Vikan - 12.06.1975, Blaðsíða 3
MOGENS
GUSTRUP
Mogens Glistrup — þruman i
dönskum stjórnmálum um þessar
mundir — umdeildur persónuleiki
— fimmti hver dani fylgir honum
i blindni — en á pöllum þing-
heimsins foröast flestir hann eins
og pestina.
Mogens Glistrup vill stokka upp
spilin, hvaö viövikur hinum
venjulega farvegi danans, hann
vill gefa sem flestum tækifæri til
aö hlakka til einhvers og hafa
eitthvaö að lifa fyrir. Hann vill
skera niöur i stórum stil fjárveit-
ingar til manna og málefna, sem
hann telur geta staöiö undir sér
sjálf.
Tillögur hans eru svo róttækar,
að þaö rennur kalt vatn niöur
bakið á vana-stjórnmálamönn-
um, sem fyrir löngu hafa misst
samband við kjósendur og þar að
auki misst kjarkinn til aö skilja
hlutina.
Baráttuaöferðir Mogens
Glistrup, sjálfsöryggi, hans
óskammfeilna túlkun og fram-
kvæmd á skattalögunum hafa afl-
að honum margra óvina — eink-
um hjá fjölmiðlunum.
Þeir reyna, ef til vill af ótta við
dugnað hans, að gera hann að
hálfgerðum skemmtikrafti. Hann
má hreinlega ekki komast upp
með að vekja fjöldann af sinum
stjórnmálalega þyrnirósusvefni.
Hann er sifellt i vörn. Flokkur
hans átti áð sundrast fyrir alla
muni. bað tókst næstum þvi. Við
kosningarnar i janúarmánuði
siðastliðnum fékk hann aðeins
13,9% atkvæða. Nú aðeins 4
mánuðum eftir kosningar er fólk
— fullt af óánægju — að flýja frá
hinum flokkunum til fylgis við
framfaraflokk Mogens Glistrups
— sem samkvæmt siðustu
Gallupkönnunum nýtur stuðnings
20% kjósenda. Flokkurinn gæti
samkvæmt þvi i dag haft 50
manns á þingi og verið næst
stærsti flokkur Danmerkur.
Það er þvi hafið yfir allan grun,
að Mogens Glistrup er kominn til
þess að vera á þingi — að minnsta
kosti þar til hann hefur hreinsað
vel til.
ÞRUMAN
DÖNSKUM
Folketingei — fimmtudags-
morgunn:
— Við erum hér frá VIKUNNI
og eigum pantaö viðtal við herra
Mogens Glistrup.
— Herra Glistrup tekur ekki á
móti fréttamönnum. Hann er
upptekinn i dag.
— En við erum frá VIKUNNI á
lslandi.
Sjáum til — annar eftirlits-
maður kemur til hjálpar og visar
okkur inn i veitingasal þingsins.
Þar situr Mogens Glistrup að
dönskum „frokost” — um leið og
hann blaðar ákaft i stórum bunka
af dagblöðum.
STIÓRNMÁLUM
24. TBL. VIKAN 3