Vikan - 26.10.1972, Page 24
BRIMKLÓ í
HUMATT
Ljósm. PJetur rfaack
Nú í byrjun október tók til
starfa ný hljómsveit og hlaut hún
eftir miklar vangaveltur rlafnið
Brimkló. Hljómsveitina skijla
þrfr úr hljómsveitinni Ævintýri,
sem lagði upp laupana fyrir u.þ.b.
níu mánuðum. Þeir eru Arnar
Sigurbjörnsson, Björgvin
Halldórsson og Sigurjón Sig-
hvatsson. Tií liðs viö þá eru þeir
Hannes Jön og Ragnar Sigurjóns-
son. Þetta eru allt kunnug nöfn og
hefur hvert um sig verið kennt við
ófáar hljómsveitir.
Ragnar, trommuleikari hljóm-
sveitarinnar, er upprunalega frá
Akranesi og lék að sjálfsögðu með
Dumbó, þegar sú hljómsveit var
og hét. Nú síðast var hann meö
Mánum. Þá bjó hann á Selfossi,
en harin hefur nú flutzt i bæinn. Að
eigin sögn var þaö tilbreytingar-
leysið fyrir austan og löngunin til
þess aö gera eitthvaö nýtt, sem
varö þess valdandi aö hann ákvað
að leggja land undir fót og freista
gæfunnar I stóru borginni bak við
fjöllin háu. Ragnar er 23 ára og
hefur spilað i 8 ár.
edvard sverrisson
músik með meiru
Arnar hefur nú spílað i samtalt
9 ár. Ferill hans hófst i hljóm-
sveit, sem Tiét Strengir. Siðan
tóku við Toxic, Flowers og nú
siðast Ævintýri. Það fór aldrei á
milli mála, að Arnar var meðal
okkar beztu gítarleikara þegar
hann var i Flowers og Ævintýri.
Væntanlega nær hann sér aftur á
strik fljótt, það er ekki um svo
auðugan garð góðra gítarleikara
að gresja.
Hannes Jón hefur og verið i
nokkrum hljómsveitum, þó svo að
hann hafi nú siðast að mestu
troðið einn upp. Hann hefur látið
frá sér fara plötu. L.P plötu sem
hlotiö hefur nokkra viðurkenn-
ingu. Feril sinn sem
hljómiistamaöur hóf Hannes Jón i
Tónum. Það er nú orðið nokkuð
langt siðan, liklega ein sjö ár. Við
af Tónum tók svo Sfynx, svo
Næturgalar, þá Fiðrildi og nú
sfðast Brimkló. Fiðrildi var eins
og flestir vita þjóðlagatrló.
Hannes Jón hefur samið töluvert
af lögum og verða væntanlega
einhver þeirra flutt af Brimkló 1
framtiðinni. Hannes Jón er 23 ára
gamall.
Sigurjón er 20 ára og er i
Verzlunarskólanum. Ferill hans
spannar einnig nokkrar hljóm-
sveitar og fer brátt að vera erfitt
að finna hljóðfæraleikara I
bænum, sem aðeins hefur verið i
einni hljómsveit
Hljómsveitirnar, sem Sigurjón
var I hétu: Kjarnar, Falkon,
Mods, Flowers og nú siðast Ævin:
týri. Eitthvað hefur hann samiö
af Iögum og textum.
Björgvin hefur verið söngvari
þriggja hljómsveita. :Bendix,
Flowers og Ævintyri. Hann hefur
m.a. gefið út eina sólóplötú. Fyrir
utan aö vera ágætur söngvari,
spilar Björgvin nokkuð vel á
munnhörpu. Það er eitt það hljóö-
færi, sem Islenzkar hljómsveitir
hafa notað ákaflega litið, en
kemur oft skemmtilega út I popp-
múslk.
Nú hef ég lltilega minnst á alla
meölimi Brimklóar. Þá er ekki úr
vegi aö fjalla aðeins um það, sem
Brimkló. f.v. Kagnar Sigurjónsson, Björgvin Halidórsson, Sigurjón
Sighvatsson, Hannes Jón Hannesson og Arnar Sigurbjörnsson.
þeir hafa ætlað sér að gera I
framtiöinni. Nú bregður svo við,
að þeir hafa alls ekki i huga að
gefa út plötu. Slíkt virðist vera
oröinn höfuðverkur allra meiri-
háttar hljómsveita hérlendis,
enda hafa Islendingar ávallt sótzt
eftir þvi sem erfiöast er að fá. En
sem sagt, engin plata frá Brimkló
I býgerð eins og er.
Þegar þeir félagar voru spuröir
um stefnu I músikmálum, svaraði
Hannes Jón af bragöi. — Segðu
bara aö hún sé I humátt—, og þá
vitum við það. En séu þeir ynntir
nánar eftir þessu, kemur I ljós, að
þeir hafa hugsað sér að spila eitt-
hvaö fyrir alla. Eitthvað fyrir alla
er nú til dags, I fólksmergðinni,
nokkuð fjölbreytt dagsskrá, eða
svo skyldi maður i'það minnsta
ætla. En hvort sem Brimkló
spilar eitthvað fyrir alla eða allt
fyrir einhverja, er einn hlutur vls,
Samkeppnin milli hljómsveita
hér á Reykjavikursvæöinu er
hörö og hljómsveitirnar eru hver
annarri betri. Brimklóin verður
þvi örugglega að hafa klória slna
úti nótt sem nýtan dag, til þess að
öðlast þá viðurkenningu og vin-
sældir sem hver hljómsveit
stefnir án efa að.
24 VIKAN 43. TBL.