Vikan - 02.08.1973, Qupperneq 12
Fallegt andlit hans varð allt að einu brosi, þegar
hann sá okkur koma og þegar Lára settist í sandinn
hjá honum og fór að hjálpa honum að bæta netið,
laumaðist ég i burtu.
Nú finnst mér ég vera orðin ég
sjálf aftur eftir aö missa manninn
minn í fyrrasumar. Ég ákvaö þá
strax aö veröa ekki byröi á fjöl-
skyldu minni og meö það i huga
ákvaö ég aö fara i skemmtiferð til
Portúgal. Eg hef alltaf áiitiö
sjálfsmeöaumkun mannskemm-
andi og vildi þess vegna ekki fara
aö vorkenna sjálfri mér.
„En þú getur ekki fariö ein,
mamma,” sögöu giftir synir min-
ir. „Komdu meö okkur. Krakk-
arnir veröa yfir sig hrifnir.”
Mig langaöi mest af öllu til þess
aö þiggja boöiö. en ég vissi aö nú
var aö duga eöa drepast svo ég
pantaö i far til Portúgal.
„Ég kynntist fólki,” sagði ég
viö áhyggjufulla syni mina. „Þiö
vitiö, aö ég á auövelt meö aö um-
gangast fólk.’'
Og það stóö ekki á þvi, að ég
kynntist fólki . . .
Ekkja á aldur viö mig, tók mig
upp á arma sina á Gatwickflug-
velli. Hún hét Edna Beresford og
var lika á leið til Portúgal ásamt
Láru dóttur sinni.
Sjálfstraustið skein af Ednu.
Hárgreiöslan fór vel og buxna-
dressiö klæddi hana óaöfinnan-
lega. Lára dóttir hennar var smá-
vaxin og gat verið hvort sem var
átján ára eöa þritug. Hún var
einkar venjuleg, en andlitsdrætt-
irnir báru þó eitthvaö meö sér, ef
vel var aö gætt. Hún brosti i si-
fellu og ég gat mér þess til aö hún
gerði þaö til þess aö fela óviö-
ráðanlega feimni.
Samband þeirra mæögnanna
virtist i hæsta máta skringilegt og
þegar Lára brá sér frá, sneri
móöir hennar sér aö mér.
„Lára er svo feimin”, §agöi
hún. „Hún fer aldrei neitt án min.
hún viröist ekki kæra sig um aö
eiga eigin vini. Hún samþykkir
allt, sem ég legg til aö viö gerum.
Stundum hvarflar aö mér, aö ég
veröi aö annast hana alla ævi.”
Hún virtist alls ekki óánægð
meö þetta og andvarpaöi upp-
geröarlega um leiö og hún hélt
áfram: „Hún er búin að ljúka há-
skólanámi, en svo kennir hún i
barnaskóla .i fátækrahverfi.
Krakkarnir eru hænd að henni og
hún gerir allt fyrir þau. Allt frá
þvi aö sriýta þeim og til þess aö
gefa þeim afmælisgjafir.”
Ég kunni þvi illa aö hlusta á
hana tala meira um persónuleika
og einkamál veslings Láru og fór
þess vegna aö segja henni frá
skyndilegu fráfalli mannsins
mins. •
Hún dáöist aö kjarki minum aö
fara ein mins liðs til Portúgal og
spuröi hvort ég ætti engin börn,
sem ég' heföi getaö eytt sumar-
leyfinu hjá.
Nei. Edna Beresford var ekki
sú manngerð, sem ég kaus aö
eiga ab vinum, en þó var ég þakk-
lát aö vita af henni nærri mér i
ferbinni. Samt geröi ég mér grein
fyrir þvi aö meö henni yrði ég
langt frá þvi aö vera frjáls feröa
minna.
Hún talaði viö yfirþjóninn á
hótelinu og viö fengum sama
boröib i iburöarmiklum matsaln-
um. Hún sá um aö útvega okkur
þrjá stóla hjá sundlauginni og á
þaki hótelsins og sneri þeim eftir
sólinni, Hún var ákveðin i þvi aö
veröa dökkbrún, þegar heim
kæmi.
Þegar hún var búin aö maka sig
út I sólaroliu, var eins og hún
segöi viö sólina: Þá er rööin kom-
in aö þér. Ég þoli illa sól og setti
Frh. á bls. 14
)