Vikan - 02.11.1972, Qupperneq 5
Ef þú hefur farið með honum á
ballið, veiztu líklega núna, hvað
þú átt að halda, og alla vega
er ólíklegt, að hann byði þér á
ball, ef hann hefði ekki ein-
hvern áhuga á þér. Fámælgi
hans stafar sennilega af feimni.
Vertu glaðleg og uppörvandi
við hann, þá er líklegt, að allt
gangi vel. Hrúturinn og bog-
maðurinn eiga ágætlega saman,
en bogmaður og fiskur skilja
hvort annað ekki alveg eins vel.
Skriftin finnst okkur skemmti-
leg og læsileg, þótt hún sé ekki
beinlínis falleg, og við þykjumst
lesa úr henni, að þú sért frum-
leg, en kannski svolítið sérvit-
ur. Það gerir vonandi ekkert til.
Ofsalega hrifin
Elsku Póstur!
Ég hef lengi ætlað að skrifa
þér, og loksins geri ég það.
Svo er mál með vexti, að ég er
hrifin af strák og er búin að
vera það í tæpt ár. Ef þetta
verður nú svona áfram og ég
get ekki náð í hann, þá get ég
alveg eins dáið úr sorg, því ég
er alveg ofsalega hrifin af hon-
um. Og þó ég sé með öðrum
strákum, þá gleymi ég þessum
aldrei. Kæri Póstur, birtu nú
þetta fyrir mig. Svo þakka ég
þér allt gamalt og gott í Vik-
unni, sérstaklega allar góðu og
skemmtilegu sögurnar. Hvernig
er skriftin og stafsetningin? Og
hvernig eiga meyjarmerkið og
Ijónsmerkið saman?
>v
Fyrir nú utan það að vera ofsa-
lega hrifin, virðistu vera ofsa-
lega eigingjörn. Því ef þú ert
raunverulega hrifin af þessum
strák, þá áttu ekkert að vera
með öðrum strákum, það er
ekki rétt gagnvart þeim. Hver
v.eit, nema einhver þeirra yrði
ofsalega hrifinn af þér og dæi
jafnvel úr sorg, af því að þú
ert ofsalega hrifin af öðrum!
(Skelfing er annars búið að mis-
nota þetta OFSALEGA orð). -
Nei, Sigga min, sýndu nú svo-
litla stillingu og reyndu að
vinna hug piltsins þíns með
einhverju öðru en uppslætti með
öðrum strákum.
Skriftin lýsir talsverðri vanstill-
ingu og flumbrugangi. Staf-
setningin er góð, nema á stöku
stað hefurðu hreinlega sleppt
orðum úr setningum og stöfum
úr orðum. Þar birtist aftur óþol-
inmæðin í þér. Meyja og Ijón
eiga alveg þokkalega saman.
Hún vill verða
úrsmiður
Komdu sæll, Póstur góður!
Ég ætla að biðja þig að svara
nokkrum spurningum fyrir mig:
1) Hvað tekur langan tíma að
læra úrsmíðar?
2) Hvaða undirbúningsmenntun
er áskilin?
3) I hvaða skóla þarf maður að
ganga?
4) Geta stúlkur jafnt og strákar
lært úrsmíðar?
Hvað lestu úr skriftinni, og
hvernig er stafsetningin? Von-
andi lendir þetta bréf ekki í
ruslakörfunni. — Með fyrirfram
þökk fyrir allt gott efni, sem
Vikan flytur.
Spurul.
1) Þetta er fjögurra ára nám,
bóklegt og verklegt.
2) Gagnfræðapróf.
3) Iðnskólann.
4) Já, en við vitum ekki um
neina stúlku við nám í úrsmíði,
þær hafa frekar farið út í gull-
smíðina.
Þessu til viðbótar viljum við
segja þér, að þú þarft að byrja
á því að komast á samning hjá
úrsmíðameistara, og það getur
orðið þrautin þyngri, því tals-
verð ásókn er í nemastöður í
þessari grein. Gefstu samt ekki
upp við þær fréttir, þolinmæðin
þrautir vinnur allar.
Við þykjumst lesa út úr skrift-
Inni, að þú sért talsvert ná-
kvæm og smámunasöm, sem
ætti einmitt að koma þér til
góða f úrsmíðinni. Stafsetning-
in var rétt í þessu litla bréfi,
nema þú varst of spör á n í
orðunum ruslakörfunni og skrift-
inni.
SAMKVÆMISSPIL FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
6 spil í einum kassa
•
DAM - DERBY - HALMA - GÆSASPIL
LUDO - MYLLA
•
Spilareglur á íslenzku
Heildsölubirgðir:
PáH SsmDrissu
Laugavegi 18A - Símar 14202 - 14280
44. TBL. VIKAN 5