Vikan - 02.11.1972, Síða 47
SKRIFVÍLIN
B°x 1232 —— C>ÁHAII
Suðurlandsbraut 12
Reykjavík, sími 19651
UMBOÐIÐ
CANON er mest selda rafeinda-reiknivélin á
íslandi í dag. Sendum myndir og verð, eftir beiðni,
hverl á land sem er.
KONUNGLEG
HNEYKSLI
Framhald af bls. 19.
Hún varð að skrifa oft og
mörg bréf. í stórri byggingu
eins og Windsorkastala var
varla hægt að hafa nokkurt
samband við fólk, nema gegn-
um sendiboða. Það var næst-
um ókleift fyrir þau að hitt-
ast, svo Amelia tók stundum
það ráð, þegar farið var á veið-
ar eða í útreiðatúra, að hún
lét sig heltast úr lest systkin-
anna og lét þá hest sinn skokka
þar til hann gat riðið upp að
hlið hennar augnablik og þau
gátu þá stolið nokkrum augna-
blikum. Að vísu gátu þau séð
hvort annað við messu, horfzt
í augu yfir höfðum þeirra, sem
lutu í bæn í kapellu heilags
Georgs.
En þetta fór ekki framhjá
öllum, jafnvel ungfrú Gomm
var farið að gruna margt. Hún
tók Ameliu tali.
— Yðar hágöfgi er að leita
sér að eldi. Það er ekki hægt
að eiga leyndarmál við hirð-
ina.
Amelia hristi höfuðið, svo
hljóp hún upp um hálsinn á
kennslukonunni. ,,Þú myndir
aldrei segja frá, þú myndir al-
drei gera það, elsku Gomm?
En „elsku Gomm“ sagði frá.
Hún talaði um grun sinn við
Mary, systur Ameliu og Ame-
lia lofaði að tala við ungfrú
Goldsworthy, sem ekki þóttist
heyra þetta leyndarmál, sem
greinilega var orðið mörgum
kunnugt. En ungfrú Gomm
gafst ekki upp, hún vildi þá
alveg eins taka skrefið til fulls,
svo hún fór til drottningarinn-
ar, alveg yfirkomin af ábyrgð-
artilfinningu.
Amelia varð fokvond, hún
skrifaði sjálf móður sinni og
mótmælti því harðlega að
verið væri að hlusta á slúður
gamalla kvenna, sem væru að
breiða út um sig óhróður.
En drottningin, sem þó var
þekkt fyrir að beita börn sín
hörku, skrifaði Ameliu hóg-
vært bréf, þar sem hún bað
dóttur sína að gæta velsæmis
og umfram allt að vera var-
kár, svo þarflaus orðrómur
kæmist ekki til eyrna föður
hennar, það myndi valda hon-
um áhyggjum. Með öðrum orð-
um var drottningin hrædd um
að hann fengi þá geðveikis-
kast, sem gæti orðið örlaga-
ríkt. Hann hafði komið í veg
fyrir hjónabönd hinna systk-
inanna og hvað yrði þá, ef
hann heyrði að „litla lambið“
hans ætlaði að yfirgefa hann.
Caroline, eiginkona prinsins
af Wales, hafði alveg sérstakan
áhuga á öllu hneyksli, sem
snerti konungsfjölskylduna.
Hún trúði einni vinkonu sinni
fyrir því, að allir héldu að A.
prinsessa vildi giftast herra F.
og að hún væri búin að leggja
það fyrir konung. (Vinkonan
var ekki lengi að koma sögunni
áleiðis).
Þetta var auðvitað rangt.
Hvað sem kjaftasögur hermdu,
þá þorði þessi uppáhaldsdóttir
konungsins ekki að hætta á að
segja föður sínum frá ást sinni.
Hún vildi heldur lifa í lyginni,
heldur en að grátbiðja hann
um hamingju.
En einn liður í slúðursögun-
um var réttur. Árið 1804 sagði
hún við Charles: —• Eg vil og
skal giftast þér.
— Það er ómögulegt, sagði
hann. — Þú veizt að ég elska
þig, Amelia, er það þér ekki
nóg, eins og aðstaða okkar er.
Hvers virði er einhver athöfn?
— Það myndi verða mér
vernd, svaraði hún. Það kvöld
talaði hún lengi við George
bróður sinn. Hvað þeim fór á
milli, veit enginn, en líklega
hefur hann lofað henni bless-
un sinni, þegar hann yrði kon-
ungur, sem ekki yrði langt að
bíða, þegar litið var á heilsu-
ástand konungsins. Hann hafði
einu sinni orðið að kvænast á
laun, til að vernda þá konu
sem hann elskaði . . .
Og svo hittust þau um mið-
nætti hjá presti, sem svarið
hafði þagnareið; hringur var
dreginn á fingur Ameliu, sem
hún varð síðan að hafa í festi
um hálsinn. Og hún skrifaði
Charles: „Ó, hve heitt ég elska
þig! É'g hef elskað þig síðan
ég sá þig fyrst; ég leitaði til
þín og ég þakka guði fyrir að
ég fékk að njóta þín!“
I ótrúlegu andvaraleysi fór
hún að skrifa sig A.F.R. -—
Amelia Fitz Roy og hún lét
grafa fangamark Charles fyrir
neðan sitt konunglega fanga-
mark á allt sitt silfur. En jafn-
vel þótt hún hefði ekki verið
svona opinská, þá er það rétt,
sem sagt er, að ekki sé hægt að
leyna jnnilegri ást og hósta.
Öll hirðin vissi um leyndarmál
hennar, en af ást til hennar og
og umhyggju fyrir heilsufari
konungs, var þessu haldið
nokkurn veginn innan hirðar-
innar. Einn hirðmaður skrif-
aði: „Ástarsamband hennar og
Fitz Roy er fyrir löngu kunn-
ugt allri hirðinni.“
Hún hafði reyndar hósta,
ekki síður en ástina. Það var
ósköp auðvelt fyrir hana að
fá að fara til Weymouth, þegar
henni varð ljóst að hún varð,
umfram allt, að komast frá
hirðinni í Windsor. Heilsu
hennar hrakaði. Hún hafði svo
mörg sjúkdómseinkenni að það
var auðvelt að leyna því að
hún var barnshafandi.
Fæðingin gekk illa og hún
fæddi tvíbura. Annar, sem var
stúlkubarn, lézt í fæðingunni,
en drengurinn lifði. Amelia
bað þess innilega að fá að hafa
drenginn hjá sér, en það var
útilokað. Honum var komið
fyrir hjá bændafjölskyldu og
hann alinn upp sem sonur
hjónanna.
— Þú hefur nú þegar verið
alltof kærulaus, Amelia, sagði
Charles. — Ef þú hefur þetta
barn hjá þér, þá er það ljós
vottur um samband okkar —
hjónaband —- og allur heimur-
inn fær að vita það, Hans Há-
tign, faðir þinn, fyrstur allra.
Og þá gafst hún upp, blind-
uð af táriim og önnur kona tók
að sér frumburð hennar. Það
leið ekki á löngu þangað til
varla var um annað talað en
þetta hneyksli í Weymouth.
Amelia og Fitz Roy heyrðu
auðvitað þessar sögur. Amelia
reyndi að taka af þeim brodd-
inn, með því að trúa beztu vin-
um sínum fyrir því að hún
væri gift Charles aðeins í
hjarta sínu, ekki raunverulega.
Hún var orðin hrædd við
slúðrið og illmælgina og hugs-
aði með sér hve lengi hún gæti
haldið þetta út. Hún reyndi að
telja Charles á að flýja með
sér, en það var hugsunin um
„elsku föður“ hennar, sem lét
hana hverfa frá því að hugsa
um slíkt.
En konungurinn dó ekki.
Hann varð æ veikari andlega
en líkamlega var hann við
hestaheilsu, meðan dóttur hans
hrakaði stöðugt. Það var nú
orðið ljóst, bæði læknum henn-
ar og fjölskyldu að hún var
með berkla. Læknarnir lögðu
sig alla fram, en það bar ekki
árangur og stundum var hún
svo þjáð að hún þoldi ekki
einu sinni golu.
Meðal annars, sem sagt var,
þá átti hún að hafa eignazt
annað barn, stúlku; henni var
gefið nafn, Selena Ehza og hún
var alin upp hjá írskum vin-
um prinsins af Wales sem
þeirra eigin dóttir. Ennþá er
44. TBL. VIKAN 47