki DATSUN 1200 er japanskur og ótrúlega ódýr DATSUN 1200 er frægastur allra DATSUN bíla fyrir það að vera langsöluhæstur allra innfluttra smábíla í U.S.A., enda eru Japanir frægir um a11- an heim fyrir vandvirkni og völundarsmíði. DATSUN 1200 er sér- staklega pantaður fyrir hina kröfuhörðu íslenzku kaupendur. — DATSUN fylgir: Litað öryggisgler í öllum rúðum, útvarp, svefn- sæti, ryðvörn, öryggisbelti, tveggja hraða rúðuþurrka, rafknúin rúðusprauta, innkaupagrind, fullkomið loftræstikerfi, kraftmikil miðstöð fyrir íslenzkar aðstæður, vindlakveikjari, armpúðar, skær bakkljós, stöðuljós og flest annað, sem íslenzkir kaupendur vilja. DATSUN 1200 er með 69 ha toppventlavél slagstutta á 5 höfuð- legum, tvöfaldur blöndungur, þrýstistillt kælikerfi, riðstraumsraf- a11, 12 volta, samhæfður 4ra gíra gólfskiptur gírkassi, gormfjöðr- un að framan, fjaðrir að aftan, tvöfalt öryggisbremsukerfi. Lægsta hæð á undirvagni 17 cm. DATSUN 1200 er aðeins 700 kg. Verð: DATSUN 1200 De Luxe DATSUN 1200 sjálfskiptur DATSUN 1200 station CATSUN 1200 coupé — 333.000,00 krónur — 362.300,00 krónur — 367.800,00 krónur — 370.000,00 krónur DATSUN-bílarnir hafa nú þegar unnið hug allra þeirra, sem vit hafa á bílum. Við höfum selt yfir 200 bíla nú á árinu 1971 og eigum í pöntun um 400 bíla á þessu ári, en samt fáum við aldrei nóg. • Við munum ávallt kappkosta að hafa sýningarbíla á staðnum til reynsluaksturs. — Komið, spyrjið og reynsluakið DATSUN og vonbrigðin verða hvorki ykkar né okkar. Getum selt DATSUN með afborgunum eða tekið gamla bíla upp í verðið. Verð á DATSUN 1200 án fylgihluta um 295 þúsund. INGVAR HELGASON Vonarlandi við Sogaveg - Simar 84510 og 84511

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.