Vikan - 02.11.1972, Qupperneq 8
HÓFST ÚR SÆTI SÍNU
EINS OG FLUGDREKI
AF JÖRÐU
Kosningasigur Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna á Yest-
fjörðum í íyrrasumar var frækn-
asta afrek þeirrar kosningabaráttu
og jók mjög á frægð Hannibals
Valdimarssonar. Hann geystist þá
á ný i sitt gamla ríki vestra eftir að
framboð í höfuðborginni varð hon-
um ógeðfellt, þar eð hinum skap-
bráða leiðtoga fannst Bjarni Guðna-
son gerast of ráðríkur með fulltingi
meiribluta Reykjavíkurdeildarinn-
ar. Ilafði og flokkurinn verið stofn-
aður Iianda Hannibal og Birni Jóns-
syni, þó að Bjarni væri gerður að
varaformanni i upphafi til að
reyna að fá á samtökin nýstárlegt
svipmót. Fóru ekki miklar sögur af
atgangi Hannibals vestra, en at-
kvæðatalningin leiddi brátt i Ijós,
að mjög hafði um bann munað.
Tölvan, sem spá átti um úrslit,
glaptist af fylgisröskuninni og
sprakk eins og fluga í óvenjulegum
sumarhita. Samtökin sópuðu að sér
fylgi uin gervalla Vestfirði. Ilanni-
bal felldi auðveldlega frambjóðend-
ur Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins, Steingrím Pálsson og
Birgi Finnsson, og tiyggði ennfrem-
ur förunauti sínum uppbótarþing-
sæti.
A þeirri stundu varð Karvel
Pálmason landskunnur af föruneyt-
KARVEL PÁLMASON
EITIR LttPUS
inu við Hannibal, en hafði áður
naumast heyrzt nefndur sem stjórn-
málamaður nema í afskekktum átt-
högum sínum vestra. Hannibal
reyndist eigi að siður ærið lið að
Karvel i bardaganum. Hafa varla
aðrir kappar baldnari liei’jað á
Vestfjörðum síðan þeir vopnfimu
svarabræður, sem frá segir í Gerplu.
Að öðru leyti verður Hannibal alls
ekki líkt við Þorgeir Hávarsson og
Karvel þvi síður við Þormóð Kol-
brúnarskáld.
Haft er fyrir salt, að Karvel liafi
vakað nóttina eftir kosningar og
vonað um sólsetur, að Hannibal
Valdimarsson næði kosningu, en
eigi gert sér neinar gyllivonir. Svo
byrjaði atkvæðatalningin. Hannibal
liélt lengi fram eftir mjög til jafns
við frambjóðendur stóru flokkanna
og fékk mikið fylgi umfram nauð-
svn. Hófsl Karvel þannig úr sæti
sínu eins og flugdreki af jörðu og
bafði komizt alla leið á óskatind-
inn áður en dagur rann. Réttinda-
lítill kennari í Bolungarvik var allt
í einu orðinn alþingismaður.
Karvel Steindór Ingimar Pálma-
son fæddist í Bolungarvík í Norður-
Isafjarðarsýslu 13. júlí 1936, sonur
Pálma Árna Karvelssonar sjómanns
þar og bústýru hans, Jóninu Egg-
ertinu Jóelsdóttur. Nam Karvel við
unglingaskóla í Bolungarvík að lok-
inni barnafræðslu, en hóf sjó-
mennsku upp úr fermingu og þótti
bráðger og kappsamur. Karvel var
og um slceið verkamaður i áttliög-
um sínum og siðar lögregluþjónn
og liefur einnig stundað smíðar, en
réðsl kennari við barna- og ungl-
ingaskólann í Bolungarvík 1962.
Kennir bann þar einkum lianda-
vinnu og leikfimi og kvað nýtur í
því starfi, þó að prófréttindi vanti.
Bolungarvík er Sjálfstæðisflokkn-
um öruggt virki, enda Einar Guð-
finnsson kaupmaður og útvegs-
bóndi sveitarstólpi þar og nýtur í
ellinni góðrar liðveizlu sona sinna.
Karvel Pálmason er bins vegar ekki
svo skapi farinn að liann gerist
hlýðinn og auðsveipur þjónn. Varð
hann ungur róttækur í skoðunum
og bneigðist til fylgis við Alþýðu-
bandalagið. Mundi Karvel naumast
hafa veitt Sósialistaflokknum að
málum eins og forustu lians var
liáttað og honum féll heldur engan
veginn þreldeysi og kyrrstaða Al-
þýðuflokksins. Aftur á móti blaut
hann að eiga samleið með Ilanni-
bal Valdimarssyni. Gekk Karvel i
verkalýðs- og sjómannafélagið í
Bolungarvík strax á æskuskeiði og
varð varaformaður þess tvítugur,
en formaður tveimur árum síðar
1958. Karvel var kosinn í hrejips-
nefnd heimbyggðar sinnar 1962 og
endurkjorinn 1966 og 1970, en þar
,er Sjálfstæðisflokkurinn í meiri-
hluta, og lýtur staðurinn um flest
vilja og forsjá Einars Guðfinnsson-
ar. Karvel Pálmason sinnti hins
vegar litt eða ekki þjóðmálum
framan af og virtist ætla að una
litlum hlut í Hólshreppi undir
Stigablíð. Samt skipaði hann sjötta
sæti á framboðslista Alþýðubanda-
lagsins á Vestfjörðum í alþingis-
kosningunum 1967, þegar Stein-
grimur Pálsson réðst í fylkingar-
brjóst eftir að Hannibal Valdimars-
son vék þaðan á síðustu stundu og
þeysti gramur til Reykjavíkur með
vopn sin á lofti. Sú breyting á fram-
boði Alþýðubandalagsins var likt
og persónulegur greiði við Birgi
Finnsson, enda náði liann aftur
kosningu vestra, en Steingrímur
Pálsson varð landskjörinn. Endur-
koma Hannibals á Vestfirði sumar-
ið 1971 hlaut hins vegar enn að
raska viðhorfum. Valdist Karvel
8 VIKAN 44. TBL.