Vikan


Vikan - 02.11.1972, Síða 17

Vikan - 02.11.1972, Síða 17
innar megin og blóð Stuart- anna frá föðurnum. Svefnlyfið hreif ekki. Tárin fóru aftur að seitla undan augnlokum hinnar hrelldu móður. Æska hennar sjálfrar hafði verið svo yndisleg. Hún, Amelia prinsessa, var yngsta barn konungshjónanna, Ge- orgs konungs III. og Charlotte drottningar hans. Fjölskyldan var gríðarstór, Amelia var fimmtánda barnið, en hún var ekki síður velkomin en hin systkinin, því að foreldrarnir voru mjög barnelsk. Systur hennar fimm voru allar mjög fagrar og sjálf var hún hrein fegurðardís, „litli engillinn“ var hún kölluð. Hún var ást- úðlegt barn, enda umvafin ást- ríki og hún átti það til að heilsa gestum, sem komu til Windsorkastala með kossi, í stað þess að hneigja sig á he,fð- bundinn hátt. Hún var Ijós- hærð, dálítið feitlagin og mjög gáskafull og systkini hennar höfðu gaman af að aka henni í barnakerru um grundirnar kringum konungshöllina: hún brosti í allar áttir og ljómaði af ánægju, þegar hún hélt 1 stóra hönd . föðurins, þegar fjölskyldan kom fram fyrir al- menning. Georg bróðir hennar, prins- inn af Wales, var guðfaðir hennar og hann varð tuttugu og eins árs, þegar hún fædd- ist, árið 1783 og það virtist alltaf vera innilegt samband á milli þessara tveggja systk^na þrátt fyrir aldursmuninn, hans með allar sínar ástkonur og furðulega vini og hennar í barnslegu sakleysi. Hann kall- aði hana alltaf barnið sitt og í bréfum hans til hennar, mátti aila tíð finna innilega og fölskvalausa ást, sem hann al- drei sýndi nokkurri annarri manneskju. En þegar hún var sex ára, dundi ógæfan yfir konungs- fjölskylduna og um leið yfir England. Georg konungur varð veikur og það reyndist síðar vera hið fyrsta af mörgum geð- veikiköstum hans. Þetta veik- indatímabil varð ekki lang- vinnt og gleði fjölskyldunnar yfir bata hans var svo mikil að drottningin lét gera geysi- stórt málverk, málað á gegn- sætt efni, svo hægt væri að jjlp lýsa það upp aftan frá og ná 44. TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.