Vikan

Tölublað

Vikan - 05.04.1973, Blaðsíða 44

Vikan - 05.04.1973, Blaðsíða 44
— ÞaS vaxa bara ekki betri epli! Hrúts- merkið 21. marz- 20. apríl Það eru erilsamir dagar framundan. Hvar sem þú heldur þig verð- urðu mjög starfs- samur, þar sem margt virðist aðkallandi. Þú þarft að hafa óper- sónuleg samskipti við æði marga. Nauts- merkið 21. april— 21. maí Vantreystu þér ekki. Taktu að þér verkefni, sem býðst innan tíðar, því að það mun hafa þroskandi áhrif á þig. Ef til vill verðurðu fyrir vonbrigðum í ákveðnu máli, en þú máttir búast við þeim. Tvíbura- merkið 22. maí— 21. júní Talaðu ekki mikið um erfiðleika þína og áhyggjur við aðra. Þér væri ef til vill nokkur þörf á að gagnrýna sjálfan þig. Þú hefur möguleika á að gera þér mat úr einhverju, sem aðrir hafa gefizt upp við. Krabba- merkið 22. júní— 23. júlí Þú nálgast með seiglu takmark þitt, og þess vegna er engin ástæða til annars en líta björtum augum á framtíðina. Þér verður eitthvað smávægilegt á, og þá er bezt að játa mistök sín strax. Ljóns- merkið 24. júlí- 24. ágúst Þú tekur þér fyrir hendur eitthvað alveg nýtt og framandi sem veitir þér og þínum mikla ánægju. Þú hef- ur óvenjumikinn frí- tíma eins og er, en það stendur ekki lengi. Meyjar- merkið 24. ágúst- 23. sept. 1 Þú eyðir miklum hluta af frítíma þínum í vinnu, sem færir þér drjúgar tekjur, ef þú leggur alúð við hana. Þú hefur nýlega kvatt góðan vin, en að- skilnaðurinn verður styttri en ráðgert var. Vogar- merkið 24. sept.— 23. okt. Þú átt ferð fyrir hönd- um, sem stendur í nánu sambandi við áhugamál þfn. Þess vegna skaltu eyða sem mestum tíma í þessari viku í þágu fjölskyldu þinnar. Helgin verður skemmtileg. Dreka- merkið 24. okt,- 22. nóv. Ef til einhvers sundur- lyndis og sárinda kemur, skaltu athuga óstæðurnar vandlega og gera þér sem bezta grein fyrir öllu. Það kemur áreiðan- lega í þinn hlut að reyna að leysa vand- ann. Bogmanns- merkið 23. nóv,— 21. des. Vandaðu vel val trún- aðarvina þinna. Áhrif stjarnanna munu hjálpa þér við að yfir- vinna áhyggjur, sem koma þér persónulega við, en þó ekki fjöl- skyldu þinni. Veldu þér vini úr nauts- og bogmannsmerkinu. Vatnsbera- Fiska- jk'W merkið merkið 21.jan.— 20. feb.— 19. feb. 20marz /Skwl Þú átt erfiðan áfanga Félagar þínir munu eftir, þar til þú nærð halda einhverja keppni settu marki. Skuld, innbyrðis, sem þú tek- sem þú varst hálf- ur þátt í. Láttu ekki á partinn búinn að þig fá, þótt þér vegni gleyma, skaltu nú illa í henni. Hér er að- greiða tafarlaust, ekki eins um leik að ræða, sízt vegna þess, að þú sem ekki ber að taka munt brátt þarfnast alvarlega. hjálpar viðkomandi. Stein- geitar- merkið 22. des— 20. jan. Þú hefur verið fremur einangraður undanfar- ið, og er það af sjálfs þín völdum. Nú snýrðu við blaðinu, sækist eftir félagsskap ann- arra og nýtur þess í ríkum mæli að um- gangast vini og kunningja. 44 VIKAN 14. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.