Vikan - 09.03.1972, Side 21
Gatið var þar, fjölin hafði ekki
verið negld aftur.
Jacky þagði. Hún stóð graf-
kyrr meðan Jonathan lék sér
að því að ýta við henni með
byssuhlaupinu. — Það var ekki
fallegt af þér, sagði hann. —
Og nú ertu auðvitað reið yfir
því að ég laug að þér, þegar ég
sagði þér að þeir væru allir
farnir frá eynni? Hvað hefurðu
sagt þeim?
— Ekkert, sagði Jacky.
— En vina mín! Hann hló
lymskulega. — Eitthvað hef-
urðu sagt þeim.
Hvers vegna? Ég veit ekk-
ert sjálf.
En þú hefur ábyggilega
getið þér til um sitt af hverju.
— Það höfum við öll gert.
Jonathan horfði á Querol og
síðan á mig. — Er það?
Það varð stutt þögn. Svo
sagði Querol: — Við höfum séð
þig hér við vitann og það bend-
ir aðeins til eins: Að það á að
lokka einhvern til að kollsigla.
En hvað getum við gert við því?
Jonathan kinkaði ánægju-
lega kolli: — Ágætt! Þá skilj-
ið þið að ég geri það sem mér
sýnist. Ég vil ráðleggja ykkur
að reyna ekki til að hindra mig
í að koma áformum mínum í
framkvæmd. Stundum geta
krypplingar verið hættulegri
en heilbrigt fólk . . .
— Þú viðurkennir þá að þú
ert ekki með sjálfum þér, hrökk
út úr Querol og það var ekki
hyggilegt.
Jonathan varð skuggalegur á
svip, en hann sagði aðeins:
— Já, að vísu viðurkenni ég
það. Hvernig á maður að halda
sönsum, þegar maður verður
fyrir svona hræðilegu slysi
eins og ég? Hann mjakaði sér
nær dyrunum. — Þið verðið
að afsaka að ég má ekki vera
að því að þvæla þetta við ykk-
ur. Ég verð að hafa auga með
Leigh. Ef hann passar ekki
ljósmerkin, fer þá í San Se-
bastian að gruna eitthvað.
Strandgæzlan er á verði dag og
nótt, það veizt þú vel, Querol
skipstjóri!
Hann leit út um dyrnar, með-
an hann talaði við þau. Querol
laumaðist til að líta á úrið og
kinkaði laumulega kolli til
Jacky. Drengurinn bylti sér á
bekknum og leit út undanáugn-
hárunum, til að sjá hvað um
væri að vera. Spennan var
næstum áþreifanleg. Jacky var
náföl...Hefur þú fengið nokk-
uð að borða? spurði hún Jona-
than.
— Já.
»
— En Leigh?
— Hann má ekki vera að því,
sagði Jonathan háðslega. —
Hann verður að bíða. Ef ég
hefði ekki lent í þessum vand-
ræðum með ykkur, þá hefði ég
getað leyst hann af.
— En get ég ekki fært hon-
um einhvern bita? sagði Jacky.
— Hann getur vel borðað
brauðsneið eða kex þarna uppi,
það ætti ekki að tefja hann.
Þótt undarlegt megi virðast.
gaf Jonathan leyfi til þess. —-
Já, þú getur gert það. Það er
reyndar ágætis hugmynd. Ég
vil ekki að hann verði svo
hungraður að hann gíeymi sér.
Þetta sem hann er að gera er
mjög áríðandi!