Vikan - 02.08.1973, Blaðsíða 15
Hundar þjást lika af sálsýki
I Bandarikjunum hefur enn
ein sérfræðingastéttin innan
læknastéttarinnar skotið upp
kollinum. Dr. John Kernell i
San Francisco leggur stund á
hundasállækningar og hann
þarf ekki að kvarta undan
Verkefnaskorti.
Á legubekknum i lækninga-
stofu hans liggja ferfætlingar,
og sperra eyrun á meðan sálir
þeirra eru læknaðar. Dr.
Kernell hefur þegar hjálpað
fjöldamörgum hundum og eig-
endum þeirra. Dag nokkurn
kom til hans ung nýgift kona.
Hún hafði átt hund áður en hún
giftist og hann fluttist með
henni á nýja heimilið. Sam-
komulagið milli hundsins og
eiginmannsins horfði til vand-
ræða, en sem betur för réði
Dr. Kernell bót á þvi. Hann
sagði manninum, að þegar
hann kæmi heim ætti hann
fyrst að kyssa hundinn og
frúna á éftir. Siðan þá hefur
heimilisfriðurinn verið i bezta
lagi.
Dr. Kernell staðhæfir, að
taugaveiklun verði stöðugt al-
gengari og alvarlegri hjá
hundum rétt eins og hjá mönn-
um og þvi sé mál til komið, að
eitthvað raunhæft sé gert til
úrbóta. Hann hefur sótt um
prófessorsembætti i hundasál-
lækningum við Kaliforniuhá-
skóla og kveðst gera sér góðar
vonir um, að embættið verði
stofnað og honum verði veitt
staðan.
CHAPLINSDÓTTIR
í sumar er Geraldine
Chaplin að leika önnu af
Austurriki i nýrri kvikmynd
um skytturnar. Geraldine er
orðin 29 ára en litur varla út
fyrir að vera meira en 16. Hún
er gift á Spáni og maðurinn
hennar heitir. Carlos Saura.
Þau voru nýlega viðstödd
frumsýningu á kvikmynd,
sem þauunnuað isameiningu
Geraldine sagðist kviða heil
ósköp fyrir blaðamanna-
fundinum á eftir, þvi að hún
vissi aldrei hvað hún ætti að
segja við slik tækifæri. Þau
hjónin eiga eina ósk og hún er
að þau geti farið saman út að
borða án þess að eftir þeim
verði tekið.
Judyardóttir
Þetta er mynd af henni Lizu
Minelli siðan hún var litil. Hún
er hugsandi á svipinn.
Kannski hún sé að reikna út
hvað sé langt þangað til hún
fær Óskarsverðlaunin.
SfeAN SfeAST