Vikan - 20.03.1975, Qupperneq 59
Réttirnir, sem Þórarinn valdi
fyrir Vikuna, eru fljótlegir og
þægilegir. (Jppskriftin af krækl-
ingaréttinum er fyrir 5 manns, en
hinar 3 uppskriftirnar eru reikn-
aftar fyrir einn, og svo verður
hver að margfalda eftir þörfum.
KKÆKLINGUR í
KRYDDSÓSU
(Fyrir fimm manns)
400 gr. kræklingar úr dós
50 gr. laukur
50 gr. sveppir
3 1/2 msk. matarolia
1 msk. sinnep.
1 1/2 msk. söxuð steinselja
2 1/2 msk. sitrónusafi
salatblöð
steinselja
sitróna
tómatur
ristað brauð, smjör.
Setjið krækjinginn i hvitvins-
glös. Saxið lauk og sveppi smátt
og blandið saman við mataroliu,
sinnep, saxaða steinselju og
sitrónusafa, hellið yfir krækling-
inn. Skreytið með salatblöðum,
steinselju, sitrónubát og tómat-
bát. Geymið á vel köldum stað.
Berið fram með ristuðu brauði og
smjöri.
BUFFSTEIK
(Fyrir einn).
200 gr. nautabuffsteik úr fillet eða
mörbraði
salt og pipar
80 gr. laukur
60 gr. sveppir
30 gr. spánskur pipar
1 1/2 dl. rjómi
1 tsk. sitrónusafi
1/2 — 1 tsk. kjötkraftur
1 tsk. söxuð steinselja
65 gr. mais
65 gr. snittubaunir.
Kryddið buffið með saiti og pip-
ar og steikið á vel heitri pönnu i
litilli eða engri feiti. Steikið buff-
ið, eins og hver og einn vill hafa
það, takið það siðan af pönnunni.
Brúniö lauk, sveppi og spánskan
pipar á pönnunni, helliö rjóman-
um yfir og sjóðið, bragðbætið með
sitrónusafa, kjötkrafti og saxaöri
steinselju. Hellið öllu yfir buffið.
Beriðfram meðmais, snittubaun-
Þórarinn Guðlaugsson yfirmat-
reiðslumaður stendur hér við hið
fjölbreytta kaida borð, sem hótel-
ið býður upp á daglega. Útlend-
ingar eru hrifnir af kalda borðinu,
þvi þarna gefst þeim tækifæri til
að bragða islenska rétti, eins og
harðfisk og hákarl. hangikjöt og
blóðmör, sviö og skyr. Auk þess
eru margar tegundir af síld og
fiski, rækjum og laxi. kjöti og
ábætisréttum. Hótelið hefur einn-
ig fjölbreyttan matseðil, bæði i
hádeginu og á kvöldin.
►
12. TBL. VIKAN 59